Morgunblaðið - 21.12.2013, Blaðsíða 14
Tillögur verkefnisstjórnar
um flokkun virkjunarkosta
Að afloknu umsagnarferli um drög að tillögu um
flokkun virkjunarkosta hefur verkefnisstjórn áætlunar
um vernd og orkunýtingu landsvæða útbúið tillögu að
flokkun virkjunarkosta og óskar nú eftir umsögnum
um tillöguna í samræmi við 3. mgr. 10. gr. laga nr.
48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun.
Tillöguna og fylgigögn má nálgast á vef áætlunarinnar,
www.rammaaaetlun.is.
Umsagnarferlið mun standa til miðnættis miðviku-
daginn 19. mars 2014. Umsögnum má skila á net-
fangið rammaaaetlun@rammaaaetlun.is, í bréfapósti
til starfsmanns verkefnisstjórnar, Herdísar Schopka,
í umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1,
IS-101 Reykjavík, eða á vef áætlunarinnar á þar til
gerðum umsagnarvef sem mun verða opnaður í byrjun
mars 2014.
Verkefnisstjórn 3. áfanga áætlunar
um vernd og orkunýtingu landsvæða
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2013
ÚR BÆJARLÍFINU
Karl Ásgeir Sigurgeirsson
Hvammstangi
Á aðventunni blómstrar tónlistin,
sem aldrei fyrr. Tónlistarskóli
Húnaþings vestra heldur fjölmarga
tónleika, enda með starfsstöðvar á
þremur stöðum í héraðinu, á
Hvammstanga, Laugarbakka og
Borðeyri. Skólinn er með yfir 100
nemendur, eða um tíunda hluta hér-
aðsbúa.
Karlakórinn Lóuþrælar hélt
jólatónleika á Borðeyri og Hvamms-
tanga, sem Landsbankinn á
Hvammstanga styrkti og bauð hér-
aðsbúum ókeypis aðgang. Kórinn er
að gefa út geisladisk, sem boðinn
verður til sölu á nýju ári. Kórinn
stefnir að ferð til Ítalíu í sumar, en
hann hefur áður farið í söng- og
menningarferðir til Kanada og Fær-
eyja.
Kirkjukór Hvammstanga varð 70
ára þann 8. des, stofnaður af Sigurði
Birkis, þáverandi söngmálastjóra
þjóðkirkjunnar. Í tilefni afmælisins
bauð kórfélagið núverandi og fyrr-
verandi félögum til veglegs kaffi-
samsætis í safnaðarheimili
Hvammstangakirkju. Kórinn heldur
síðan tónleika í kirkjunni 27. des
með góðum gestum.
Vegamót hringvegar 1 og
Hvammstangabrautar voru upplýst
nú í nóvember. Rætt hefur verið um
þessa framkvæmd um árabil, en
ekki komist á fyrr en nú. Yfir tutt-
ugu ljósastaurar voru settir upp og
lýsa vel þessi fjölförnu gatnamót.
Þetta verður að kalla góða sam-
göngubót, enda er þarna skiptistöð
Strætó fyrir farþega til Hvamms-
tanga og Miðfjarðar. Rarik lagði raf-
streng á svæðið, samtímis því að
taka niður loftlínu frá Laugarbakka
yfir hálsinn til Múla og hluta til
Hvammstanga. Fróðlegt verður að
sjá, hvernig lýsingin kemur út, þeg-
ar slæmar hríðar ganga yfir svæðið.
Það hefur ekki farið fram hjá
Vestur-Húnvetningum að mikið
mannvirki er í byggingu á Miðdeg-
ishól, sem er nýbýli úr landi Lækja-
móta í Víðidal. Þar er í dag orðin
fokheld stórbygging, um 2.700 fer-
metrar, sem verður hestamiðstöð.
Framkvæmdir hófust snemma sl.
sumar og hafa tugir Húnvetninga
haft þarna mikla vinnu, aðallega við
smíðar og jarðvinnu.
Reiðhöllin er um 1.200 fm og
einnig er þarna hesthús, starfs-
mannaaðstaða og þjónustuhús. Þá er
mikið og vandað útisvæði, reiðvöllur
og önnur aðstaða. Tveir smiðir ehf.
eru aðalverktakar við bygginguna,
en hönnun annaðist Ráðbarður sf. á
Hvammstanga. Starfsemi mun hefj-
ast síðar í vetur.
Annatími er nú hjá sauð-
fjárbændum, hrútabókin aðallesning
og spáð og spekúlerað um þau fræði
öll. Almennt eru hrútar settir í
hjörðina nú um 20. des og á þá sauð-
burður að hefjast um 10. maí. Vest-
ur-Húnavatnssýsla telst með bestu
sauðfjárræktarhéruðum landsins og
eru nokkrir bændur hér í topp 20 yf-
ir landið.
Fréttaritari óskar lesendum
Morgunblaðsins gleðilegrar jólahá-
tíðar.
Morgunblaðið/Karl Ásgeir Sigurgeirsson
Reiðhöll Hestamiðstöðin á Miðdegishól er mikið mannvirki sem hefur verið í byggingu frá því snemma í sumar.
