Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2013, Síða 57

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2013, Síða 57
17.11. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57 Ævisögur og minningar stjórn- málamanna eru sérlega áber- andi í jólabókaflóðinu. Ein þessara bóka er Allt upp á borðið eftir Vilhjálm Hjálm- arsson á Brekku, fyrrverandi menntamálaráðherra. Hann er orðinn 99 ára og hefur séð miklar breytingar á sinni löngu ævi og hefur því sannarlega frá ýmsu að segja. Í formála segir Vilhjálmur að með bókaritun sé hann að seinka gleymskunni. Í bókinni segir hann frá æsku sinni og dvöl sinni á Seyðisfirði þar sem hann dvaldi sem ungur maður og síðar gamall. Hann fjallar sömuleiðis um þingmanns- og ráðherraferil sinn. Fjöldi mynda er vitanlega í bókinni. Minningar ráðherra Ný bók Khaled Hosseini, Og fjöllin end- urómuðu, var á dögunum valin ein af 10 bestu bókum ársins 2013 af bóksalanum Amazon.com. Það er Forlagið sem gefur út bækur Hosseini sem fyrr en hann hefur áður átt góðu gengi að fagna með bókum sínum Flugdrekahlauparanum og Þúsund björtum sólum. Og fjöllin endurómuðu segir átakanlega sögu afgangskra systkina sem vegna fátæktar foreldranna eru aðskilin í barnæsku og eyða ævinni í að leita hvort að öðru. Sagan spannar sextíu ára sögu fátækt- ar, stríðsátaka og landflótta. Í New Tork Times fékk nýja bókin þessa umsögn: „Liprari og metnaðarfyllri en Flug- drekahlauparinn, margbrotnari en Þúsund bjartar sólir.“ Bækur Hosseini njóta gríðarlegra vinsælda víða um heim og hafa selst í tæplega 40 millj- ónum eintaka í rúmlega sjötíu löndum. Flug- drekahlauparinn og Þúsund bjartar sól- ir nutu mikilla vinsælda hér á landi og nú er að sjá hvernig nýja bókin spjarar sig. Og fjöllin endurómuðu, nýjasta bók Khaled Hosseini, er komin út á íslensku. VALIN EIN AF BESTU BÓKUM ÁRSINS Alþjóðlega glæpasagnahátíðin Iceland Noir hefst í næstu viku. Viðburðir eru margir og áhugasömum skal bent á netsíðuna www.icelandnoir.com en þar er hægt að kynna sér dagskrána í heild. Á fimmtudaginn 21. nóvember sit- ur norski höfundurinn Jorn Lier Horst fyrir svörum í Norræna hús- inu, en hann hreppi Glerlykilinn árið 2013 fyrir bók sína Jakthundene. Upplestrarkvöld verður þann sama dag. Á föstudag er hægt að fara í fót- spor Erlendar, hinnar ástsælu löggu Íslands, en Úlfhildur Dagsdóttir mun leiða áhugasama um helstu slóð- ir hans. Það er vel við hæfi að gangan hefst við lögreglustöðina við Hverfisgötu klukkan hálffjögur og henni lýkur við Borgarbókasafn- ið. Þess má geta að Arnaldur Indriðason, „pabbi“ Erlendar, er heiðursgestur Iceland Noir. Á laugardeginum 23. nóvember hefst hin formlega dagskrá í Norræna húsinu klukkan tíu og stendur fram á kvöld. Meðal þeirra erlendu glæpasagnahöfunda sem mæta á hátíðina eru Jorn Lier Horst, Ann Cleves og Michel Ridpath. Íslenskir glæpasagnahöfundar verða svo vitanlega áberandi á há- tíðinni. Í FÓTSPOR ERLENDAR Úlfhildur Dagsdóttir leiðir áhugasama um slóðir lögreglu- mannsins Erlendar á föstudaginn í næstu viku. Morgunblaðið/Ómar Nýjasta skáldsaga Sjóns, Mána- steinn - Drengurinn sem aldrei var til, hefur vakið athygli og fengið frábæra dóma, enda örugglega ein af bestu skáld- sögum þessara jóla. Afar mynd- rík og áhrifamikil bók. Sjón segir sögu hins sextán ára samkynhneigða Mána Steins sem er með bíódellu. Sögusviðið er að mestu Reykjavík á síðustu mánuðum ársins 1918 og spænska veikin heldur innreið í bæinn. Áhrifamikil skáldsaga frá Sjón Sjón, Órar, Vilhjálmur og íslensk dýr NÝJAR BÆKUR EINN AF OKKAR FREMSTU HÖFUNDUM, SJÓN, SENDIR FRÁ SÉR SKÁLDSÖGU SEM TEKIÐ HEFUR VERIÐ EFTIR. ÆSISPENNANDI UNGLINGABÓK KEMUR Á MARKAÐ. ÆVISÖGUR SETJA SVIP SINN Á JÓLABÓKAFLÓÐIÐ OG LJÓSMYNDABÓK UM ÍSLENSKU DÝRIN ER UPPLÖGÐ Í JÓLAPAKKA YNGSTU KYNSLÓÐARINNAR. Það er stundum úr vöndu að ráða þegar velja á bækur fyrir unglinga. En nú er komin út unglingabókin Órar eftir Lauren Oliver sem er bæði spennandi og snjöll. Líklegt er að unglingar kolfalli fyrir bókinni. Átján ára gömul eru bæði kynin sett í aðgerð sem kemur í veg fyrir að þau verði ástfangin. En ekki eru allir unglingar sem vilja fá lækningu við ástinni. Spennandi bók fyrir unglinga Íslensku dýrin mín er íslensk ljósmyndabók fyrir börn. Þar er að finna fjölbreyttar ljósmyndir af íslenskum dýr- um sem Pálína Hraundal ljósmyndari á heiðurinn af, en hún ferðaðist um landið sérstaklega til að taka myndir í bókina. Dýraheitin í bókinni eru bæði á íslensku og ensku, meðal annars til að ná til barna sem búa erlendis og fyrir útlendinga sem vilja kynna sér heiti íslenskra dýra. Ljósmyndabók um íslensku dýrin * Ekki búast við neinu. Lifðu áundrun þinni. Alice Walker BÓKSALA 4.-10. NÓVEMBER Allar bækur Listinn er tekinn saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda 1 SkuggasundArnaldur Indriðason 2 Vísindabók VillaVilhelm Anton Jónsson 3 LKL2: lágkolvetnalífsstíllinnGunnar Már Sigfússon 4 DísusagaVigdís Grímsdóttir 5 VettlingaprjónGuðrún S. Magnúsdóttir 6 PrjónabiblíanGréta Sörensen 7 Amma glæponDavid Walliams 8 AfmælisveislubókinKristín Eik Gústafsdóttir ritst. 9 NaglaskrautDonne Geer / Ginny Geer 10 GrimmdStefán Máni Íslensk skáldverk 1 SkuggasundArnaldur Indriðason 2 DísusagaVigdís Grímsdóttir 3 GrimmdStefán Máni 4 Glæpurinn ástarsagaÁrni Þórarinsson 5 MánasteinnSjón 6 Fiskarnir hafa enga fæturJón Kalman Stefánsson 7 SæmdGuðmundur Andri Thorsson 8 My pussy is hungryHugleikur Dagsson 9 PabbinnBjarni Haukur Þórsson 10 Vince Vaughn í skýjunumHalldór Armand Ásgeirsson MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR Grípa skal gæs meðan gefst.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.