Morgunblaðið - 30.12.2013, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 3 0. D E S E M B E R 2 0 1 3
302. tölublað 101. árgangur
ÚTTEKT Á
ÓEFNISLEGU TÓN-
LISTARFLÓRUNNI
VEFSÍÐA UM HUNDAHALD GYLFI ÞÓR
ÍÞRÓTTAMAÐUR
ÁRSINS
ALLT UM BESTA VININN Á EINUM STAÐ 10 ÁRIÐ VERIÐ ÆVINTÝRI ÍÞRÓTTIRÍSLENSK TÓNLIST 34-35
ÁRA
STOFNAÐ
1913
Svo virðist sem ekkert lát sé á vinsældum pylsunnar
eða pulsunnar þó svo að matarboð séu víða þessa dag-
ana. Milli hátíða hefur oft verið löng biðröð eftir pylsu í
pylsuvagninum Bæjarins bestu í Tryggvagötu. Þó var
lokað á jóladag. Ferðamenn sem og Íslendingar eru
sólgnir í þennan svokallaða þjóðarrétt.
Ein með öllu svíkur engan
Morgunblaðið/Ómar
Pylsurnar á Bæjarins bestu vinsælar yfir hátíðarnar
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Atvinnuveganefnd Alþingis óskaði
eftir því við Lagastofnun Háskóla
Íslands skömmu fyrir jól að stofn-
unin ynni lögfræðilega álitsgerð á
frumvarpi um kvótasetningu úthafs-
rækju. Búist er við að þeirri vinnu
ljúki undir lok janúarmánaðar og þá
haldi störf þingnefndarinnar í mál-
inu áfram.
Rækjuveiðar hafa verið frjálsar
frá haustinu 2010 og er lagt til í
frumvarpi Sigurðar Inga Jóhanns-
sonar atvinnuvegaráðherra að
kvótasetning nú byggist 70% á afla-
fá þurfi svör við ýmsum grundvall-
arspurningum. „Þarna er tekist á
um rétt þeirra sem höfðu veiðiheim-
ildir í úthafsrækju áður en veiðarn-
ar voru gefnar frjálsar og svo hinna
sem hafa stundað veiðarnar síðustu
þrjú ár,“ segir Jón.
Eðlilegt að spurt sé
hvaða reglur eigi að gilda
„Þegar Jón Bjarnason, þáverandi
sjávarútvegsráðherra, gaf veiðarnar
frjálsar var málið ekki klárað og til
dæmis voru aflaheimildirnar ekki
afmáðar af vef Fiskistofu. Sam-
kvæmt því höfðu fyrirtækin þessar
heimildir áfram. Þegar nú kemur að
því að ákveðið er að kvótasetja út-
hafsrækjuna að nýju er eðlilegt að
spurt sé hvaða reglur eigi að gilda.
Hvort eðlilegt sé að skipta þessu
upp samkvæmt tveimur ólíkum að-
ferðum og hvort það standist sam-
kvæmt íslenskum lögum.
Það er ekki ólíklegt að málið endi
fyrir dómstólum, sama hvaða leið
verður valin. Sjónarmiðin í málinu
eru mjög misvísandi og þess vegna
snerum við okkur til Lagastofnunar.
Okkur fannst að nefndin þyrfti að
hafa sterkari grunn til að ljúka mál-
inu,“ segir Jón Gunnarsson.
Leita álits Lagastofnunar
Skiptar skoðanir á stjórnun rækjuveiða Atvinnuveganefnd Alþingis vill svör
við grundvallarspurningum Málið ekki klárað þegar veiðar voru gefnar frjálsar
MDeilur um stjórnun »12
heimildum fyrir
þann tíma, en
30% á aflareynslu
sem útgerðir
hafa aflað sér á
síðustu þremur
árum. Skiptar
skoðanir eru á
því hvernig
stjórna beri veið-
unum og nú þeg-
ar liggja að minnsta kosti þrjú
lögfræðiálit fyrir og margar, ólíkar
umsagnir þar sem frumvarpið er
gagnrýnt.
