Morgunblaðið - 30.12.2013, Blaðsíða 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 2013
TÓNLIST
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Í fréttaskýringu í blaðinu fyrir
stuttu var fjallað um útgáfu á tón-
list og kom meðal annars fram að
útlit væri fyrir að „færri nýir ís-
lenskir plötutitlar verði í boði þessi
jólin en í fyrra“. Má til sanns vegar
færa, því vissulega koma færri titl-
ar út á föstu formi en árið áður, en
þá líta menn ekki til þess að tónlist-
arútgáfa hefur færst á netið að
mörgu leyti.
167 plötur
Kostnaður við upptöku á tónlist
er mun minni nú en forðum og svo
komið að tiltölulega auðvelt er að
koma sér upp litlu hljóðveri, jafnvel
í stofunni heima eða svefnherberg-
inu, sem dugað getur til að skila
prýðilegum upptökum, kannski
ekki eins góðum og í tugmillj-
ónahljóðveri, en iðuleg nógu góðum
til að hægt sé að nota þær til út-
gáfu. Þegar svo er komið að flestir
hlusta á tónlist í tölvum eða símum
eða spilastokkum má sleppa þeim
kostnaði sem felst í því að láta
prenta og steypa og pakka og flytja
og dreifa tónlistinni á föstu formi.
Ég tók þátt í því fyrir stuttu að
setja saman svonefndan Kraums-
lista, sem tekinn er saman árlega á
vegum Kraums tónlistarsjóðs.
Kraumslistinn hefur að markmiði
meðal annars að verðlauna og vekja
athygli á því sem er nýtt og spenn-
andi í íslenskri tónlist ár hvert á
sviði plötuútgáfu. Allar plötur eru
undir í upphafi, og þannig hlustaði
ég á ríflega 170 plötur við vinnuna.
Flestar hafði ég reyndar hlustað á
eftir því sem þær bárust frá útgef-
endum eða tónlistarmönnunum yfir
árið, en allmargar hafði ég ekki
heyrt því þær voru aðeins til á raf-
rænu formi og sumar höfðu aldrei
verið kynntar sérstaklega.
Af þessum plötum sem gefnar
voru út rafrænt voru 25 aðgengi-
legar á vefsetri Bandcamp, sem
opnað var haustið 2008. Þar geta
tónlistarmenn sett inn tónlist til
sölu eða gefið hana ef vill. Þeir ráða
líka verði tónlistarinnar, en margir
hafa þann háttinn á að áhugasamir
geta ákveðið verðið sjálfir. Hægt er
að hlusta á alla tónlist án endur-
gjalds og án skráningar, eins og
tíðkaðist í góðum plötubúðum forð-
um (og tíðkast kannski enn) – hálfa
sjöundu milljón laga alls. Líka er
hægt að nálgast íslenska tónlist á
vefsetri íslenska fyrirtækisins
Gogoyoko, en ég beini sjónum að
Bandcamp í þessari samantekt og
þá aðeins að þeim plötum sem eru
mér eftirminnilegastar.
Áfram, í allar áttir!
Wormlust er svart-
málmssveit Hafsteins
Viðars Lyngdals og
platan The Feral Wis-
dom (bbbnn) var
gefin út á Bandcamp í
sumar. Hann fléttar sveimkenndri
tilraunasýru saman við svartmálm-
inn með góðum árangri, til að
mynda í upphafslagi plötunnar, Sex
augu, tólf stjörnur, þar sem grenj-
andi keyrsla brestur á eftir rúma
mínútu af draumkenndum inn-
gangi, en svo tekur draumurinn við
aftur undir lokin. Mjög fín plata og
Djöflasýra er frábært lag.
Björn Gauti Björns-
son, sem kallar sig
B.G. Baarregaard
kallar sig líka Birth,
Breath, Disco, Death
(bbmnn), eða svo
skráir hann samnefnda EP-plötu á
Bandcamp. Eins og heiti skífunnar
ber með sér hefur hún að geyma
diskómúsík af bestu gerð, hrein-
ræktuð skemmtun út í eitt. Mæli
sérstaklega með Ease The Pain þar
sem Krilla Vanilla syngur af-
skaplega vel.
