Morgunblaðið - 06.12.2013, Side 26
26 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2013
Óveður sem gekk yfir norðanverða Evrópu í gær setti
daglegt líf víða úr skorðum og var flug- og lestar-
ferðum víða aflýst af völdum þess. Að minnsta kosti
fjórir eru látnir eða er saknað. Veðrið gekk fyrst yfir
Bretlandseyjar en eins og sjá má á þessari mynd frá
Blackpool var veðurofsinn mikill.
AFP
Stormur gengur yfir Norður-Evrópu
Geislavirku efnin sem stolið var í
Mexíkó á mánudag fundust á mið-
vikudaginn. Þau fundust á víðavangi
og höfðu þau verið tekin úr stál-
styrktum trékössum sem þau voru í.
Að mati geislavarnastofnunar
Mexíkó eru engar líkur á að þjóf-
arnir komist lífs af, ef þeir eru ekki
nú þegar látnir. Lítill almannahætta
er hins vegar talin stafa af efninu,
cobalt-60, þar sem svæðið sem það
fannst á er afar strjálbýlt.
Enn liggur ekkert fyrir um hver
stal efnunum en flutningabíl sem
flutti þau frá sjúkrahúsi í geymslu
fyrir geislavirkan úrgang var stolið.
Svo virðist sem að þjófarnir hafi að-
eins ásælst bifreiðina og ekki vitað
um farminn, að sögn embættis-
manna.
Rannsókn mun fara fram á atvik-
inu en flutningafyrirtækið hefur leg-
ið undir gagnrýni þar sem hvorki
var staðsetningarbúnaður í bílnum
né nægileg öryggisgæsla.
Þjófarnir
er líklega
látnir
Búið að finna
geislavirku efnin
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Svíar hafa leikið lykilhlutverk í að njósna um
Rússland og þarlenda leiðtoga fyrir Bandaríkin.
Þessu greindi sænska ríkissjónvarpið SVT frá í
gær og vísaði í skjöl frá þjóðaröryggisstofnuninni
NSA sem bandaríski uppljóstrarinn Edward
Snowden lak fyrr á þessu ári. Stöðin fékk aðgang
að gögnunum hjá bandaríska blaðamanninum
Glenn Greenwald sem hefur skrifað mikið upp úr
gögnunum í breska blaðið The Guardian.
Í skjalinu sem um ræðir kemur fram að sænsk
stofnun, FRA, sem heyrir undir varnarmálaráðu-
neytið og hefur heimild til að fylgjast með rafræn-
um samskiptum til að meta „ytri hættu“ sem
steðjar að landinu, hafi lagt NSA lið við njósnir um
Rússa. Í skjölunum kemur fram að NSA meti
framlag Svía sem „einstakt“ og að þeir séu „leið-
andi samstarfsaðilar“ í njósnunum.
Gefa ekki upp samstarfsaðila sína
„Almennt talað eigum við í alþjóðlegu samstarfi
við fjölda landa, sem á sér stoð í sænskum lögum,
en við tjáum okkur ekki um það með hvaða löndum
við vinnum,“ sagði Anni Bolenius, yfirmaður sam-
skiptasviðs FRA, þegar hún var innt eftir við-
brögðum við uppljóstruninni.
Á öðrum stað í gögnunum sem Snowden lak
kemur fram að háttsettum starfsmönnum NSA
hafi verið sagt að „þakka Svíþjóð fyrir áframhald-
andi vinnu landsins við rússnesk skotmörk og að
leggja áherslu á það lykilhlutverk sem FRA leikur
sem leiðandi samstarfsaðili um rússnesk skot-
mörk, þar á meðal rússneska leiðtoga […] og […]
gagnnjósnum“ að því er segir þar orðrétt.
Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, sagði í
gær að hann teldi uppljóstranirnar ekki koma til
með að hafa nokkur áhrif á samskipti Rússa og
Svía. Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um
njósnirnar.
Engin viðbrögð frá Rússum eins og er
Engin viðbrögð bárust strax frá rússneskum
stjórnvöldum en SVT hafði það eftir talsmanni
rússneska sendiráðsins í Stokkhólmi að þau fylgd-
ust grannt með framvindu málsins.
Sven Hirdman, fv. sendiherra Svía í Moskvu,
segir að njósnir Svía séu „gamlar fréttir“ fyrir
rússneskum stjórnvöldum og býst ekki við að
harðra viðbragða sé að vænta frá þeim.
Fram kom á vef SVT í gær að frekari uppljóstr-
ana væri að vænta um aðild sænskra yfirvalda að
njósnum.
Sænsk stofnun vann með NSA
Njósnaði um Rússland Ekki talið hafa áhrif á samskipti landanna tveggja
DNA-sýni úr
frummönnum
sem vísindamenn
hafa nýlega
fundið gefa vís-
bendingar um að
enn eigi eftir að
finna ummerki
um fjölda mann-
tegunda sem
dóu út.
Sýnin eru þau
elstu sem fundist hafa um líf-
fræðilega sögu mannkynsins en
þau fundust í steingerðu lærbeini
á Spáni. Þau eru um 400.000 ára
gömul en þau elstu sem áður
höfðu fundust voru um 100.000
ára. Vísindamenn höfðu talið að
beinið tilheyrði forvera Neander-
dalsmannsins en DNA-rannsókn
leiddi í ljós að því svipar meira til
ættkvíslar frummanna sem nefnist
Denisova.
Áður hafði verið talið að Den-
isova-ættkvíslin hefði aðeins verið
í austri, Síberíu og Asíu, en Nean-
derdalsmenn hefðu byggt Evrópu.
Í kjölfar þessa nýja fundar hafa
vísindamennirnir því þurft að
hugsa þróunarsögu mannsins upp
á nýtt.
Breytir hugmyndum
um þróunarsöguna
Höfuðkúpa Nean-
derdalsmanns
MANNFRÆÐI
Bandaríska þjóðaröryggisstofn-
unin NSA safnar um fimm millj-
örðum færslna á degi hverjum
um staðsetningar farsíma um
allan heim. Bandaríska blaðið
The Washington Post greindi
frá þessu á miðvikudag og vís-
aði í skjölin sem Snowden lak.
Gögnin fara í gagnabanka
sem geyma staðsetningar
hundraða milljóna farsíma. Með
þessu móti geta starfsmenn
NSA fylgst með ferðum fjölda
fólks til að afla upplýsinga um
grunaða menn og hugsanlega
vitorðsmenn þeirra.
Fylgjast með
símunum
NSA-NJÓSNIR
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 12, föstudaginn 20. desember
Morgunblaðið gefur út glæsilegt
sérblað umHeilsu og lífsstíl
föstudaginn 3. janúar
Í blaðinu Heilsa og
lífsstíll verður kynnt
fullt af þeim mögu-
leikum sem í boði eru
fyrir þá sem stefna á
heilsuátak og bættan
lífsstíl á nýju ári
Heilsa & lífsstíll