Morgunblaðið - 06.12.2013, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2013
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 |www.eirvik.is
KAFFI & TE
Í NESPRESSOVÉLAR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Einn af þeim afþreyingarkostum sem erlendum ferðamönnum og inn-
fæddum stendur til boða í höfuðborginni er útsýnisflug í þyrlu með fyr-
irtækinu Norðurflugi. Ljósmyndari Morgunblaðsins fékk að fljóta með í
gær og fangaði Reykjavík í frostköldum vetrarskrúða á stafræna filmu. Úr
lofti blasir við, auk náttúrufegurðarinnar, mynd af því hvernig borgin vex
og dafnar og teygir anga sína þangað sem rými leyfir.
Sveimað yfir frostkaldri höfuðborginni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Útsýnisflug nýtur vaxandi vinsælda
Tilraun með háhyrningatóngjafa til að smala saman síld í
Kolgrafafirði var framkvæmd í gær. Að sögn Sigmars
Guðbjörnssonar hjá Stjörnu-Odda, sem þróaði hugmynd-
ina, tókst tilraunin vel en ekki verði hægt að nýta tóngjaf-
ann einan og sér til að smala síld í Kolgrafafirði. „Nið-
urstaðan er sú að við notum ekki hljóðbylgjur til þess að
smala fjörðinn […] Við höfum hins vegar áhrif á síldina
umhverfis bátinn í um 30 metra radíus,“ segir Sigmar.
Hann segir það ljóst að ekki verði hægt að nota hljóð-
bylgjurnar til þess að smala síldinni úr firðinum nú. Hins
vegar gefi niðurstöður tilraunarinnar til kynna að mögu-
lega verði hægt að mynda eins konar hljóðbylgjuvegg
nærri brú í Kolgrafafirði til þess að fyrirbyggja að síldin
fari inn í fjörðinn. Til þess að skoða áhrif háhyrnings-
hljóðanna á síldina voru notaðir tveir bátar auk mæli-
tækja. „Við byrjuðum á því að senda út hljóðbylgjur, svo
tekur það smátíma að hafa áhrif á síldina en eftir smá-
tíma var hún alveg horfin fyrir neðan bátinn og í um 30
metra radíus,“ segir Sigmar. Súrefnismettun í Kolgrafa-
firði minnkaði í gær úr 85% niður í 76%. Bjarni Sig-
urbjörnsson, bóndi á Eiði, sagði í samtali við mbl.is í gær
að þetta væri afleiðing kuldans sem nú gengur yfir land-
ið. Miklu frosti er líka spáð í dag. Eins og fram hefur
komið fór súrefnismettun niður í 20% í fyrra þegar síldin
drapst í stórum stíl. Bjarni segir að mettunin geti minnk-
að hratt, sérstaklega ef fjörðinn fari að leggja og því aldr-
ei að vita hvað gerist. vidar@mbl.is
Háhyrningatóngjafi gæti
nýst síðar til forvarnar
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Síldardauði Súrefnismettun hefur minnkað í firðinum.
Nýtist ekki til smölunar nú
Hæstiréttur þyngdi í gær refsingu
yfir 24 ára karlmanni sem réðst
inn til eldri manns á Þórshöfn og
veittist með ofbeldi að honum. Sló
hann manninn, sparkaði í og barði
ítrekað með þungum stól. Mað-
urinn hlaut fjögurra og hálfs árs
fangelsi og var refsingin þyngd
um eitt ár. Maðurinn, Gústaf
Reynir Gylfason, er tengdur fórn-
arlambinu fjölskylduböndum.
Hann sagði að um skyndihugdettu
hefði verið ræða en hana mætti
rekja til ætlaðra misgjörða brota-
þola gagnvart móður árás-
armannsins er hún var á barns-
aldri.
Hæstiréttur
þyngdi dóm
Karlmaður um fimmtugt, sem féll
í stiga á skemmtistað við Lauga-
veg um ellefuleytið að kvöldi mið-
vikudags, lést á Landspítalanum í
fyrrinótt, samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu. Lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu var tilkynnt um
slys á veitingahúsi við Laugaveg á
miðvikudagskvöld en þar hafði
maður fallið í stiga og lent á höfð-
inu. Hann var mikið slasaður og
var fluttur með sjúkrabifreið á
Landspítalann í Fossvogi. Friðrik
Smári Björgvinsson yfirlög-
regluþjónn sagði í gær að málið
væri í rannsókn en frekari upplýs-
ingar yrðu ekki veittar að svo
stöddu.
Lést eftir fall
í miðbænum
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Alþýðusamband Íslands sleit í gær
kjaraviðræðum við Samtök at-
vinnulífsins um aðfarasamning þar
sem freista átti þess að auka kaup-
mátt og tryggja litla verðbólgu og
stöðugleika í efnahagsmálum. ASÍ
hafði lagt áherslu á að farin yrði
blönduð leið krónutöluhækkunar
lægstu launa og prósentuhækkun-
ar fyrir aðra, en Samtök atvinnu-
lífsins töldu þann valkost óhæfan.
Þorsteinn Víglundsson, fram-
kvæmdastjóri SA, segir að hug-
myndir ASÍ um launaliðinn hafi
verið á pari við þær hækkanir sem
komu til framkvæmda um síðustu
áramót og að SA hefðu ekki verið
tilbúin til að samþykkja frekara
verðbólguskrið.
„Það er alveg ljóst að þessi að-
ferðafræði sem hefur verið farin
síðastliðin sex ár er komin að endi-
mörkum. Við sjáum að þessar
krónutöluhækkanir, sem eru að
skila 5-6% á lægstu laun, virðast
einfaldlega fara upp allan launa-
stigann, með tilheyrandi aukningu
í verðbólgu,“ segir Þorsteinn.
Hann segir að SA muni í fram-
haldinu setjast niður með aðild-
arfélögum ASÍ en enn sé stefnt að
því að ná samkomulagi um
skammtímasamning.
Djúpstæður ágreiningur
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir að það hafi lengi legið ljóst
fyrir að sambandið vildi fara
blandaða leið og að álitlegur
grunnur hafi verið lagður að við-
ræðum. „Svo kemur bara í ljós í
dag að það er mjög mikill munur á
milli okkar varðandi krónutölu-
hækkanirnar og áhrif þeirra og
hann er einfaldlega svo djúpstæð-
ur að við sjáum engar forsendur til
að halda þessu áfram á þessum
nótum,“ sagði Gylfi í gær.
Hann segir litla prósentuhækk-
un lægstu launa óviðunandi og
hvað varðar áhrif krónutöluhækk-
ana sé það á ábyrgð fyrirtækjanna
að standa við gerða kjarasamn-
inga.
„Áður en við förum að beina
spjótunum að almennum launa-
hækkunum í kjarasamningum
finnst mér lágmarksatriði að fyr-
irtækin fari að vinna eftir kjara-
samningunum,“ segir Gylfi. „Við
getum ekki borið ábyrgð á launa-
skriðinu og við neitum að láta lág-
tekjufólk bera byrðarnar af því,
það kemur bara ekki til greina,“
segir hann.
ASÍ og SA stranda á launaliðnum
Slitnað hefur upp úr kjaraviðræðum á milli ASÍ og SA Blandaða leiðin komin á endastöð, segir
framkvæmdastjóri SA Ófært að láglaunafólk gjaldi fyrir launaskriðið, segir forseti ASÍ
Þorsteinn
Víglundsson
Gylfi
Arnbjörnsson