Hljómsveitin Porquesí er skipuð
þeim Skúla Jónssyni, Russell
Harmon, Agli Jóns-
syni og Jonathan Ba-
ker. Samnefnda plötu,
Porquesí
(bbmnn) , er að
finna á Bandcamp og
er önnur plata hennar. Tónlistin er
metalcore-kennd, mjög metn-
aðarfull með síðrokkkenndum köfl-
um, til að mynda lagið Quiet House
þar sem píanó og strengir spjalla
saman með ólgandi bjögun kraum-
andi undir þar til rokkið nær yf-
irhöndinni undir lokin.
In The Company Of Men er ein
skemmtilegasta tónleikasveit
landsins og ITCOM (bbbmn) er
ekki síður skemmtileg
– maður veit aldrei
hvað er í vændum.
Gott dæmi um það er
upphafslag skífunnar,
Captain Planet, sem byrjar með
skældum kassagítarhljómum,
brestur svo í frábæra skreamo-
keyrslu og svo í tilraunakenndan
blásaraspuna áður en við snúum
okkur aftur að rokkinu – magnað
lag og mögnuð plata.
Fyrir áratug kom út mjög fín
skífa með spunatónlist þeirra Lár-
usar Sigurðssonar og Ólafs Josep-
hssonar undir yfirskriftinni Calder.
Calder virðist allur / öll / allt, en
samstarf þeirra félaga heldur
áfram undir nafni Lárusar sem
heyra má á plötunni We Are Told
That We Shine
(bbmnn). Lárus
er í aðalhlutverki á
skífunni, en Ólafur
leggur til áhrifshljóð
og drunur. Í grunninn
er platan því órafmögnuð, mikið
leikið á strengjahljóðfæri, en einnig
heyrast raddir öðru hvoru. Þetta er
lágstemmd skífa sem verður betri
við hverja hlustun.
Af þeirri forvitni- og óvenjulegu
íslensku músík sem finna má á
Bandcamp kemur
platan The Deacon of
Myrká (bbbnn)
einna mest a óvart.
Heiti plötunnar vísar í
þjóðsöguna, en tón-
listin, sem er eftir þá Hlér Krist-
jánsson og Alex Cook, er hugsuð
sem balletttónlist og mjög
skemmtilega útfærð sem slík. Víða
er vísað í íslensk þjóðlög, en þó er
verkið frumlegt. Mjög vel gert.
Á Geigsgötum er sólóverkefni
Akureyringsins Inga Jóhanns Frið-
jónssonar og er með
prýðilega trega-
rokkskífu á Band-
camp, Verið velkomin
(bbmnn). Þar er
líka að finna aðra sveit, Deer God,
sem er aukasjálf Skagstrendingsins
Þórðar Indriða Björnssonar, sem á
framúrskarandi plötu
The Infinite Whole
(bbbnn), ljóð-
ræna óhljóðamúsík.
Því eru þeir Ingi Jón-
an og Þórður taldir saman að þeir
leggja svo saman í púkk í laginu
Moldar að sem sameinar það besta
hjá báðum.
Michael Dean Óðinn Pollock hef-
ur marga fjöruna sopið í tónlist frá
því hann tók þátt í að hrinda ís-
lensku pönkbylgjunni af stað á sín-
um tíma. Þó að hann hafi fengist
við ýmiskonar tónlist síðan hefur
blúsinn aldrei verið langt undan og
vel til fundið hjá honum að fá blús-
munnhörpuleikarann snjalla Sigurð
Sigurðsson til iðs við
sig á plötunni Agape
(bbbbm). Að því
sögðu er þessi plata
ekki hrein blússkífa,
heldur frekar það sem menn kalla
rótatónlist ytra, einlæg og tær tón-
list sem byggist á gömlum þjóð-
legum merg. Lögin eru fín, Sig-
urður bæs eins og engill og söngur
Michaels innblásinn, röddin eilítið
hrjúf og full af tifinningu. Afbragð.
