Morgunblaðið - 06.12.2013, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2013
„Sumir segja að jólin byrji ekki fyrr
en þeir koma í Ásgarð ,“ segir Ósk-
ar Albertsson talsmaður hand-
verksverkstæðisins Ásgarðs sem er
í kvosinni í Mosfellsbæ. Árlegur
jólamarkaður og kaffisala Ásgarðs
verður laugardaginn 7. desember á
milli klukkan 12 og 17.
Að sögn Óskars verður þar hægt
að festa kaup á leikföngum og öðr-
um munum og ýmsar kræsingar
verða á boðstólum, sem eru frá hin-
um ýmsu velunnurum Ásgarðs.
„Við eigum svo marga vini,“ segir
Óskar. Hann hvetur fólk til að
mæta tímanlega, því brögð hafi
verið að því að örtröð hafi myndast.
„T.d. komu Diddú og Egill Ólafs
eitt árið og ætluðu að syngja fyrir
okkur. En þau komust varla inn,
það var svo mikið af fólki.“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Jólastemning Óskar segir að á jólamark-
aðnum í Ásgarði verði m.a. seld leikföng.
Jólin byrja á jóla-
markaði Ásgarðs
Hollvinafélag Menntaskólans í
Reykjavík var stofnað á fullveld-
isdaginn, 1. desember sl. Tilgangur
félagsins er að efla tengsl fyrrver-
andi nemenda skólans og þeirra
sem bera hag hans fyrir brjósti og
styðja við uppbyggingu skólans.
Formaður stjórnar félagsins er
Benedikt Jóhannesson útgefandi.
Allir sem hafa útskrifast frá MR
geta sjálfkrafa orðið félagar í Holl-
vinafélaginu óski þeir þess og geta
aðrir sótt um inngöngu til stjórnar,
segir í tilkynningu.
Á stofnfundi félagsins var sam-
þykkt að skora á Alþingi að tryggja
skólanum viðunandi fjárframlög í
yfirstandandi meðferð fjárlaga. Óá-
sættanlegt sé að MR fái lægri fram-
lög en sambærilegir skólar.
Hollvinafélag MR
skal efla tengslin
Á fundi bæjarráðs Akureyrar í gær
var samþykkt að falla frá fyrirhug-
aðri hækkun á vistunargjöldum í
leikskólum og gjöldum vegna fé-
lagsþjónustu sem koma áttu til
framkvæmda um áramót. Með
þessu vill bæjarráð leggja lóð sitt á
vogarskálarnar til að stemma stigu
við verðbólgu og vinna að stöðug-
leika. Bæjarráð vekur athygli á því
að hér eftir sem hingað til verða
ekki innheimt gjöld fyrir strætis-
vagnaferðir, bókasafnsskírteini og
bifreiðastæði í miðbænum.
Gjöld hækka ekki
STUTT
VIÐTAL
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður
VG og fjármálaráðherra lungann af
síðasta kjörtímabili, telur boðaða
skuldaleiðréttingu líklega til að valda
mörgum vonbrigðum.
„Hvað varðar málið í heild sinni er
ljóst að þetta er komið niður í svona
einn þriðja til einn fjórða af því sem
Framsóknarflokkurinn lofaði fyrir
kosningar. Við erum að tala um 80
milljarða lækkun höfuðstóls, eða 80
milljarða kostnað ríkisins … Þannig
að þetta er einn
þriðji til einn
fjórði af þessum
240 til 300 millj-
örðum sem svifu í
loftinu fyrir kosn-
ingar,“ segir
Steingrímur og
bætir því við að
ekki sé ljóst af
lestri skýrslu leið-
réttingahópsins
hvort „t.d. vextir
og verðbætur á leiðréttingarhluta
lánanna eiga að dragast frá þeirri
tölu“. Þetta skipti máli enda séu vext-
ir og verðbætur á leiðréttingahlutan-
um umtalsverð fjárhæð á fjórum ár-
um. Dragist þeir frá 80 milljörðunum
verði raunveruleg lækkun höfuðstóls
e.t.v. „ekki nema 72-73 milljarðar“.
Dregur 70 milljarðana frá
„Í öðru lagi er óhjákvæmilegt að
benda á að ábyrgðin og áhættan af
þessari aðgerð er öll hjá ríkinu og það
liggur fyrir að tengt þessum aðgerð-
um verður umtalsverður kostnaður,
eða tekjutap, sem lendir á ríki og
sveitarfélögum … Ég tel þann hluta
ekki með, í skilningi loforðanna,
vegna þess að auðvitað er það ekki
hluti þess sem lofað var að leyfa fólki
að nota sína eigin peninga til að greiða
niður sín eigin lán,“ segir hann og vís-
ar til áætlaðra 70 milljarða niður-
greiðslna höfuðstóls vegna úttekta
séreignarsparnaðar.
