Morgunblaðið - 21.12.2013, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 21.12.2013, Blaðsíða 53
MENNING 53 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2013 TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Það er ekki einfalt að vera stórpoppari í dag. Jú, það er til heilalaust popp sem er spýtt út af færiböndum án nokkurrar natni eða yfirlegu. En svo erum við með hluti eins Kanye West, Daft Punk og Lady Gaga; popplistamenn sem eru að kikna undan þunga póstmód- ernískra tilvísana og falinna skila- boða og vangaveltum um stöðu samfélagsins. Þessar áherslur eru sjálfsmeðvitaðar en svo stökkva gagnrýnendur og menningarvitar líka á þessa listamenn og toga þetta upp úr þeim – með eða án sam- þykkis! Beyoncé smellpassar í þennan flokk og hún á það sammerkt með áðurnefndum aðilum að auk þess að bera með sér slíka vigt þá selst tón- listin eins og sjóðandi heitar, póst- strúktúralískar lummur. Eins og ég segi, þetta er ekki einfalt. Popp er ekki lengur „bara popp“. Þegar Bítlarnir komu fram á sínum tíma var þetta bara garg í eyrum fræði- og menningarelítunnar en nú líður vart sú vika að ekki komi út bók þar sem sú eðla sveit er krufin í öreind- ir. Óforvarandis En hægan. Við skulum ekki týna okkur í hausaklórshítinni al- veg strax. Förum aðeins í stað- reyndir málsins og tildrög pistils- ins. Beyoncé, sem hefur um árabil verið ein vinsælasta poppstjarna heims, gaf fimmtu plötu sína út óforvarandis þann 13. desember síðastliðinn. Platan, sem er sam- nefnd söngkonunni, var aðeins til í stafrænu formi fram til gærdagsins og aðeins var hægt að nálgast hana í gegnum iTunes. Engu að síður hefur platan nú selst í yfir milljón eintökum á heimsvísu og engin plata hefur selst jafn hratt í sögu fyrirtækisins. Hugsið ykkur, og engin áþreifanleg eintök til staðar (þau fóru í búðir fyrst í gær). Nú hafa allar plötur Beyoncé frá upp- hafi hafnað beint í fyrsta sæti bandaríska Billboard-listans og er hún fyrsta konan sem nær þeim ár- angri. Og svo má telja. Allur þessi árangur hafðist án smáskífna og án hæggengrar upphitunar að hætti Daft Punk t.a.m. Platan er fjórtán laga og eru myndbönd við þau öll (myndböndin eru reyndar alls sautján talsins). Upptökur hófust með mikilli leynd árið 2012 en við sögu koma m.a. Timbaland og Pharell Williams. Tónlistin þykir ögn tilraunakennd- ari og losaralegri en heyra má á fyrri plötum Beyoncé og í textum tekst hún m.a. á við fegurðar- ímyndir, móðureðlið og hugmyndir um kynveruna; allt saman með síð- femínismann sem hún hefur verið kennd við að vopni. Þetta er svo undirstrikað með myndböndunum sem voru tekin upp um heim allan og lögðu leikstjórar á borð við Jo- nas Åkerlund og Hype Williams gjörva hönd á plóg en einnig á hinn umdeildi Terry Richardson eitt myndband. Skemmst frá að segja hefur platan verið ausin lofi og til að gefa eitt dæmi lýsir Kitty Empire hjá Gu- ardian því að Beyoncé hafi skotið samkeppnisaðilum eins og Lady Gaga, Katy Perry og Miley Cyrus rækilega ref fyrir rass með plötu sem beinlínis geisli af öryggi þess sem viti upp á hár hvað hann vilji og einnig hvernig beri að ná því fram. Beyoncé heyrist síðan segja í laginu „Haunted“, líklega til marks um sérkennilegheit útgáfunnar og til að styðja við heilindi hennar sem listamanns: „Soul not for sale. Pro- bably won’t make no money off this. Hin ótrúlega Beyoncé Drottning Beyoncé sannar svo um munar að hinir síðustu verða fyrstir. Oh well.