Sumt kemur aldrei út því mönn-
um finnst það of sérkennilegt, en á
netinu er allt hægt – sem betur fer.
Þýska útgáfan Steak au Zoo hef
gefur út samstarfsverkefni þeirra
Guðlaugar Míu Eyþórsdóttur og
Steinunnar Harðardóttur, sem þær
kalla Sparkle Poison en Steinunn
er líka þekkt sem dj. flugvél og
geimskip. Tónlistin á skífunni, sem
heitir líka Sparkle
Poison (bbbnn),
er óhemju fjölbreytt,
sumt minnir á bilaðar
Tân Có-spólur, annað
á misheppnaða brúðkaupstónlist,
enn annað á útsendingu utan úr
geimnum. Sumt er snilld, annað
gott og enn annað nánast of skrýtið
til að vera til.
Naos, sem heitir annars Jóel
Hrafnsson, er myndlistar- og tón-
listarmaður frá Akureyrir sem hef-
ur áður sent frá sér músík undir
nafninu Hyperspaze. Músíkin sem
hann gefur út sem
Naos, Lack of Faith
(bbnnn), er þó
harðari en fyrri verk
Jóels, hljóðheimurinn
myrkari og keyrslan
meiri. Jóle lýsir músíkinni sem
doomcore, sem er nærri lagi. Prýði-
legt techno, en sumt fullvenjulegt,
til að mynda lög eins og Bite the
Bullet, en Speedkrieg er aftur á
móti snilld svo dæmi séu tekin – do-
omcore-dauðarokk.
Tvisvar verður gamall maður
barn og oftar reyndar, ekki síst ef
hann kemst í þá undirfurðulegu
skífu Tónlist fyrir
Hana (bbbbn)
sem Per: Segulsvið
býður upp á á Band-
camp og mér skilst að
standi til að gefa út á föstu formi, ef
hún er þá ekki þegar komin. Af
þeim plötum sem ég hlustaði á í
þessari Bandcamp-lotu kom engin
eins skemmtilega á óvart, bæði fyr-
ir fjörsnærða músík og ekki síður
fjölskrúðuga texta. Tek undir það
sem segir á síðunni: „Skífan er
sneisafull af ilmandi dægurlögum
og gómsætri dansmúsík sem heilla
mun jafnt menn sem hænsnfugla.“
Svanur Magnús semur textann, en
Ólafur Josephsson tónlistina.
Frímann Ísleifur Frímannsson er
iðinn við músík, gefur út tónlist
Óefnisleg tónlistarflóra
Tónlistarútgáfa stendur með miklum
blóma þó að ekki sé allt á föstu formi –
rafrænni útgáfu hefur vaxið fiskur um
hrygg og hér er fjallað um sautján ís-
lenskar plötur sem hlusta má á á netinu
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Skemmtilegir In the Company of Men á úrslitakvöldi Músíktilrauna í ár.
Bæjarlind 16 201 Kópavogur sími 553 7100 www.linan.is
Opið mánudaga til föstudaga 12 - 18 I laugardaga 11 - 16
SVEFNSÓFAR
RE
CA
ST
SU
PR
EM
Ed
elu
xe
BREYTIST Í RÚM Á AUGABRAGÐI / ÞYKK OG GÓÐ
SPRINGDÝNA / SVEFNBREIDD 140X200
BREYTIST Í RÚM Á AUGABRAGÐI / EXTRA ÞYKK
OG GÓÐ SPRINGDÝNA / SVEFNBREIDD 140X200
RÚMFATAGEYMSLA
TILBOÐSVERÐ
KR. 129.900
TILBOÐSVERÐ
KR. 149.900