„Í þriðja lagi er það auðvitað veru-
leg breyting á því sem rætt var fyrir
kosningar að í staðinn fyrir einhverja
ótilgreinda, vonda erlenda
hrægammasjóði, sem áttu að borga
þetta allt saman beint, þá gengst ríkið
í ábyrgð fyrir aðgerðinni.
Eftir stendur hjá mér að ég hef
auðvitað mínar efasemdir um að þetta
sé skilvirkasta leiðin til að aðstoða það
fólk sem er í mestum erfiðleikum enn
þá með verðtryggð lán.
Við höfðum jú bent á hópinn sem
tók lánin á óhagstæðasta tíma og al-
veg sérstaklega þá sem keyptu sína
fyrstu íbúð. Þannig að það hljóta að
koma upp ýmis sjónarmið í því hvern-
ig er skilvirkast að ráðstafa skatt-
tekjum ríkisins, þótt þeirra sé sér-
staklega aflað inn í þetta viðfangsefni.
Mér sýnist að félagslegi svipurinn á
þessum aðgerðum sé píramídi á
hvolfi. Það er alveg ljóst að tekjulágt
fólk og fólk sem ekki átti neinar aðrar
eignir, og fékk því fullt út úr 110%-
aðgerðinni, fær lítið eða ekkert úr
þessari umferð. En þeir sem ýttust úr
henni, vegna þess að þeir voru mun
betur settir, fá hins vegar kannski
óskerta niðurfærslu núna … Því mið-
ur óttast ég að margir sem áfram eru
í verulegum vanda fái litla úrlausn.“
– Við þingsetningu í október 2010
kröfðust þúsundir aðgerða í skulda-
málum. Hefði síðasta ríkisstjórn get-
að gert meira fyrir skuldug heimili?
Ríkið þoldi ekki meiri byrðar
„Við töldum allavega að það væri
ekki hægt að leggja meiri byrðar á
ríkið. Við tókum umtalsverðan kostn-
að á ríkið til að aðstoða fólk sem var í
mestum erfiðleikum. Við gerðum það
í gegnum verulega hækkun vaxta-
bóta. Á endanum borgaði ríkið
stærsta hlutann af sérstöku vaxta-
niðurgreiðslunni. Við þurftum að
setja umtalsverða fjármuni inn í
Íbúðalánasjóð, vegna 110%-leiðarinn-
ar og til að mæta afskriftum og töpum
sem lentu á honum almennt. Það voru
náttúrlega víðtækar og margþættar
aðgerðir í gangi sem menn gera nú
ágætlega grein fyrir og kannast nú
við þegar þær eru notaðar til frá-
dráttar á þessum tillögum núverandi
stjórnvalda.“
– Mun þetta hafa pólitísk áhrif?
„Já. Þetta er auðvitað stórt mál í
pólitískri umræðu. Annars vegar
snýst þetta auðvitað um það sérstak-
lega hvað Framsóknarflokkurinn
fékk mikla fylgisaukningu í síðustu
kosningu. Það hefur pólitísk áhrif
þegar frá líður og það verður metið
hvort hann hafi a.m.k. að einhverju
litlu leyti staðið við sín loforð.“
Sjá lengri útgáfu á mbl.is í dag.
Leiðrétting gerir lítið
fyrir þá verst settu
Þingmaður VG hefur efasemdir um boðaðar aðgerðir
Morgunblaðið/Ómar
Þingholtin Mörg heimili lentu í erfiðleikum með íbúðalán eftir hrunið.
Steingrímur J.
Sigfússon
Skeifan 2 • Sími 530 5900 • www.poulsen.is
Bílalakk
Blöndum alla bílaliti
og setjum á spreybrúsa
Bjóðum uppá
heildarlausnir
í bílamálun
frá DuPont og
getum blandað
liti fyrir allar
gerðir farartækja
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík
Sími 567 4840
www.bilo.is | bilo@bilo.is
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík
Sími 580 8900 | bilalind.is
Vantar alltaf
fleiri bíla á skrá!
Fylgstu með okkur á facebook
Fylgstu með okkur á facebook
MIKIL SALA
VOLVO S40 1,6 16v
03/2007, ekinn 139 Þ.km,
beinskiptur. Verð 1.980.000.
Raðnr.310982
- Er á staðnum!
TOYOTA Corolla Verso
7manna. Árgerð 2005, ekinn
145 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur.
Verð 1.490.000. Allt að 75% lán.
Rnr.410692. Rnr.400234
LANDROVERDEFENDER
110 TDS STORMSTW
01/2005, ekinn 150 Þ.km,
dísel, 5 gíra. Verð 3.290.000.
Raðnr.311088
BMW3318i.
Árgerð 2004, ekinn 104 Þ.KM,
bensín, sjálfskiptur. Skipti á 4x4
dýrari koma til greina.
Verð 1.590.000. Rnr.400207.