Jón Gunnarsson, formaður at-
vinnuveganefndar Alþingis, segir að
Jón Gunnarsson
„Það er mikil samkeppni um lausar
stöður í fjármálakerfinu. Mér er
sagt að nú sé ekki óalgengt að um
hundrað manns sæki um hverja
lausa stöðu,“ segir Guðjón Rún-
arsson, framkvæmdastjóri Samtaka
fjármálafyrirtækja, SFF.
Katrín Óladóttir, framkvæmda-
stjóri Hagvangs, segir stóra ár-
ganga ungs fólks vera að koma inn á
vinnumarkaðinn. Af þeim hafi marg-
ir lokið meistaranámi í háskóla.
„Það er synd að markaðurinn geti
ekki boðið þessu fólki spennandi
tækifæri. Það verður alltaf meiri og
meiri krafa að umsækjendur hafi
staðið sig framúrskarandi vel í námi
og starfi. Það verður því erfiðara að
berjast um hvert starf sem losnar.“
Hugað sé að sprotafyrirtækjum
Katrín telur því brýnt að hlúa vel
að sprotafyrirtækjum, þ.m.t. í upp-
lýsingatækni, og að sköpun starfa.
„Almennt hefur vinnumarkaður-
inn verið að eflast hægt og bítandi á
þessu ári. Aukin fjölbreytni er í
eftirspurn eftir starfsfólki. Stöðug-
leiki og vonandi auknar fjárfestingar
á komandi ári munu styrkja atvinnu-
lífið verulega.“ baldura@mbl.is »2
Slegist
um fáar
stöður
100 hafa sótt um
eina stöðu í banka
Ástand ungrar konu, sem slasaðist
í umferðarslysi á Hellisheiði á
fjórða tímanum í gær, er metið al-
varlegt. Henni var haldið sofandi í
öndunarvél á gjörgæsludeild Land-
spítalans í Fossvogi á ellefta tím-
anum í gærkvöldi, að sögn læknis
þar.
Slysið varð ofan við skíðaskálann
í Hveradölum en tveir fólksbílar
sem voru að mætast rákust á. Kon-
an var ein á ferð og þurfti að beita
klippum úr tækjabíl slökkviliðs til
að losa hana. Í hinum bílnum voru
tveir farþegar auk bílstjóra. Þau
voru einnig flutt á slysadeild Land-
spítalans en áverkar þeirra eru
ekki taldir vera eins alvarlegir.
Vegurinn lokaður í þrjá tíma
Vegurinn var lokaður við Hvera-
gerði að austanverðu og við
Þrengslaafleggjarann að vestan-
verðu í um þrjár klukkustundir á
meðan vettvangsrannsókn stóð yfir.
Töluverður viðbúnaður var á
slysstað en alls voru fimm sjúkra-
bílar sendir á vettvang, tveir frá
höfuðborgarsvæðinu og þrír frá
Selfossi. kij@mbl.is
Ástandið
metið al-
varlegt
Í öndunarvél eftir
slys á Hellisheiði
Ljósmynd/Jakob Fannar
Slys Frá vettvangi á Hellisheiði.
Forystumenn ríkisstjórnar Sam-
fylkingar og Vinstri grænna voru
andvígir hugmyndum nokkurra
þingmanna Samfylkingar um að-
gerðir í þágu skuldugra heimila og
átti það þátt í að þær fengu aldrei
brautargengi hjá stjórninni.
Þetta segir Össur Skarphéð-
insson, þingmaður Samfylkingar og
utanríkisráðherra í síðustu stjórn.
Steingrímur J. Sigfússon, fv. for-
maður VG, afþakkaði að heyra
endursögn á ummælum Össurar um
málið í þættinum Sprengisandi.
„Í fyrsta lagi heyrði ég ekki hvað
Össur Skarphéðinsson var að tala
um. Í öðru lagi ætla ég ekki að láta
toga mig út í það að fara að taka
þátt í rökræðum við einhverja sem
vilja búa til þá mynd af sér að þeir
hafi viljað vera betri en aðrir í fyrr-
verandi ríkisstjórn,“ sagði Stein-
grímur. »4
Steingrímur J.
Sigfússon
Össur
Skarphéðinsson
Forysta síðustu
ríkisstjórnar var
andvíg leiðréttingu