Morgunblaðið - 21.12.2013, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 21.12.2013, Blaðsíða 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2013 ✝ Sigvaldi Jóns-son fæddist 1. júlí 1928 í Svínadal í Kelduhverfi. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Þing- eyinga, Húsavík, 8. desember 2013. Foreldrar hans voru Jón Pálsson, f. 29. ágúst 1900 í Svínadal í Keldu- hverfi, d. 2. mars 1966, og Kristín Sigvaldadóttir, f. 25. október 1906 á Gilsbakka í Öxarfirði, d. 1. desember 1996. Systkini Sigvalda: Áslaug, Páll Þór, Eysteinn, öll látin, og Jó- hann, búsettur í Vestmanna- eyjum. Sigvaldi fluttist með for- eldrum sínum að Þórunnarseli í Kelduhverfi árið 1936. Sigvaldi kvæntist Ásthildi Guðmundsdóttur, f. 1. júlí 1928, 1. júlí 1953 á Reykhólum í Reyk- hólasveit. Ásthildur fæddist í Dufansdal við Arnarfjörð og ólst upp á Eysteinseyri í Tálkna- firði. Börn þeirra eru: 1) Guð- mundur, f. 1954, fyrri eiginkona Álfheiður J. Styrmisdóttir, d. 1977, seinni eiginkona Torfhild- frá Bændaskólanum á Hvann- eyri árið 1950. Fyrir og eftir það, þangað til hann stofnaði heimili, stundaði hann hefð- bundin sveitastörf á búi for- eldra sinna og víðar, auk ým- issa annarra starfa. Sigvaldi og Ásthildur áttu heima á Esjubergi á Kjalarnesi fyrst eftir giftingu, hófu síðan búskap á Hafurbjarnarstöðum á Miðnesi vorið 1954, keyptu Garð I í Kelduhverfi vorið 1955 bjuggu þar til ársins 1977 þegar þau fluttu til Húsavíkur. Sam- hliða búskapnum var Sigvaldi mjólkurbílstjóri í Kelduhverfi og á Tjörnesi í mörg ár og rak síðan um skeið vöruflutningabíl frá Húsavík, auk þess að vera umboðsmaður OLÍS. Eftir það var hann bensínafgreiðslumað- ur og bílstjóri í ígripum í nokk- ur ár. Sigvaldi hafði ánægju af vísnagerð, útskurði og öðru handverki, auk þess að hafa un- un af ferðalögum, góðum sög- um og góðri tónlist. Þá þekkti hann vel til víða um land. Hann átti sæti í landsnefnd hagyrð- inga um skeið og einnig í stjórn Félags eldri borgara á Húsavík. Útför Sigvalda fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag, 21. des- ember 2013, og hefst athöfnin kl. 14. ur Stefánsdóttir, hann á þrjú börn og fimm barna- börn, 2) Kristín, f. 1955, eiginmaður Vilberg R. Jónsson, hún á tvo syni og fimm barnabörn, 3) Páll, f. 1960, fyrri sambýliskona Heiðrún Davíðs- dóttir, seinni sam- býliskona Margret Björk Björgvinsdóttir, hann á tvær dætur og tvö barnabörn, fimm stjúpbörn og sex stjúp- barnabörn, 4) Óskar, f. 1962, eiginkona Linda H. Leifsdóttir, hann á fjögur börn og tvö barnabörn. Stjúpsynir Sigvalda: Bjarni Jónsson, f. 1946, eigin- kona Elín Sigurðardóttir Ham- mer, hann á fjögur börn, sjö barnabörn og eitt barna- barnabarn, og Einar Gunnar Jónsson, f. 1950, d. 1993, eig- inkona Anna G. Halldórsdóttir. Hann á fimm börn og ellefu barnabörn. Fóstursonur Sig- valda: Hjörtur L. Jónsson, f. 1960, eiginkona Sunna Sveins- dóttir, hann á tvo syni. Sigvaldi varð búfræðingur Hvers vegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði.) Þetta gerist allt svo fljótt, allt í einu komið að kveðjustundinni, elsku Valdi bróðir. Þegar við töl- uðum saman í síma í október sl. varst þú frekar óhress. Eiginlega í fyrsta skipti sem ég heyrði þig kvarta. Það setti að manni ónota- legan grun. En við spjölluðum um heima og geima og barst talið að skáldinu góða frá Fagraskógi sem þú dáðir svo mikið. Þá fannst mér röddin þín breytast og létt- ast, hljóma eins og