Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2013, Side 9
15.12. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
Munið að
slökkva á
kertunum
Eldspýtur og kveikjarar
eru ekki barnameðfæri.
Staðsetjið kveikjara og
eldspýtur ávallt þar sem
börn ná ekki til.
Til eru kveikjarar með
barnalæsingum sem eiga
að koma í veg fyrir að
börn geti kveikt á þeim.
Slökkvilið
höfuborgasvæðisins
Emilía Ísis
F
yrir helgina fór af stað samstarfsverkefni
UN Women, ELLU, Sögu Sig og Lands-
bankans. Allur ágóði verkefnisins rennur
óskertur í styrktarsjóð UN Women með
það markmið að leiðarljósi að afnema of-
beldi gegn konum.
Katrín María Káradóttir, yfirhönnuður ELLU og
Saga Sig, ljósmyndari, unnu saman að hönnun verk-
efnisins enteymið hjá ELLu sá um framleiðslu á svo-
kölluðum Fiðrildabolum.
Vilja sýna konur sem félaga
Katrín María segir verkefnið skipta gríðarlegu máli
og að málstaðurinn hafi staðið henni nærri mjög
lengi.
„Hugmyndin á bak við bolina snerist um það
hvernig hægt væri að sýna konur sem félaga og
reyna að kveða í kútinn þessa mýtu að konur séu
konum verstar. Hvað formið varðar á bolurinn að
henta fyrir bæði kynin með hliðsjón af kvenlíkama því
allt sem er fyrir bæði kynin í dag er í raun hannað
með hliðsjón af karllíkama, svo það varð nettur snún-
ingur.“
Bolirnir, sem eru framleiddir í Portúgal, eru gerðir
úr lífrænni bómull. Katrín segir þær hafa langað til
þess að hafa efnin spennandi og aðeins meira í þau
lagt. Þær hafi því valið efnin með hliðsjón af því að
bolirnir væru klæðilegir, það væri gott að vera í þeim
og helst með góðri samvisku gagnvart náttúrunni.
„Við vonum að sem flestir sjái sér fært að nota bol-
ina, að þetta verði jafnvel uppáhaldsbolur hjá þeim
sem eignast hann og að fólk beri hann með stolti,“
segir Katrín en aðeins voru framleiddir 500 bolir.
Frá sjónarhóli Sögu Sig, ljósmyndara, tileinkaði
hún sér fiðrildahugtakið sem UN Women hafa verið
að vinna með lengi ásamt plöntunni melgresi.
„Melgresi er í raun landnámsplanta, planta sem
bindur saman og býr til jarðveg fyrir aðrar plöntur
og með fiðrildaáhrifum erum við að safna pening hér
á landi til að búa til jarðveg fyrir jafnari heim og
baráttuna gegn ofbeldi gagnvart konum. Melgresið
var því mjög táknrænt,“ segir Katrín en þetta hugtak
unnu þær síðan saman inn í heildarhugmyndina.
Virði stúlkna er eingöngu
séð sem vinnuafl á heimili
Í ár einblínir styrktarsjóður UN Women á að upp-
ræta barnabrúðkaup og sýruárásir.
Það er sorgleg staðreynd að á hverjum degi eru
um 39.000 stúlkur undir 18 ára aldri gefnar, þving-
aðar eða seldar í hjónabönd. Þetta er oft leið foreldra
til að létta á heimilishaldi eða hreinlega afla sér pen-
inga, þetta lýsir þeirri sorglegu staðreynd að líf eða
virði stúlkna í þróunarlöndum er eingöngu séð sem
vinnuafl á heimili.
„Þegar stúlkur eru gefnar í hjónaband þá hætta
þær nánast allar í skóla en algengasta dánarorsök
stúlkna 15-18 ára í þróunarlöndum er vegna vanda-
mála á meðgöngu eða við fæðingu barna. Það er bæði
vegna þess að líkamarnir eru ekki tilbúnir að ganga
með barn sökum ungs aldurs og að þeim er ekki
sinnt, fá ekki heilsugæslu eða ljósmóðurþjónustu og
þetta er gríðarlegt vandamál,“ segir Inga Dóra Pét-
ursdóttir, framkvæmdastýra landsnefndar UN Wo-
men. Inga Dóra segir UN Women leggja mikla
áherslu á að fræða samfélagið með því að koma á
samfélagslegri hugarfarsbyltingu til þess að uppræta
ofbeldið.
Með því að hefja sölu á Fiðrildabolnum fyrir jólin
gefur UN Women fólki tækifæri til að gefa gjöf
sem gefur áfram.
Inga Dóra segir fólk þannig geta tekið þátt í góð-
gerðarstarfi með því að láta ekki bara pening af
hendi heldur fær það líka til baka.
„Við lítum á fiðrildabolinn eins og samvinnuverkefni
milli kaupanda og styrkþega. Það eru allir að fá eitt-
hvað út úr þessu en að gefa um leið. Við, hjá UN
Women, vorum mjög hrifnar af hugmyndafræði bol-
anna. Þar er verið að sýna samstöðu kvenna og fjöl-
breytileikann. Þetta eru konur á öllum aldri, stærðum
og gerðum. Og við lítum á þetta samstarf sem nokk-
urskonar kvennanet og systralag.“
SALA HAFIN Á FIÐRILDABOLUM TIL STYRKTAR UN WOMEN
Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UN Women, og Katrín María Káradóttir, yfirhönnuður ELLU, í Fiðrildabolunum.
Morgunblaðið/Golli
Búa til jarðveg
fyrir jafnari heim
KATRÍN KÁRADÓTTIR, YFIRHÖNNUÐUR ELLU, OG SAGA SIG LJÓSMYNDARI
HAFA LAGT LANDSÖFNUN UN WOMEN LIÐ OG HANNAÐ SVOKALLAÐAN
FIÐRILDABOL. BOLURINN ER AÐEINS FRAMLEIDDUR Í 500 EINTÖKUM
OG ALLUR ÁGÓÐINN RENNUR TIL STYRKTARSJÓÐS UN WOMEN.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is