“ Allt í lagi, ég get vel stutt þig í listamannsdæminu Beyoncé, en ég veit að þú ert ekki vitlaus. Þú vissir vel að platan myndi seljast og það vel. Þú gabbar engan hérna. Ósamræmi Þessi þversögn sem ég nefndi hér á undan er ein af mörgum sem lita plötuna. Og sitt sýnist hverjum. Ég gerði það að leik mínum að inna álits á Fésbókinni og ég held að ég hafi aldrei fengið viðlíka viðbrögð og jafn ólík. Sumir afskrifuðu söng- konuna sem drasl í einu orði á með- an aðrir héldu djúpvitrar, fræði- legar tölur um mikilvægi hennar í popplandslagi samtímans. Ólíkt Bítlunum eru Beyoncé og hennar líkar krufin í öreindir um leið, þökk sé miklu og öru aðgengi að miðlum hvers konar í dag. Beyoncé er því umdeild. Til eru femínistar sem fagna henni og aðrir slíkir sem níða hana niður. Eins og snillinga er von og vísa er örðugt að sjá nákvæmlega fyrir hvað hún stendur – og er hún kannski að storka fólki meðvitað með háttsemi sem er í hrópandi ósamræmi, til þess eins að fá það til að hugsa? Eða er ég að ætla henni of mikið hérna? Á dögunum mætti hún t.d. í loðkápu á „vegan“-veitingastað og eðlilega má spyrja, er hægt að gagnrýna út- jaskaðar staðalímyndir kvenna en hagnýta þær um leið? Ég er því miður búinn með plássið í bili, en persónulega finnst mér dásamlegt að geta varla hætt að skrifa um jafn „ódýran“ hlut og popp. Beyoncé er að hjálpa mér í krossferðinni löngu, baráttunni fyr- ir því að dægurtónlist eigi skilið pláss, virðingu og vangaveltur eins og hvert annað mannanna verk. Ég ætla líka að taka afstöðu hér í blá- endann og segja að hvað þessa konu varðar hef ég verið „crazy in love“ frá degi eitt. »Eðlilega máspyrja, er hægt að gagnrýna útjaskaðar staðalímyndir kvenna en hagnýta þær um leið?  Fimmta plata Beyoncé er við það að slá öll sölumet  Alvöru popp bundið heilmikilli hugmyndafræði Sérstakt vefuppboð stendur nú yfir á vef Gallerís Foldar og lýkur því á morgun, 22. desember. Á upp- boðinu eru graf- íkmyndir eftir Kar- ólínu Lárusdóttur og hafa sumar þeirra ekki fengist á Íslandi í nokkur ár, skv. upplýsingum frá galleríinu. Þá eru einnig boðnar upp vatnslitamyndir eftir Karólínu. Slóðin á uppboðsvef gallerís- ins er myndlist.is/ auction/Auction- List.aspx. Verk Karólínu á vefuppboði Foldar Trifle Grafíkverk eftir Karólínu Lárusdóttur. HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS leikhusid.is ÓVITAR – „Kraftmikil og litskrúðug sýning.