Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2013, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2013, Blaðsíða 15
15.12. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Mikið úrval af vinsælu Kartell borðlömpunum stórir og smáir í mörgum litum Frábærir í jólapakkann Take Hönnun: Ferruccio Laviani Verð 17.500.- stk Skeifunni 8 | Kringlunni | sími 588 0640 | casa.is Opið í Skeifunni alla sunnudaga fram að jólum frá kl.13-16 BOURGIE Hönnun: Ferruccio Laviani Svartur 49.000,- Silfur 74.000,- Glær 49.000,- stæðismenn á Suðurlandi höfðu í stórum stíl kosið Framsókn því fylgið hrundi af Sjálfstæðisflokknum en Framsókn vann eftirminnilegan sigur.“ Hvernig líst þér á ríkisstjórnina? „Mér líst vel á hana. Ég kaus Fram- sókn í síðustu kosningum og þar áður kaus ég Vinstri græna vegna þess að Steingrímur var svo ákveðinn í því að koma ekki nálægt Evrópusambandinu. Hann sveik það loforð og ég mun ekki kjósa Vinstri græna aftur. Ég er sjálf- stæðismaður en Sjálfstæðisflokkurinn er loðinn í of mörgum málum, eins og til dæmis gagnvart Evrópusambandinu en innganga í það myndi ganga frá þjóðinni. Sumir þingmenn flokksins fylgja svo ekki samþykktum landsfundar. Icesave er besta dæmið um það. Svo eru Grímsstaðir á Fjöllum þar sem átti að gefa kínverska heimsveldinu stóran hluta af hálendinu og búa til kínverska túristaparadís. Og sjálf- stæðisleiðtogar fyrir norðan urðu yfir sig hrifnir en Ögmundur Jónasson stöðvaði málið enda ekkert blávatn, sá maður, og í hópi bestu þingmanna. Nú er deilt um flugvöllinn í Vatnsmýrinni en margir vilja koma honum í burtu. Gersemi hverrar ein- ustu borgar í heiminum er flugvöllur, en fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borginni voru ekki á móti því að hann yrði fluttur úr Vatnsmýrinni. Staða Sjálfstæðisflokksins er ekki nógu góð, samanber að hann er með 23 prósent fylgi á landsvísu. Ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að komast hjá því að verða smá- flokkur sem alltaf verður hafður úti í horni verður hann að taka sín mál til al- varlegrar skoðunar.“ Hvað er að? „Það vantar foringja og þeir eru ekki auðfundnir. Reyndar vantar alla íslensku stjórnmálaflokkana verulega sterka foringja en þeir eiga hins vegar góða fótgönguliða. Við þurfum ekki fólk sem er nýútskrifað úr lögfræði heldur fólk með lífsreynslu. Sterkustu stjórnmálamenn Evrópu á 20. öld voru gamalmenni, Churchill varð for- sætisráðherra 66 ára og aftur 77 ára til 81 árs. Adenauer varð kanslari Þýskalands og tókst að reisa Þjóðverja til virðingar meðal þjóðanna og sagði af sér 87 ára gamall. Það er of mikil æskudýrkun í pólitíkinni, en það er lífsreynslan sem er svo mikils virði. Ég var einu sinni ungur og hafði ekkert vit á hlutunum en núna gæti ég stjórnað. Það góða við að eldast er að maður öðlast þroska og reynslu. Ég hef upplifað ótalmargt, þótt ég hafi ekki sama líkamlega þrek og þegar ég var ungur og reri fjórar vetrarvertíðir í Þorlákshöfn. Ég hef séð breytta tíma. Nú eru margir unglingar illa læsir fimmtán ára. Enginn af þeim sérfræðingum sem ræða um það vandamál virðist koma auga á það sem blasir við, sem er að unga fólkið liggur í tölvum og sjónvarpi og gefur sér þess vegna ekki tíma til að lesa. Nú fer ungt fólk ekki í sveit en það var hið stóra lán mitt og jafnaldra minna að fara í sveit og vera með gömlu fólki og læra af því tungutak. Ólafur Þorláksson á Hrauni í Ölfusi var merkur og góður bóndi. Hann sagði eitt sinn við mig: „Það eru sendir til mín óknyttastrákar úr Reykjavík sem eng- inn ræður við og það bregst ekki að ég skila þeim um haustið sem úrvalsmönnum. Þessir strákar þurfa að fá útrás og ráða sér sjálfir svo ég læt þá bara á traktor- inn.“ Þetta var alveg rétt hjá Ólafi, það gerir öllum gott að vera einhvern tíma í sveit. Að vera í sveit hjá góðu fólki er þroskandi og góður skóli.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.