Morgunblaðið - 06.12.2013, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2013
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Á annan tug íslenskra fyrirtækja
vinnur nú að hönnun og smíði á
tækjum og búnaði í tvo erlenda
frystitogara. Stærsta verkefnið er
unnið í Slippnum á Akureyri, en
það er fiskvinnslulína og búnaður
vinnsludekks og má áætla kostnað
yfir 650 milljónir króna. Verkefnið
skapar mikla vinnu í haust og vet-
ur og er eitt mannaflsfrekasta ein-
staka verkefnið sem Slippurinn
hefur tekið að
sér.
Fiskvinnslu-
vélarnar, flökun-
arvélar og haus-
arar eru
algerlega íslensk
framleiðsla frá
Vélfagi á Ólafs-
firði. Vogir og
flokkarar eru
framleiddir af
Marel.
Skipin eru hvort um sig 16
metrar á breidd og 86 metrar á
lengd og á búnaður í fyrra skipið
að vera tilbúinn í febrúar, en í hitt
skipið næsta vor. Skipin eru ann-
ars vegar smíðuð fyrir UK Fisher-
ies í Bretlandi, sem Samherji á
Akureyri á helming í, og hins veg-
ar fyrir þýskt samstarfsfyrirtæki
Samherja. Heildarbyggingarkostn-
aður við hvort skip er yfir fimm
milljarðar króna, en íslensk fyr-
irtæki koma að verkefnum fyrir
um 1,5 milljarða króna.
Nálarauga samkeppni
varðandi verð og gæði
Kristján Vilhelmsson, útgerðar-
stjóri Samherja, er annar tveggja
verkefnisstjóra og tæknilegra ráð-
gjafa við smíði skipanna. Hann
segist fagna því að stór verkefni
við smíði búnaðar í skip af þessu
tagi skuli vera unnin á Íslandi.
Fyrirtækin hafi þó þurft að fara
í gegnum nálarauga samkeppni
varðandi verð og gæði. Þau hafi
staðið sig vel og hafi því orðið fyr-
ir valinu. „Ég ber ábyrgð gagnvart
erlendum eigendum skipanna en
hika ekki við að eiga viðskipti við
íslensk fyrirtæki þegar í ljós kem-
ur að þau standast algerlega al-
þjóðlega samkeppni. Ég tel okkur
hafa fundið bestu og ódýrustu leið-
ina í þessum búnaði og það er hin
raunverulega ástæða fyrir kaup-
unum,“ segir Kristján.
Gríðarleg samkeppni
Svo stiklað sé á þeim fyrirtækj-
um sem koma að verkefninu þá
voru frystikerfin í bæði skipin
keypt frá Frosti, sem er með höf-
uðstöðvar á Akureyri en starfar
víða um land og erlendis. Frost
framleiðir hluta af búnaðinum og
undirverktakinn Rafeyri teiknar
og framleiðir rafmagnsbúnað.
Samningurinn við Frost nemur
um hálfum milljarði og segir
Kristján að Frost hafi verið í gríð-
arlegri samkeppni við alþjóðleg
stórfyrirtæki og staðið uppi sem
sigurvegari. Þeir séu líka þekktir
að góðri frammistöðu á erlendri
grundu.
Kristján nefnir sem dæmi að há-
þrýstiþvottakerfi hafi verið keypt
af fyrirtækinu Skaginn. Það sé í
sjálfu sér ekki stór liður í heild-
armyndinni, en í ljós hafi komið
sterk staða Skagans hvað varðar
gæði og samkeppnishæfni.
Siglingatæki í brú og rafeinda-
pakki er keypt af fyrirtækinu
Brimrún í Reykjavík sem nýtur
góðs af samvinnu við önnur öflug
fyrirtæki á rafeindasviði. Mikið af
þeim búnaði er flutt inn, en mikil
tækni- og teiknivinna er unnin hér
á landi. Kostnaður við þennan
verkþátt nemur yfir 100 milljón-
um.
Góð framleiðsla
Fyrirtækið Naust Marine í
Hafnarfirði er undirverktaki hjá
spænsku fyrirtæki, sem framleiðir
togvindur og spilbúnað í skipin.
Naust Marine hannar og setur
saman stjórntæki spilkerfanna og
rafmagnsbúnað. Í um 100 skipum
víða um heim er að finna stýribún-
að fyrir rafknúnar vindur frá
Naust Marine.
