Morgunblaðið - 06.12.2013, Blaðsíða 27
FRÉTTIR 27Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2013
V
HAPPDRÆTTI!
Poolborð í
vinning.
Allir sem kaupa
Milwaukee vél
fá að setja nafn
sitt í pottinn.
Dregið verður 28. febrúar 2014.
Poolborðið
afhendist eins
og myndin sýnir
með fylgihlutum.
HLEÐSLUFJÖLNOTAVÉL
TILBOÐ
KR. 79.900,-
TILBOÐ
KR. 59.900,-
C12 MT-32B
Mótor: 12 Volt
Haldari: Allar gerðir
Vinnuhraðar: 5.000-20.000
Rafhl: 2x3,0 Ah Li-ion
Þyngd: 1,0 Kg
MW 4933 4271 77
HLEÐSLUSLÍPIROKKUR
HD 18 AG 115 402C
Hleðsluslípirokkur
Rafhlöður: 2 x 4.0 Li-ion
Skífur: 115mm
Sn/mín: 9000
Þyngd: 2,4 Kg
M
Síðumúla 11 - 108 Reykjavík
Sími 568-6899. Heimasíða: www.vfs.is
TILBOÐ
KR. 19.900,-
W 4933 4413 00
HLEÐSLUHÖGGBORVÉL
M12 BPD-202C
Mótor: 12 Volt
Patróna: 10 mm
Sn/mín: 0-400/0-1.500
Rafhl: 2x2,0 Ah Li-ion
Þyngd: 1,2 Kg
MW 4933 4419 40
SLÍPIROKKUR
AG 750-125
Mótor: 750 W
Skífur: 125mm
Sn/mín: 10.000
Þyngd: 1,8 Kg
MW 4933 4191 80
TILBOÐ
KR. 16.900,-
HLEÐSLUHÖGGBORVÉL
M12 CPD-402C
Mótor: 12 Volt
Patróna: 13 mm
Sn/mín: 0-450/0-1.700
Rafhl: 2x4,0 Ah Li-ion
Þyngd: 1,5 Kg
MW 4933 4403 75
TILBOÐ
KR. 59.900,-
TILBOÐ
KR. 44.900,-
SLÍPIROKKUR
AG 10 - 125
Mótor: 1000W
Skífur: 125mm
Sn/mín: 11.000
Þyngd: 2,1 Kg
MW 4933 4403 30
HLEÐSLUVÉLASETT Í TÖSKU
M12 BPP2D
Hleðsluborvél M12 CPD-402C
Hleðslufjölnotnavél C12 MT-32B
Rafhl: 2x4,0 Ah Li-ion
MW 4933 4412 50
ÚTVARP 12 Volt
C12 JSR-0
Spenna: 12 Volt / 22
Afl: 10 Wött
Rafhl: 0 (12 Volt Li
Stærð: 267x102x17
MP3 tenging: Já
Þyngd: 1,8 Kg
MW 4933 4163 65
0-240 Volt
-ion)
8
TILBOÐ
KR. 69.900,-
TILBOÐ
KR. 19.900,-
8
LLAB H- A8 P
E PE A
K D
U R
A Æ
W TLI TIM == ===
Nelson Mandela, fyrrverandi forseti
Suður-Afríku, lést í gær, 95 ára að
aldri. Mandela var forseti frá 1994-
1999 og var fyrsti svarti maðurinn til
að gegna því embætti í landinu.
Heilsu hans fór hrakandi undanfarin
ár og var hann lagður inn á spítala í
Pretoríu vegna lungnasýkingar hinn
8. júní sl.
Mandela fæddist 18. júlí 1918 og
fékk þá nafnið Rolihlahla Mandela.
Þegar hann hóf skólagöngu sína gaf
kennslukonan öllum nemendunum
enskt nafn og eftir það var hann allt-
af kallaður Nelson. Mandela var einn
helsti andstæðingur kynþáttaað-
skilnaðarstefnunnar (apartheid), var
í Afríska þjóðarráðinu (ANC) og
barðist fyrir auknum réttindum
blökkumanna, m.a. með því að brjóta
gegn ákvæðum kynþáttalöggjaf-
arinnar, brenna vegabréf sín og fara
í verkföll. Hann var einn stofnenda
herskáu samtakanna Umkhonto we
Sizwe (Spjót þjóðarinnar) sem stóðu
fyrir nokkrum sprengjutilræðum á
opinberar byggingar. Árið 1962 var
hann handtekinn og dæmdur í lífs-
tíðarfangelsi fyrir skipulögð
skemmdarverk og fyrir að ætla að
steypa ríkisstjórninni af stóli.
