Morgunblaðið - 06.12.2013, Qupperneq 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2013
Fáir menn hafa glatt einsmikið þjóð sína og fólk ogHermann Gunnarsson.En gleðin var ekki alltaf
jafnmikil innra. Í nýrri ævisögu
Hermannns, Hemmi Gunn – sonur
þjóðar, sem Orri Páll Ormarsson
hefur skráð, er skýrt dregin upp
mynd af tveimur hliðum Hermanns.
Önnur er Hermann Gunnarsson,
dulur maður og hlédrægur, vand-
aður maður, hinn
æringinn, afreks-
maðurinn breyski,
Hemmi Gunn.
Uppbygging
ævisögunnar er
með þeim hætti að
skrásetjari lætur
Hermann segja
sögu sína í 1. per-
sónu og svo fær
hann kunningja hans og vini til að
tjá sig um hann. Hermann hefur átt
góða vini og kunningja sem kunna að
lesa í persónu hans. Ég nefni sem
dæmi Sigmund Ó. Steinarsson og
Jón H. Karlsson (Ponna) sem tjá sig
um hann á gagnrýninn hátt en þó af
kærleika. Þetta form finnst mér
ganga upp. Við fáum skýra mynd af
Hermanni, íþróttamanninum og
skemmtikraftinum, sigrum hans og
ósigrum, innviðum huga hans, til-
vistarnauð sem tengist fyrst og
fremst einsemd þess sem er ofur-
seldur alkóhólisma.
Raunar er fyrsti hluti ævisög-
unnar sístur. Ég er ekki viss um að
óinnvígðir hafi mikinn áhuga á lýs-
ingum á knattspyrnuleikjum. Það
sem lífgar frásögnina helst eru sög-
ur af hrekkjum Hermanns og sam-
bönd hans við hitt kynið sem virðast
einhvern veginn alltaf fara úr bönd-
unum.
Hermann var örugglega einhver
indælasti maður sinnar kynslóðar.
Það verður lesið út úr umsögnum
manna og vinsældum hans sem fjöl-
miðlamanns. En hann var líka alkó-
hólisti sem aldrei náði almennilega
tökum á lífi sínu. Orri Páll hlífir Her-
manni ekki. Í gegnum lýsingu hans
greinum við brotna sál sem er upp-
full af réttlætingu og leit að ástæð-
um þess að honum tókst aldrei að
lifa því einkalífi sem hann þráði.
Dauði kærustu, tveir persónuleikar,
Hermann og Hemmi, ósanngirni
manna. Einhvern veginn fær maður
það á tilfinninguna að Hermann hafi
aldrei sætt sig við grundvallar-
forsendu þess hversu illa honum
tókst til í einkalífnu, sem sé að alkó-
hólismi hans hafi verið sjúkdómur.
Kannski náði hann þess vegna aldrei
almennilega tökum á lífi sínu. Orra
Páli tekst vel að koma til skila þeim
andstæðum sem brutust um í Her-
manni og að opna augu lesanda fyrir
því hversu alkóhólisminn getur rist
djúpt og stjórnað lífi manna, jafnvel
hjá jafn þekkilegum manni.
Mér þykir vel hafa tekist til við
samningu þessarar bókar þótt efnið
reyni stundum á og hafði ánægju af
lestri hennar. Ævisagan er lipurlega
skrifuð. Sumar sögurnar í henni eru
bráðfyndnar og skemmtilegar þrátt
fyrir alvarlegan undirtón.
Innanmein gleðigjafans
Hemmi Gunn, sonur þjóðar
bbbbn
Morgunblaðið/Eggert
Hermann „Orra Páli tekst vel að koma til skila þeim andstæðum sem brut-
ust um í Hermanni og að opna augu lesanda fyrir því hversu alkóhólisminn
getur rist djúpt og stjórnað lífi manna, jafnvel hjá jafn þekkilegum manni.“
Ævisaga
Skrásetjari Orri Páll Ormarsson.
Sena 2013. 372 bls.
SKAFTI Þ.
HALLDÓRSSON
BÆKUR
Morgunblaðið/Kristinn
Sḱrásetjarinn Orri Páll Ormarsson.
„Náttúran í verkum Camus“ nefnist
málþing sem Stofnun Vigdísar Finn-
bogadóttur stendur fyrir í tilefni
þess að 100 ár eru liðin frá fæðingu
Alberts Camus. Framsögur flytja
Pétur Gunnarsson, Björn Þor-
steinsson, Ásdís R. Magnúsdóttir og
Torfi Tulinius.
Málþingið fer fram í Hann-
esarholti að Grundarstíg 10 í dag
milli kl. 14 og 17. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
Náttúran í verkum Camus
Albert
Camus
„Fjármögnun lista og menningar:
Hvað er til ráða?“ nefnist örráð-
stefna sem haldin verður í dag kl.
15-17 í húsnæði Háskólans á Bifröst
í Reykjavík, að Hverfisgötu 4-6.