fyrr og þú værir frískur og liði vel. Varla viku eftir þetta samtal fóru að berast dapurlegar og vondar fréttir af heilsufari þínu. Í nóv- ember áttum við þrátt fyrir bágt ástand þitt afar góðar stundir saman, sögustundir. Takk fyrir það. Þegar mamma okkar var jörð- uð í desember 1996 var ég í tvo daga á eftir hjá ykkur Ástu, þá á Uppsalaveginum. Þessir dagar munu aldrei líða mér úr minni. Þetta voru dagar minninga. Nán- ast samfelldar sögustundir langt fram á rauðanætur. Þetta var í raun í fyrsta skipti sem við bræð- ur höfðum fengið svona gott tóm til að tala saman. Frásögur úr þínum ótæmandi minninga- brunni, um atburði sem gerðust löngu fyrir mína tíð og mitt minni. Flest hafði ég ekki heyrt eða hreinlega ekki haft áhuga á að meðtaka á bernsku- og ung- linsárum. Mögnuð var frásögn þín af því þegar þú, varla orðin tvítugur, keyrðir á eigin vörubíl með ullarfarm heiman úr Keldu- hverfi til Reykjavíkur í tveimur áföngum. Seinni áfanginn, nær samfelld keyrsla frá Akureyri, tók hátt í sólarhring. Sumar ár og sprænur á leiðinni óbrúaðar. Já, bílar, litlir bílar, stórir bílar, mjólkurbílar, olíubílar, allar sort- ir af rútum, trukkar, tíu hjóla með keðjur á öllum og svona mætti lengi telja, nær öll bílaflór- an samofin þínu lífi og starfsævi. Svo þegar fór að hægjast um byrjaðir þú að sinna tréskurðin- um af miklu listfengi ásamt því sinna akstri með hópa, farar- stjórn og leiðsögn. Kryddað með vísnagerð og yrkingum. Alltaf virkur, eftirsóttur og ljúfmennsk- an ein. Þar sem þú ert nú, hvar sem það er, þá er þar engin þjáning, engin þreytandi verkur og tak eins og þú orðaðir það um daginn. Það er bara gleði og fjör. Þú ert þarna eldhress í rétta gírnum, ekkert tvíkúpl, engin vandamál. Daufur ilmur af half-and-half. Þarna er samferðafólk þitt hvað- anæva að. Fjöldi vina og kunningja, frændfólk, skólabræður frá Hvanneyri og nú birtast hagyrð- ingarnir hver af öðrum. Andrés Valberg, Hákon Aðalsteins., Sveinbjörn Beinteins. og Elís Kjaran svo örfáir séu nefndir. Það fjúka kviðlingar og snjallar stökur. Allt í einu heyrast harm- onikkutónar, já, það er Friðrik á Halldórsstöðum, stendur fattur með fullkomið vald á stóru nikk- unni og glottir út í annað. Allt í einu er byrjað að syngja. Þið öll systkini mín syngið saman í sátt. Raddaður söngur, þá kemur pabbi okkar og bætist í kórinn. Mamma kemur þarna líka, hlær og vill fara að dansa. Elsku Ásta, nú á þessum dimmu dögum bið ég almættið að hugga og styrkja þig og þína. Jóhann. Valdi stjúpi minn er fallinn frá eftir erfið veikindi og vonandi kominn á góðan stað og laus við þjáningar. Leiðir okkar lágu saman þegar hann giftist mömmu fyrir 60 ár- um og tók þennan fylgifisk með, þannig að okkar kynni eru ekki alveg ný en hafa staðið með mikl- um ágætum þótt oft hafi verið langt á milli okkar. Ég vil þakka Valda fyrir hlýju og velvild í minn garð og fjöl- skyldu minnar. Alltaf var hann tilbúinn að hjálpa, það stendur ef til vill hæst að flytja fólk, bíla og búslóð norður og suður svo eitt- hvað sé nefnt. Ella talar oft um hvað hún hafði gaman af að hlusta á fróðleik hans og ekki síst frá fyrri tíma. Valdi var hæglátur maður, ekki mikið fyrir að segja nei. Hann var handlaginn og þraut- seigur sem sést best á því að hann byggði sér bílskúr þegar hann var kominn um áttrætt og hafði svo vinnuaðstöðu þar. Við Ella erum þakklát fyrir samvistir við hann bæði í Garði og svo þann tíma sem við bjuggum öll