“ JVJ Fréttablaðið Englar alheimsins (Stóra sviðið) Lau 28/12 kl. 19:30 58.sýn Fim 2/1 kl. 19:30 60.sýn Mið 22/1 kl. 19:30 62.sýn Sun 29/12 kl. 19:30 59.sýn Lau 18/1 kl. 19:30 61.sýn Fim 23/1 kl. 19:30 63.sýn Leikrit ársins 2013 - fullkomið leikhús. ÓVITAR (Stóra sviðið) Lau 28/12 kl. 13:00 21. sýn Mán 30/12 kl. 13:00 23. sýn Sun 12/1 kl. 13:00 25.sýn Sun 29/12 kl. 13:00 22. sýn Sun 5/1 kl. 13:00 24.sýn Sun 19/1 kl. 13:00 26.sýn Kraftmikil og litskrúðug sýning, þar sem börn á öllum aldri fara á kostum! Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið) Lau 21/12 kl. 11:00 Lau 21/12 kl. 14:30 Sun 22/12 kl. 12:30 Lau 21/12 kl. 13:00 Sun 22/12 kl. 11:00 Sun 22/12 kl. 14:00 aukas. Uppselt á allar sýningar! Þingkonurnar (Stóra sviðið) Fim 26/12 kl. 19:30 Frums. Lau 4/1 kl. 19:30 4.sýn Mið 15/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 27/12 kl. 19:30 2.sýn Mið 8/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 3/1 kl. 19:30 3.sýn Fim 9/1 kl. 19:30 6.sýn Jólafrumsýning Þjóðleikhússins í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Englar alheimsins (Menningarhúsinu Hofi) Fös 10/1 kl. 20:00 Lau 11/1 kl. 15:00 Englar alheimsins í menningarhúsinu Hofi á Akureyri í janúar! Karíus og Baktus (Kúlan) Lau 4/1 kl. 13:30 Lau 18/1 kl. 13:30 Lau 4/1 kl. 15:00 Lau 18/1 kl. 15:00 Síðustu sýningar fyrir jól - sýningar hefjast aftur í janúar. Mary Poppins –★★★★★ „Bravó“ – MT, Ftíminn Mary Poppins (Stóra sviðið) Sun 22/12 kl. 13:00 Sun 29/12 kl. 13:00 Sun 12/1 kl. 13:00 Fim 26/12 kl. 13:00 Fös 3/1 kl. 19:00 Fös 17/1 kl. 19:00 Fös 27/12 kl. 19:00 Lau 4/1 kl. 13:00 Lau 28/12 kl. 13:00 Sun 5/1 kl. 13:00 Súperkallifragilistikexpíallídósum! Leiksýning á nýjum skala. Jeppi á Fjalli (Nýja sviðið) Lau 28/12 kl. 20:00 Sun 12/1 kl. 20:00 Gamla bíó Lau 18/1 kl. 20:00 Gamla bíó Sun 29/12 kl. 20:00 Mið 15/1 kl. 20:00 Gamla bíó Sun 19/1 kl. 20:00 Gamla bíó Fös 10/1 kl. 20:00 Gamla bíói Fim 16/1 kl. 20:00 Gamla bíó Lau 11/1 kl. 20:00 Gamla bíó Fös 17/1 kl. 20:00 Gamla bíó Flytur í Gamla bíó í janúar vegna mikilla vinsælda Hamlet (Stóra sviðið) Fös 10/1 kl. 20:00 fors Fim 16/1 kl. 20:00 3.k. Sun 26/1 kl. 20:00 7.k. Lau 11/1 kl. 20:00 frums Lau 18/1 kl. 20:00 4.k. Fös 31/1 kl. 20:00 8.k. Sun 12/1 kl. 20:00 2.k Sun 19/1 kl. 20:00 5.k. Mið 15/1 kl. 20:00 aukas Fim 23/1 kl. 20:00 6.k. Þekktasta leikrit heims Refurinn (Litla sviðið) Lau 21/12 kl. 20:00 12.k Lau 4/1 kl. 20:00 Mið 8/1 kl. 20:00 Sun 22/12 kl. 20:00 Sun 5/1 kl. 20:00 Fim 9/1 kl. 20:00 Glænýtt verðlaunaverk. Spennuþrungið, reifarakennt og margrætt Jólahátíð Skoppu og Skrítlu (Nýja sviðið) Lau 21/12 kl. 13:00 Sun 22/12 kl. 14:30 Lau 28/12 kl. 13:00 Lau 21/12 kl. 14:30 Sun 22/12 kl. 16:00 aukas Lau 28/12 kl. 14:30 Lau 21/12 kl. 16:00 aukas Fös 27/12 kl. 13:00 Sun 29/12 kl. 13:00 Sun 22/12 kl. 13:00 Fös 27/12 kl. 14:30 Sun 29/12 kl. 14:30 lokas Bestu vinkonur barnanna koma okkur í hátíðarskap Hugljúfar gjafir Kimmidoll á Íslandi | Ármúla 38 | Sími 588 5011 MIYUNA „Graceful” My spirit is enduring and captivating Maxi doll 3,990.- Bolli 2,590.-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.