Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2013, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2013, Blaðsíða 27
Krukka með kaffibaunum í botninum, síðan er sprittkerti sett ofan á það og henni er síðan lokað með brúnum bökunarpappír og bakaraband sett utan um. Þá er hin sígilda gjöf kertastjaki með kerti í. H eiður Reynisdóttir stofnaði Íslenska pappírsfélagið ásamt Ágústu B. Herbertsdóttur árið 2010 með það markmið að leiðarljósi að auka fjölbreytni og úrval umhverfisvænna gjafaumbúða, korta og umslaga. „Mér finnst mjög skemmtilegt að endurnýta hluti sem til falla á heimilinu og í fyrirtækinu. Það geta verið krukkur, kakóbox, karton og kassar, sem svo auðveldlega öðlast nýtt líf, bara með smá gjafapappírsafgöngum, límmiða eða afgangsborða,“ segir Heiður og bætir við að pakkarnir þurfi ekki að vera flóknir svo þeir verði fallegir. Þykkan og vandaðan pappír megi auðveldlega strauja eða slétta og nota áfram til gjafa. Sama er að segja um satínborða og bakarabönd. Heiður segir þessar óvæntu, einföldu gjafir, þar sem undirbúningurinn er nánast enginn, oft koma best út og verði gjarnan skemmtilegustu pakkarnir. „Í Ljúflingsverslun á Álfheimatorgi, sem ég rek ásamt Ragnhildi Önnu Jónsdóttur, eiganda Jónsdóttur & co, eru nánast allar vörur endurnýttar eða endurnýtanlegar og við leggjum einmitt mikið upp úr því að gefa fólki einfaldar hugmyndir um sniðugar lausnir þegar kemur að innpökkun. Við erum báðar miklar matkonur og finnst skemmtilegt að gefa matargjafir. Þá kemur sér vel að eiga gamlar krukkur, körfur, nótnablöð eða bara gamla góða bökunarpappírinn til að setja utan um og skreyta með afgangspappír eða böndum,“ segir Heiður en um helgina er opið hús hjá Ljúflingsverslun þar sem þær stöllur taka vel á móti gestum og gefa góð ráð varðandi innpökkun. Morgunblaðið/Ómar Endurnýtt innpökkun FALLEGIR OG FJÖLBREYTTIR PAKKAR Skemmtilega framreitt innihald pakkans. Gjafapokinn er margendurnýttur. Heiður segir gjafapoka hafa þá tilhneigingu að lifa endalaust því maður getur gefið þá áfram. Vinstri pakkanum er pakkað inn í maskínupappír og bakarabandi vafið utan um. Pappír frá Farva prýðir hægri pakkann sem er einnig skreyttur með kanilstöngum. Báðir merkimiðarnir eru frá Letterpress. Royal-lyftiduftsdósin var tekin úr eldhússkápnum. Í henni er stórar kanilstangir úr Tiger og rör úr Pappírsfélaginu. Dósin er bæði falleg sem aðventugjöf og sem borðskraut. HEIÐUR REYNISDÓTTIR LEGGUR MIKINN METNAÐ Í AÐ ENDURNÝTA GJAFAPAKKNINGAR OG FINNA UPP Á SNIÐUGUM, FALLEGUM OG ÓDÝRUM LAUSNUM TIL INNPÖKKUNAR. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is 15.12. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27 MIKIÐ ÚRVAL AF GLÆSILEGUM SÆNGURVERASETTUM! Þegar mjúkt á að vera mjúkt standa sængurveraset- tin í Betra Bak undir væntingum. Einstök gæði frá hinum þýsku framleiðendum Elegante, Joop! og Brono Banani. Komdu við Maco Satin efnið og þú verður snortin(n). JÓLA- AFSLÁTTUR 20% AF RÚMFÖTUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.