46664
Mandela sat inni í alls 27 ár.
Lengst af dvaldi hann í fangelsi á
Robben-eyju og þar var hann fangi
númer 46664. Númerið notaði hann
síðar í viðamikilli baráttu gegn al-
næmi. Meðan á afplánuninni stóð var
honum nokkrum sinnum boðið að
verða frjáls maður á ný gegn því skil-
yrði að hann léti af baráttu sinni en
hann neitaði alltaf. Hann sagði að á
meðan aðskilnaðarstefnan væri enn
við lýði væri hann ekki frjálsari utan
veggja fangelsisins en innan þeirra.
Mandela var í hámarksgæslu í
Robben-fangelsinu og sætti illri
meðferð fangavarða. Hann greindist
með berkla og glímdi við veikindi í
lungum æ síðan. Mál Mandela og
barátta hans vakti sífellt meiri at-
hygli og urðu raddir sem kröfðust
þess að hann yrði látinn laus æ há-
værari. Alþjóðlegri herferð var
hrundið af stað og var Mandela
sleppt árið 1990.
Mandela varð formaður ANC, gaf
út ævisögu sína og leiddi samninga-
viðræður við F.W. de Klerk, forseta
hvíta minnihlutans, um að leggja nið-
ur aðskilnaðarstefnuna. Hann og de
Klerk fengu friðarverðlaun Nóbels
árið 1993 en eflaust hefur foreldrum
Mandela þótt hann heldur ólíklegur
til slíks afreks þar sem nafnið Roli-
hlahla, sem honum var gefið við fæð-
ingu, þýðir vandræðagemsi eða frið-
arspillir. Á lífsleiðinni hlaut hann yfir
250 verðlaun.
Í fyrstu lýðræðislegu kosningum
landsins árið 1994 var Mandela kos-
inn forseti, fyrstur blökkumanna.
Hann gegndi embættinu til ársins
1999 og í stjórnartíð hans var stjórn-
arskrá landsins breytt á þann veg að
svartir öðluðust sömu réttindi og
hvítir.
Madiba, faðir þjóðarinnar
Mandela naut mikillar virðingar,
ekki aðeins í Suður-Afríku, heldur
um heim allan. Heimamenn lýstu
honum sem föður þjóðarinnar og
kölluðu hann gjarnan Madiba, sem
er nafn sem Xhosa ættflokkur hans
gaf honum.
Er það mat margra að hann hafi
með framgöngu sinni komið í veg
fyrir að blóðug átök brytust út í Suð-
ur-Afríku eftir að honum var sleppt
úr fangelsi. Hann faðmaði fanga-
verðina sem níddust á honum árum
saman, fyrirgaf höfundum aðskiln-
aðarstefnunnar og bauð m.a. ekkju
eins þeirra í te.
Ástandið var víða eldfimt og hvítir
óttuðust um framtíð sína í landinu
þar sem svartir voru í meirihluta en
Mandela sefaði þjóðina og vann öt-
ullega að því með ríkisstjórninni,
sem eingöngu var skipuð hvítu fólki,
að leggja aðskilnaðarstefnuna niður
og bæta réttindi blökkufólks.
Mandela var þrígiftur og átti sex
börn. Mandela-dagurinn var haldinn
í fyrsta sinn árið 2009 á afmælisdegi
Mandela, 18. júlí. Seinna sama ár
lýstu Sameinuðu þjóðirnar því yfir
að framvegis yrði dagurinn al-
þjóðlegi Nelson Mandela-dagurinn.
Ástkær frelsishetja fallin frá
Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku, lést í gær Talinn hafa komið í veg fyrir blóð-
ug átök Hlaut friðarverðlaun Nóbels „Friðarspillir“ varð faðir þjóðar Virtur um allan heim
EPA
Elskaður Mandela var kallaður Madiba, faðir, af íbúum Suður-Afríku en hann færði ómældar fórnir til þess að
koma á friði og jafnrétti í heimalandi sínu. Hann barðist einnig öttulega gegn fátækt og alnæmi.