Samgöngubót þegar
gatnamót voru upplýst
Kaj Egede, ræðis-
maður Íslands á Græn-
landi, lést í Qaqortoq
11. desember síðast lið-
inn.
Kaj Egede var 62 ára
þegar hann lést. Hann
var fyrrverandi ráðu-
nautur og tilraunastjóri
í landbúnaði á Suður-
Grænlandi og síðar
þingmaður og ráðherra
í grænlensku lands-
stjórninni. Hann hafði
náið samstarf við Ís-
lendinga um margra
ára skeið, meðal annars
við rannsóknir á beitilöndum og
möguleika til landbúnaðar á Suður-
Grænlandi. 1976 samdi Jonathan
Motzfeldt við stjórnvöld á Íslandi
um að Ísland tæki þátt í rannsókn-
um á sauðfjárhögum á
Grænlandi og var Kaj
Egede umsjónarmaður
verkefnisins af Græn-
lands hálfu.
Kaj Egede tók virk-
an þátt í stjórnmálum.
Hann var þingmaður
1991-1995, landbún-
aðarráðherra í lands-
stjórninni 1987-1991
og ráðherra sjávar-
útvegsmála og iðnaðar
1991-1992. Hann var
formaður landbún-
aðarnefndar 1993-
2008. Kaj Egede var
auk þess í bæjarstjórninni í Qaqor-
toq, síðar Kujalleq, frá 2005 og var
stjórnarformaður Tele Grænland
2003-2010. Hann var jarðsettur 18.
desember.
Andlát
Kaj Egede
Hágæða LED
útiseríur
www.grillbudin.is
Frá Svíþjóð
120 ljós
180 ljós
40 ljós
80 ljós
120 ljós
200 ljós
240 ljós
300 ljós
1000 ljós
LED LED
VELD
U
SEM E
NDAS
T
OG Þ
Ú
SPAR
AR
JÓLA
LJÓS
Smiðjuvegi 2, Kópavogi | S. 554 0400 | Opið 11-16 laugardag og 13-16 sunnudag
LED 50 ljós
100 ljós
120 ljós
150 ljós
200 ljós
300 ljós
1000 ljós10 og 20 ljósGamaldags
Komdu og fáðu ráðleggingar
30%
afsl
áttu
r af
jóla
ljós
um
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Útlendingastofnun hefur fyrir hönd
innanríkisráðuneytisins samið við
Reykjavíkurborg um þjónustu við
hælisleitendur og
tekur samningur-
inn gildi í janúar
næstkomandi.
Hann er „liður í
hlutverki stjórn-
valda í að tryggja
þjónustu við hæl-
isleitendur á
meðan mál þeirra
eru til meðferðar
hjá íslenskum
stjórnvöldum,“
segir í tilkynningu frá Reykjavík-
urborg.
Í samningnum er gert ráð fyrir að
borgin taki að sér þjónustu við allt
að 50 hælisleitendur en þjónustan
felst m.a. í húsnæði, framfærslu,
heilbrigðisþjónustu, túlkaþjónustu,
ráðgjöf og tómstundum. Einn annar
samningur af þessu tagi er í gildi,
við Reykjanesbæ, en hann verður
endurnýjaður öðrum hvorum megin
við áramót, að sögn Kristínar Völ-
undardóttur, forstjóra Útlendinga-
stofnunar.
„Við erum bara búin að ganga frá
þessum tveimur samningum en síð-
an hefur Kópavogsbær sýnt áhuga,“
segir Kristín. Viðræður séu þó ekki
hafnar við bæjarfélagið. „Við erum
opin fyrir öllu en þetta er spurning
um framboð og eftirspurn og mín
sýn á þetta er, að ef hælisleitendum
fjölgar þá sé æskilegt að þeim mun
fleiri sveitarfélög komi að þessu,“
segir hún.
Kristín segir að það stefni í að
fjöldi hælisleitenda 2013 verði á
bilinu 170-180. Hún segir að tvö til
fjögur sveitarfélög ættu að geta
sinnt þeim fjölda en endurskoða
þurfi þjónustuþörfina eftir því hve
margir sækja um hæli.
Samningurinn við Reykjavíkur-
borg er öðruvísi upp settur en gamli
samningurinn við Reykjanesbæ,
sem verður endurnýjaður til sam-
ræmis við Reykjavíkursamninginn.
„Þarna erum við að setja inn auknar
skyldur Útlendingastofnunar og
sveitarfélagsins, skýra betur það
sem hefur verið í verklagi hjá okk-
ur. Þetta er betra vinnuplagg,“ seg-
ir Kristín.
Hún segir að enn eigi eftir að
ganga frá því hversu mörgum hæl-
isleitendum Reykjanesbæ verði
skylt að taka við samkvæmt nýja
samningnum en þeir verði líklega á
bilinu 50-70.
Borgin þjónustar
hælisleitendur
Nýr samningur betra vinnuplagg
Kópavogsbær hefur sýnt áhuga
Kristín
Völundardóttir