Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2013, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.12. 2013
Heilsa og hreyfing
„Tilgangurinn með æfingunni er að styrkja
vöðvana aftan á lærinu sem eru mjög svo
vannýtt auðlind í okkar daglega lífi. Þar að
auki er einstaklega skemmtilegt að fylgjast
með fólki gera þessa æfingu þar sem líkur
eru á að meðal-Jón og meðal-Gunna, sem
ekki hafa gert mikið af þessum hreyfingum,
fái smá sinadrátt en ef það gerist skaltu ein-
faldlega rétta úr fætinum og teygja aðeins á
þessum vöðvum,“ segir Fannar Karvel
íþróttafræðingur.
„Byrjaðu á að standa upp úr stólnum þín-
um og koma þér þægilega fyrir með e-ð til
þess að halda í, t.d. stólbakið, kústskaft eða
vinnufélagann. Haltu stöðunni á fætinum í
a.m.k. 20 sekúndur og alveg upp í 40 sek-
úndur ef þú getur, gerðu það sama hinum
megin og endurtaktu 3-5x á hvorn fót.“
ÆFING VIKUNNAR
Standandi
fótakreppur
1. Slakaðu fætinum ró-
lega niður þegar tíminn
er liðinn og endurtaktu
hinum megin.
2. Haltu hælnum þar án þess að hreyfa læri eða
hné úr stað, það er; haltu þeim samsíða.
Þegar þú finnur að hællinn sígur, hífðu hann aft-
ur upp og kláraðu þann tíma sem þú settir þér.
3. Hafðu læri og hné samsíða
og lyftu hæl vinstri fótar upp
og komdu honum eins nálægt
rassinum og mögulegt er.
S
ætuefnið aspartam hefur víst verið
haft fyrir rangri sök í mörg ár.
Þegar öllu er á botninn hvolft reyn-
ist það hættulaust sé þess neytt í
því magni sem meðalmaður gerir. Matvæla-
öryggisstofnun Evrópu (EFSA) birti í vik-
unni áhættumat á efninu, sem einnig geng-
ur undir nafninu E951 innan ESB, og er
niðurstaðan sú að aspartam og niður-
brotsefni þess séu örugg í því magni sem
fólk neytir þess í hefðbundinni fæðu.
Samkvæmt mati EFSA er ásættanleg
dagleg inntaka (ÁDI) aspartams 40 mg á
hvert kíló líkamsþyngdar, sem þýðir að 60
kílóa manneskja má innbyrða 2.400 milli-
grömm af aspartam daglega, án þess að
það hafi nokkur skaðleg áhrif. Þriggja ára
barn má innbyrða 600 mg af efninu dag-
lega. Undanskildir eru þó þeir sem þjást af
hinum sjaldgæfa efnaskiptasjúkdómi PKU.
Upphaflegar rannsóknir
voru taldar falsaðar
Efnið hefur verið umdeilt frá upphafi og
þeir sem voru andsnúnir því á áttunda ára-
tugnum leiddu líkum að því að rannsókn-
irnar sem bandaríska matvælaeftirlitið
byggði mat sitt á hefðu verið ófullnægjandi
og jafnvel falsaðar. Helstu rök þeirra sem
hafa talað gegn notkun aspartams eru þau
að við niðurbrot á efninu í líkamanum verði
til skaðleg efni sem safnist upp í lík-
amanum og geti m.a. leitt til krabbameins,
skemmda á heila og taugakerfi sem geti
valdið flogum og jafnvel verið rótin að
sjúkdómum á borð við Alzheimers og park-
inson. Eitt efnanna sem verða til við nið-
urbrotið er metanól sem getur haft eitr-
unaráhrif í stórum skömmtum og hafa
andstæðingar aspartams haldið því fram að
metanólið geti valdið augnskemmdum og
sjónskerðingu líkt og tréspíri. Niðurstaða
EFSA er hins vegar sú að magn metanóls
úr aspartami sé svo lítið að það valdi ekki
hættu. Annað efni sem aspartam inniheldur
er amínósýran fenylalalin, sem getur haft
eituráhrif í stórum skömmtum, sérstaklega
á fóstur kvenna sem eru með PKU-
sjúkdóminn, en að öðru leyti er ekki talið
að magn fenylalalins úr sætuefninu geti
farið upp fyrir hættumörk.
Hvort niðurstaða áhættumats EFSA
bindur enda á áratugalanga deilu um asp-
artam verður tíminn einn að leiða í ljós en
ef þar verður framhald á er nokkuð ljóst
að boltinn er nú hjá andstæðingum efnisins.
UMDEILDA SÆTUEFNIÐ ASPARTAM
Allt í plati, allt í lagi?
Margir hafa velt því fyrir sér undanfarin ár hvort hægt sé að borða mat sem inniheldur aspartam áhyggjulaus. Sykurlausir gosdrykkir innihalda
gjarnan sætuefnið og það er einnig að finna í mörgum öðrum sykurlausum eða sykurskertum vörum.
Morgunblaðið/Eggert
Hvað er aspartam?
Aspartam er efnafræðilega tilbúið sætuefni sem á uppruna
sinn á tilraunastofu. Það var fundið upp árið 1965 og fékk
endanlegt samþykki bandaríska matvælaeftirlitsins sextán árum
síðar. Upphaflega var aspartam selt undir nafninu NutraSweet
og varð gífurlega vinsælt sem staðgengill sykurs í mat og
drykk. Efnið gefur nærri jafnmargar hitaeiningar og venjulegur
borðsykur en er 200 sinnum sætara svo það þarf mun minna
magn af því til að gefa sætubragð og þannig er hægt að skera
niður hitaeiningar í matvælum. Í hálfum lítra af sykurlausum
kóladrykk eru u.þ.b. 1,5-2 hitaeiningar samanborið við rúm-
lega 200 hitaeiningar í sama magni af sykruðum kóladrykk.
ASPARTAM ER NOTAÐ Í STAÐ
SYKURS Í MARGAR TEGUNDIR
MATVÆLA EN NOTKUN EFNISINS
HEFUR VERIÐ GAGNRÝND Í MÖRG
ÁR. NIÐURSTAÐA ÚR NÝRRI RANN-
SÓKN MATVÆLAÖRYGGISSTOFN-
UNAR EVRÓPU VIRÐIST ÞÓ BENDA
TIL ÞESS AÐ EFNIÐ SÉ SKAÐLAUST
SÉ ÞESS NEYTT Í LITLU MAGNI.
Ingibjörg Rósa Björnsdóttir
ingibjorgrosa@gmail.com
* „Meira en 9.000 af mínum skotum á ferlinum hafa geigað. Ég heftapað næstum 300 leikjum. 26 sinnum hefur mér verið treyst fyrirsigurskoti í leik en ég brugðist. Ég hef gert mistök aftur og aftur í lífinu.
Og það er þess vegna sem ég næ árangri.“ Michael Jordan