Framsögu flytur Kolbrún Halldórs-
dóttir, forseti Bandalags íslenskra
listamanna, og því næst taka við
pallborðsumræður þar sem þátt
taka Grímur Atlason, Hilmar Sig-
urðsson, Ragnhildur Zoëga, Þórunn
Árnadóttir og Magnús Ragnarsson.
Fjármögnun menningar
Kolbrún
Halldórsdóttir
Sigurrós Svava
Ólafsdóttir opnar í
dag, föstudag
klukkan 17, sýningu
í Listasal Mosfells-
bæjar í Kjarna. Sýn-
inguna kallar hún
„Felumyndir /
Camouflage“.
Kveikju sýning-
arinnar má finna í
jólakorti sem lista-
konan og systir
hennar fengu árið
1991 frá afa sínum
og ömmu. Þar var
ekki allt sem sýndist
og sama má segja
um sýninguna; ekki
er allt sem sýnist.
Felumyndir á sýningu í Kjarna
Heystæðan Hluti af einu verka Sigurrósar Svövu.
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is ÓVITAR – „Kraftmikil og litskrúðug sýning.“ JVJ Fréttablaðið
Pollock? (Kassinn)
Fös 6/12 kl. 19:30 13.sýn Sun 8/12 kl. 19:30 21.sýn Sun 15/12 kl. 19:30 25.sýn
Lau 7/12 kl. 19:30 20.sýn Lau 14/12 kl. 19:30 24.sýn
Vel skrifað verk og frábærir karakterar. Aukasýnigar komnar í sölu!
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Fös 6/12 kl. 19:30 56. sýn Fim 2/1 kl. 19:30 60.sýn Fim 23/1 kl. 19:30 63.sýn
Lau 28/12 kl. 19:30 58.sýn Lau 18/1 kl. 19:30 61.sýn
Sun 29/12 kl. 19:30 59.sýn Mið 22/1 kl. 19:30 62.sýn
Leikrit ársins 2013 - fullkomið leikhús.
ÓVITAR (Stóra sviðið)
Lau 7/12 kl. 17:00 Aukas. Sun 29/12 kl. 13:00 22.
sýn
Sun 12/1 kl. 13:00 25.sýn
Sun 8/12 kl. 17:00 18. sýn Mán 30/12 kl. 13:00 23.
sýn
Sun 19/1 kl. 13:00 26.sýn
Lau 28/12 kl. 13:00 21. sýn Sun 5/1 kl. 13:00 24.sýn
Kraftmikil og litskrúðug sýning, þar sem börn á öllum aldri fara á kostum!
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 7/12 kl. 11:00 Lau 14/12 kl. 13:00 Lau 21/12 kl. 13:00
Lau 7/12 kl. 13:00 Lau 14/12 kl. 14:30 Lau 21/12 kl. 14:30
Lau 7/12 kl. 14:30 Sun 15/12 kl. 11:00 Sun 22/12 kl. 11:00
Sun 8/12 kl. 11:00 Sun 15/12 kl. 12:30 Sun 22/12 kl. 12:30
Sun 8/12 kl. 12:30 Sun 15/12 kl. 14:00 aukas. Sun 22/12 kl. 14:00 aukas.
Lau 14/12 kl. 11:00 Lau 21/12 kl. 11:00
Uppselt á allar sýningar - örfá sæti laus á aukasýningum.
Þingkonurnar (Stóra sviðið)
Fim 26/12 kl. 19:30 Frums. Lau 4/1 kl. 19:30 4.sýn Mið 15/1 kl. 19:30 7.sýn
Fös 27/12 kl. 19:30 2.sýn Mið 8/1 kl. 19:30 5.sýn
Fös 3/1 kl. 19:30 3.sýn Fim 9/1 kl. 19:30 6.sýn
Jólafrumsýning Þjóðleikhússins í leikstjórn Benedikts Erlingssonar.
Englar alheimsins (Menningarhúsinu Hofi)
Fös 10/1 kl. 20:00 Lau 11/1 kl. 15:00
Englar alheimsins í menningarhúsinu Hofi á Akureyri í janúar!
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 4/1 kl. 13:30 Lau 11/1 kl. 13:30 Lau 18/1 kl. 13:30
Lau 4/1 kl. 15:00 Lau 11/1 kl. 15:00 Lau 18/1 kl. 15:00
Síðustu sýningar fyrir jól - sýningar hefjast aftur í janúar.
Fetta bretta (Kúlan)
Lau 7/12 kl. 14:00 Lau 14/12 kl. 14:00
Lau 7/12 kl. 15:30 Lau 14/12 kl. 15:30
Ný barnasýning fyrir áhorfendur á aldrinum 6 mánaða til 3ja ára.
Mary Poppins –★★★★★ „Bravó“ – MT, Ftíminn
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Fös 6/12 kl. 19:00 Lau 14/12 kl. 19:00 Lau 28/12 kl. 13:00
Lau 7/12 kl. 13:00 Sun 22/12 kl. 13:00 Sun 29/12 kl. 13:00
Sun 8/12 kl. 13:00 Fim 26/12 kl. 13:00 Fös 3/1 kl. 19:00
Fös 13/12 kl. 19:00 Fös 27/12 kl. 19:00 Lau 4/1 kl. 13:00
Súperkallifragilistikexpíallídósum! Leiksýning á nýjum skala.