á Húsa- vík og einnig þegar þau mamma dvöldu hjá okkur í Kópavoginum. Við Ella samhryggjumst mömmu og systkinum mínum á þessum erfiða tíma. Bjarni og Elín. Eftir langa og farsæla jarðvist lagði tengdafaðir minn, Sigvaldi Jónsson, í sína hinstu för hinn 8. desember sl. Hlýr og glettinn gekk hann lífsbrautina, velviljað- ur sínum samferðamönnum, ávallt tilbúinn að taka á sig krók til að greiða götu náungans. Hag- ur á orð, tré og eiginlega alla hluti. Handtökin fumlaus en af- köstin drjúg. Minnið með ólíkind- um, mundi menn sem hann hafði hitt í svip fyrir áratugum, staði sem hann hafði séð, veður, að- stæður og atburði einstakra daga allt frá barnsaldri. Það er sann- færing mín að flest gengi betur hér á jörð ef fleiri líktust Sig- valda. Honum verður heimkoman ljúf. Mínar bestu þakkir fyrir samfylgdina, greiðvikni, góðvild og skemmtan um nær 40 ára skeið. Ljós og friður fylgi þér. Vilberg. Bragaþing hafa leitt saman vini Jóa í Stapa sl. 24 ár og við nefndum þau í fyrstu hagyrðinga- mót eða jafnvel landsmót hagyrð- inga. Sigvaldi Jónsson kom til liðs á þriðja ári, alla leið vestur í Dali og þeir Guðmundur sonur hans stóðu fyrir mótinu árið eftir og héldu það norður í Skúlagarði 1992. Bragaþingið hlaut sterkt og gott mótunarár hjá þeim Þingey- ingum og hefur búið að því lengi. Þeir Jói og Sigvaldi voru skóla- bræður frá Hvanneyri, endurnýj- uðu forna vináttu til heiðurs Braga en þar eru þó sumir inn- vígðari en aðrir, yrkja margir, sumir njóta en allir tengjast. Sigvaldi var maður alúðar og hlýju, hann skipulagði ekki að- eins mótið í Skúlagarði 1992, sem og mótið í Miðgarði fimm árum síðar ásamt Jóa í Stapa, þau hjón- in tóku þátt í rómaðri Skáleyjar- ferð landsnefndar og fleiri til- tækjum. Hann var í senn traustur leið- togi og þolinmóður félagi en gekk yfir engan mann. Bóndinn úr Kelduhverfinu flutti til Húsavík- ur meðan hann var enn í fullu fjöri, stundaði þar akstur og önn- ur störf og kom um árabil akandi á rútubíl til mótanna með þing- eyska hagyrðinga og vísnavini hvar sem Bragaþingin voru hald- in á landinu. Hann orti líka eina og eina vísu en önnur verkefni hans meðal félaganna voru næg. Hlutskipti hans var að liðsinna, stundum stóð hann í stafni en stundum miðskips. Mikill ávinn- ingur hefur það verið okkur sem Bragaþingin sóttum að fá að kynnast þessum öðlingi. Ingi Heiðmar Jónsson. Sigvaldi Jónsson, Iðavöllum 8, Húsavík, er látinn. Fyrir hönd okkar, núlifandi skólabræðra hans frá Bændaskólanum á Hvanneyri, útskráðir búfræðing- ar vorið 1950, sting ég niður penna til að minnast góðs drengs. Í rúm 60 ár höfum við átt því láni að fagna að vera samtíða Sig- valda og njóta mannkosta hans eftir því sem tími og aðstæður gáfust. Árið 1975 áttum við skóla- bræðurnir frá Hvanneyrarskóla okkar fyrstu samverustund, til að styrkja samband okkar og gera okkur glaðan dag ásamt eigin- konum, og urðu fundirnir ellefu, sá síðasti 2012. Ég get þessa funda vegna þeirrar þátttöku sem Sigvaldi gaf af sér á þeim, meðal annars góður vísnasmiður og söngmaður ágæt- ur ásamt því að vera hvers manns hugljúfi og greiðvikinn með fá- dæmum. Á vissan hátt var hann okkar lífskúnstner. Ég átti þess kost að heimsækja Sigvalda á FSA er hann dvaldi þar í veikindum sínum og rædd- um við um lífið og tilveruna, jafn- framt að veikindi hans gætu tekið slæma stefnu, en við því brást hann á þá lund að sjálfur gæti hann vel við unað þótt hann hefði vistaskipti, það