Morgunblaðið - 06.12.2013, Page 25

Morgunblaðið - 06.12.2013, Page 25
BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Hlutafjárútboð N1, sem er stærsta olíufélag lands- ins og stefnt er að því að skrá í Kauphöll 19. desem- ber, hefst í dag og lýkur á mánudag. Stærstu hlut- hafar félagsins, Framtakssjóður Íslands og Íslandsbanki, bjóða um 25-28% hlut til sölu. Mark- aðsverðmæti N1 er 13,5-15,3 milljarðar króna mið- að við verðbilið í útboðinu. Fyrir söluna á Framtakssjóðurinn 35,9% hlut og Íslandsbanki 17,4%. Framtakssjóðurinn gerir ráð fyrir að eiga 20,9% í N1 eftir útboðið og Íslands- banki 4,4-7,4% í félaginu. Stefnt er að því að N1 verði arðgreiðslufélag, líkt og tryggingafélögin TM og VÍS og verslunarsam- stæðan Hagar sem fyrir eru í Kauphöll. Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri N1, sagði á fundi VÍB, eignastýringarþjónusta Íslandsbanka, í Hörp- unni í gær að N1 hafi skýra arðgreiðslustefnu og stefnt sé að því að greiða að minnsta kosti 50% af hagnaði hvers árs í arð. Fyrirtækið sé skuldlítið með yfir 50% eiginfjárhlutfall en stefnt sé á að það verði um 40% til lengri tíma litið. Mikil umframeftirspurn hefur verið eftir hluta- bréfum í undanförnum útboðum í aðdraganda skráningar á markað. Í síðustu tveimur hlutafjár- útboðum hjá tryggingafélögunum VÍS og TM skráðu íslenskir fjárfestar sig fyrir kaupum á bréf- um í félögunum fyrir meira en fimm hundruð millj- arða króna. Markaðsvirði hlutafjárins sem fjárfest- um stóð síðan til boða að kaupa nam hins vegar aðeins tæplega nítján milljörðum króna. Ljóst er að umframeftirspurn eftir kaupum á hlutabréfum end- urspeglar á engan hátt raunverulegan áhuga fjár- festa á félögunum. Fjárfestar brugðust við með þessum hætti því þeir bjuggust við mikilli umframeftirspurn sem hef- ur í för með sér að hver og einn fær minni hlut í fyr- irtækinu en hann óskaði eftir, og með það í huga er boðið í mun stærri bita af kökunni en þeir ætla sér. Á fundi VÍB í Hörpunni var spurt hvort umsjón- araðili útboðsins gengi úr skugga um hvort þeir sem bjóða í útboðinu hefðu bolmagn til að greiða fyrir þá hluti sem þeir skrá sig fyrir. Eggert Bene- dikt sagði að gert sé ráð fyrir tveimur dögum þar sem umsjónaraðili fari yfir þau boð sem hafi kom- ið og fái ráðrúm til til að skoða fjárfestingargetu bjóðenda. Fjármálaeftirlitið sendi frá sér tilkynningu í ágúst og benti fjárfestum á að áskriftir þeirra væru bindandi og útgefandi gæti krafist fullra efnda á þeim skuldbindingum sem fólgnar væru í áskriftinni. N1 verði arðgreiðslufélag Morgunblaðið/Golli Arður Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri N1, segir að félagið hafi skýra arðgreiðslustefnu.  Hlutafjárútboð N1 í aðdraganda skráningar í Kauphöll hefst í dag og lýkur á mánudag  Mikil um- frameftirspurn hefur verið eftir hlutabréfum í útboðum  Endurspeglar ekki raunverulega eftirspurn FRÉTTIR 25Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2013 „Ég auglýsi eftir kjölfestufjár- festum. Finnst þá vanta í ís- lenskt atvinnulíf,“ sagði Katrín Olga Jóhannsdóttir, stjórnar- formaður Já upplýsingaveitna, á fundi VÍB í gær. „Það er sterkara fyrir félag að hafa kjölfestufjárfesti. Það skapar meiri stefnufestu. Að því sögðu, skiptir miklu máli að hafa marga hluthafa sem vaka yfir kjölfestufjárfestinum. Þessi blanda, eins og lagt er upp með hjá flestum félögum í dag, er nokkuð góð,“ sagði hún. Lífeyrissjóðir eru áberandi á hlut- hafalistum íslenskra fyrirtækja. Hún spurði: Eru lífeyr- issjóðir kjölfestufjár- festar? Sem sagt virk- ir í stjórn en ekki hlutlausir stjórnendur? Kallar eftir kjölfestu KJÖLFESTUFJÁRFESTAR Katrín Olga Jóhannsdóttir LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 | SPÖNGIN GRAFARVOGI - SÍMI 577 1660 Hálsmen 10.800 kr. Eyrnalokkar 10.800 kr. Eyrnalokkar 12.700 kr. Eyrnalokkar 4.900 kr. Eyrnalokkar 17.700 kr. Eyrnalokkar 17.000 kr. Eyrnalokkar 4.500 kr. Eyrnalokkar 7.500 kr. Hálsmen 5.700 kr. Hálsmen 6.300 kr. Hálsmen 13.000 kr. Hálsmen 5.600 kr.Hálsmen 5.800 kr. Gjafir sem gleðja Glæsilegir skartgripir í jólapakkann á frábæru verði. Líttu við og sjáðu úrvalið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.