Jeppi á Fjalli (Nýja sviðið)
Fös 6/12 kl. 20:00 35.k Lau 14/12 kl. 20:00 39.k Fim 19/12 kl. 20:00
Sun 8/12 kl. 20:00 36.k Sun 15/12 kl. 20:00 40.k Fös 20/12 kl. 20:00
Fim 12/12 kl. 20:00 37.k Þri 17/12 kl. 20:00 Lau 28/12 kl. 20:00
Fös 13/12 kl. 20:00 38.k Mið 18/12 kl. 20:00 Sun 29/12 kl. 20:00
Epískur tónsjónleikur. ATH! Ekki unnt að hleypa inní sal eftir að sýning hefst
Refurinn (Litla sviðið)
Lau 7/12 kl. 20:00 9.k Mið 11/12 kl. 20:00 11.k Sun 22/12 kl. 20:00
Þri 10/12 kl. 20:00 10.k Lau 21/12 kl. 20:00 12.k
Glænýtt verðlaunaverk. Spennuþrungið, reifarakennt og margrætt
Jólahátíð Skoppu og Skrítlu (Nýja sviðið)
Lau 7/12 kl. 11:00 Lau 14/12 kl. 14:30 Sun 22/12 kl. 14:30
Lau 7/12 kl. 13:00 Sun 15/12 kl. 11:00 Sun 22/12 kl. 16:00 aukas
Lau 7/12 kl. 14:30 Sun 15/12 kl. 13:00 Fös 27/12 kl. 13:00
Sun 8/12 kl. 11:00 aukas Sun 15/12 kl. 14:30 Fös 27/12 kl. 14:30
Sun 8/12 kl. 13:00 Lau 21/12 kl. 13:00 Lau 28/12 kl. 13:00
Sun 8/12 kl. 14:30 Lau 21/12 kl. 14:30 Lau 28/12 kl. 14:30
Lau 14/12 kl. 11:00 aukas Lau 21/12 kl. 16:00 aukas Sun 29/12 kl. 13:00
Lau 14/12 kl. 13:00 Sun 22/12 kl. 13:00 Sun 29/12 kl. 14:30 aukas
Bestu vinkonur barnanna koma okkur í hátíðarskap
Fríkirkjan í Reykjavík
8. des. sun. kl. 20:00 Aðventukvöld, fjölbreytt og glæsilegt tónlistarkvöld.
Ræðumenn kvöldsins verða rithöfundurinn Jónína Leósdóttir og séra Hjörtur Magni Jóhannsson.
Fram koma Bjarni Arason, Svavar Knútur, Kristjana Stefánsdóttir, Sönghópur Fríkirkjunnar,
Barnakór Fríkirkjunnar, Tómas R. Einarsson, Matthías Hemstock og Gunnar Gunnarsson sem jafnframt
er organisti kirkjunnar og stjórnandi sönghóps. Álfheiður Björgvinsdóttir er stjórnandi barnakórs.
15. des. sun. kl. 14:00 Guðsþjónusta 3. sunnudagur í aðventu.
22. des. sun. kl. 14:00 Jólatrésskemmtun Fríkirkjunnar í Reykjavík.
Hefst með jólastund í kirkjunni. Síðan haldið upp í Safnaðarheimili og sungið og dansað
í kringum jólatréð með jólasveininum. Kaffi og meðlæti fyrir alla.
22. des. sun. kl. 17:00 Heilunarguðsþjónusta á vegum Sálarrannsóknarfélags Íslands, Fríkirkjunnar
og Kærleikssetursins.
24. des. þri. kl. 18:00 Aftansöngur á aðfangadagskvöldi.
Einsöngur Nathalía Druzin Halldórsdóttir. Sönghópur Fríkirkjunnar syngur jólin inn
og leiðir safnaðarsöng undir stjórn Gunnars Gunnarssonar. Sr. Hjörtur Magni.
24. des. þri. kl. 23:30 Miðnætursamvera á jólanótt.
Páll Óskar og Monika Abendroth ásamt strengjasveit. Sr. Hjörtur Magni, Sönghópur
Fríkirkjunnar ásamt Gunnari Gunnarssyni. Mætið vel tímanlega til að fá góð sæti!
25. des. mið. kl. 14:00 Hátíðarguðsþjónusta á jóladag. Ljósanna hátíð fagnað með rísandi sól.
Egill Ólafsson söngvari syngur og spjallar um tónlistarval sitt. Sr. Hjörtur Magni,
Sönghópur Fríkirkjunnar ásamt Gunnari Gunnarssyni.
31. des. þri. kl. 14:00 Hátíðarguðsþjónusta á dvalar og hjúkrunarheimilinu Grund.
31. des. þri. kl. 17:00 Aftansöngur á Gamlárskvöldi.
Sérstakur gestur Þorleifur Gaukur Davíðsson, munnhörpuleikari.