„Öll þessi fyrirtæki eru sam-
keppnishæf og með góða fram-
leiðslu. Þess vegna eru þessi verk-
efni í gangi hér á landi,“ segir
Kristján Vilhelmsson.
Sterk fyrirtæki og samkeppnishæf
„Hika ekki við að eiga viðskipti við íslensk fyrirtæki þegar í ljós kemur að þau standast algerlega
alþjóðlega samkeppni,“ segir Kristján Vilhelmsson, ráðgjafi við smíði tveggja frystiskipa í Tyrklandi
Morgunblaðið/Rósa Braga
Naust Marine Hjá þessu 20 ára fyrirtæki, sem er með höfuðstöðvar í Hafnarfirði, starfa um 20 manns og hafa þeir
flestir komið á einn eða annan hátt að sölu, hönnun og samsetningu stjórntækja fyrir vindur togaranna tveggja.
Um allt land
» Meðal fyrirtækja sem vinna í
verkefnum sem tengjast smíði
skipanna í Tyrklandi eru Slipp-
urinn á Akureyri, Vélfag á
Ólafsfirði, Marel, Frost, Raf-
eyri, Skaginn, Brimrún, Nortek,
Naust Marine, Sérefni og mörg
önnur fyrirtæki og birgjar.
Kristján
Vilhelmsson
Naust Marine er með höfuð-
stöðvar í Hafnarfirði, en starfs-
vettvangur fyrirtækisins er í raun
allur heimurinn. Hjá þessu 20 ára
fyrirtæki starfa um 20 manns og
hafa þeir flestir komið á einn eða
annan hátt að sölu, hönnun og
samsetningu stjórntækja fyrir
vindur togaranna tveggja. Á um
sex mánuðum má reikna með að
að um helmingur starfsmanna hafi
unnið og muni vinna að þessu
verkefni á hverjum tíma. Í hvoru
skipi verða 24 vindur af mismun-
andi stærðum, með togkraft allt
frá 500 kílóum og upp í 60 tonn og
mótorstærðir í samræmi við það.
Í þessu verkefni er um samstarf
að ræða við spænskt fyrirtæki,
sem framleiðir vindurnar og kaupir
mótora í þær. Hönnun vindukerfis-
ins í heild er á hendi Naust Marine
og stjórnkerfin eru samsett og
smíðuð hjá fyrirtækinu. Að niður-
setningu lokinni fara tæknimenn
til Tyrklands til að yfirfara niður-
setningu og tengingar við annan
búnað. Að lokum fara starfsmenn
með skipunum í reynslusiglingu
og veiðarfæraprófanir.
24 vindur verða í hvoru skipi
FLESTIR STARFSMENN NAUST MARINE KOMA AÐ VERKEFNINU
Smíði vinnslulínu og búnaðar á
vinnsludekki frystitogaranna er til
þessa bæði stærsta einstaka verk-
efni Slippsins í krónum talið sem og í
tímafjölda, samkvæmt upplýsingum
Antons Benjamínssonar, fram-
kvæmdastjóra Slippsins á Akureyri.
Hann segir að samtals fari um 25
þúsund klukkustundir í verkið eða
um 145 mannmánuðir og þessar vik-
urnar eru 25 manns eingöngu í
þessu verkefni. Hönnun og teikni-
vinna hófust í fyrravor, en sjálf
smíðin byrjaði í ágúst. Reiknað er
með að smíðavinnu ljúki í lok apríl.
Slippurinn verður með ákveðið eftir-
lit með uppsetningu búnaðarins.
Anton segir að þetta verkefni hafi
á allan hátt afar mikla þýðingu fyrir
fyrirtækið og í því felist um leið
ákveðin viðurkenning. „Þá er nota-
legt og ákveðið öryggi að vita af
svona verkefni sem spannar allan
veturinn því það er oftast sá tími
þegar hvað rólegast er í hefðbundnu
skipaviðhaldi,“ segir Anton.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Slippurinn Um 25 manns vinna þessar vikurnar við smíði vinnslulínu.
Mikilvægt verkefni
og viðurkenning
Starfsmenn Slippsins vinna í 25 þús-
und klukkutíma við smíði vinnslulínu