væru að ein- hverju leyti viðbrigði fyrir þá sem næst sér stæðu í sinni fjölskyldu. Þessi viðbrögð voru sannur Sigvaldi að hugsa til fjölskyldu og vina, sem hann gæti ekki lengur greitt götu, sem hans háttur var alla tíð. Við horfum til liðins lífsmunst- urs Sigvalda og kveðjum hann með þessari stöku: Lánsamur og laus við stress ljúfur yrkir syngur ætíð glaður ætíð hress ætíð Þingeyingur. Að lokum þökkum við fé- lagarnir þér góðu kynnin. Ást- hildi Guðmundsdóttur og fjöl- skyldu Sigvalda vottum við dýpstu samúð. Þorgils Gunnlaugsson. Sigvaldi Jónsson HINSTA KVEÐJA Kæri afi minn. Það sem kemur fyrst í hugann þegar ég hugsa til þín er hlátur, pípa, handahlaup, stríðni og gleði. Ég mun sakna þín og geymi ég minningar um þig í hjarta mínu. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið, og þín er liðin æviönn, á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ókunnur) Sólborg. ✝ Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför elsku- legar móður minnar og ömmu okkar, FJÓLU HALLDÓRU HALLDÓRSDÓTTUR, Lönguhlíð 3, Reykjavík, áður Skaftahlíð 4. Sérstakar þakkir til starfsfólks þjónustuíbúðanna í Lönguhlíð 3, starfsfólks á deild 13E á Landspítala við Hringbraut og einnig til Helgu Soffíu Konráðsdóttur prests. Hafdís Ingvarsdóttir, Ingvar Örn Hilmarsson, Svana Fjóla Hilmarsdóttir, Birna Svanhvít Hilmarsdóttir. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ÁGÚSTA GUÐJÓNSDÓTTIR frá Eiríksbakka, Biskupstungum, Ofanleiti 11, Reykjavík, lést þriðjudaginn 17. desember á Landspítala, Háskólasjúkrahúsi. Útför verður auglýst síðar. Ingibjörg Skarphéðinsdóttir, Hafliði Benediktsson, Sigfinna Lóa Skarphéðinsdóttir, Magnús Kristinsson, Danfríður Skarphéðinsdóttir, Kristján Skarphéðinsson, Guðrún B. Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim er vottuðu okkur samúð og vináttu vegna andláts móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐBJARGAR E. SIGVALDADÓTTUR, Gógó. Sérstakar þakkir til starfsfólks 5. hæðar á Skjóli fyrir góða umönnun. Guðrún R. Rafnsdóttir, Tryggvi Kárason, Örn Rafnsson, Þórdís Þórarinsdóttir, Rannveig Rafnsdóttir, Rafn Rafnsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartans þakkir til allra sem sýnt hafa okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför móður okkar og tengdamóður, SIGRÍÐAR HÖLLU EINARSDÓTTUR, Njarðarvöllum 6, Reykjanesbæ. Auður Ingvarsdóttir, Snorri Gestsson, Hildur Ingvarsdóttir, Leifur V. Eiríksson, Björg Ingvarsdóttir, Snæbjörn Sigurðsson, Rósa Ingvarsdóttir, Ólafur Björnsson og fjölskyldur. ÚTFARARÞJÓNUSTA Vönduð og persónuleg þjónusta Sími: 551 7080 & 691 0919 ATHÖFNÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is Inger Steinsson IngerRósÓlafsdóttir ✝ Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐFINNU ERLU JÖRUNDSDÓTTUR, Arahólum 2, Reykjavík. Elín Jónsdóttir, Ólafur Hallgrímsson, Anna Sigríður Jónsdóttir, Jón Ólafur Ólafsson, Jörundur Jónsson, Sigrún Erla Þorleifsdóttir, Þorbjörg Elínóra Jónsdóttir, Árni Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð vegna fráfalls ástríks föður okkar, tengdaföður og afa, STEFÁNS HALLDÓRS HELGASONAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunar- deildarinnar Víðihlíðar, Grindavík, og Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Droplaug G. Stefánsdóttir, Kristinn L. Matthíasson, Margrét Stefánsdóttir, Bjarni Árnason og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.