Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2013, Page 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2013, Page 28
*Matur og drykkir Í gegnum tíðina hafa smákökuuppskriftir breyst en gamlar og góðar standa þó fyrir sínu »32 F yrir óralöngu þýddi enska orðið „meat“ jafnframt og einfaldlega „matur“, hvort sem það var fæða úr jurta- eða dýrarík- inu, og þá er létt að sjá skyldleika ís- lenska og enska orðsins, svona fyrir orðsifja- áhugafólk. Upprunalega var reyndar kjöt í „mincemeat“ eins og sjá má í enskum uppskriftum frá 15. öld. Þá var hakkað saman kjöt, mör, beinmerg- ur, þurrkaðir ávextir, krydd og edik eða vín til að búa til fyllingu í alvöru kjötbökur sem voru einfaldlega borðaðar sem aðalmáltíð. Á 18. öld var farið að nota eimuð vín í fyllinguna, þá helst koníak, og á endurreisnartímanum jókst notkun krydda á borð við negul, kanil og músk- at og þar með breyttust uppskriftirnar líka. „Mincemeat“ varð sætara með aukinni notkun sykurs og hærra hlutfalli ávaxta og bökurnar voru þá frekar borðaðar sem eftirréttur. En með tímanum var farið að líta á þessar bökur sem gamaldags rétt, eitthvað sem sveita- fólk bjó bara til ofan í heimilisfólkið en þótti ekki mjög fínt. Á Viktoríutímabilinu komust þessar bökur hins vegar í tísku sem hluti af enskum jólakræsingum, sennilega fyrir það að vera þjóðlegur og gamaldags réttur, svipað og margt af því sem prýðir íslensk jólaborð í dag. Lengi vel var mör eða smjör notað í fyllinguna þrátt fyrir að kjötið hafi vikið en í dag er „mincemeat“ búið til úr hökkuðum þurrkuðum ávöxtum og hnetum, koníaki og kryddum. Þetta mauk er síðan notað í litlar bökur sem eru órjúfanlegur hluti af jólahefðinni í Bret- landi. Nútímafólki til hægðarauka er hægt að kaupa tilbúið „mincemeat“ í krukkum svo fæst- ir búa jólabökurnar til frá grunni. Útfærslurnar eru margar en algengt er að bökurnar séu um 10-14 cm í þvermál. Böku- deigið er einfalt smjördeig, það er flatt út frek- ar þunnt, hringir skornir út og hver þeirra pressaður ofan í lítil bökuform, annaðhvort mótabakka eða stök bökuform, jafnvel einnota úr álpappír. Fyllingin er síðan sett ofan í með skeið og bökunni lokað með meira deigi og barmarnir pressaðir saman með gaffli. Eins er vinsælt að móta stjörnur úr deiginu og leggja þær yfir fyllinguna. Svo er flórsykri sáldrað yfir bökurnar áður en þær eru bornar fram. Hægt er að borða ensku bökurnar hvort sem er kald- ar eða volgar úr ofninum (gætið að því að fyll- ingin verður sjóðheit), þær geymast í loftþéttum umbúðum í nokkurn tíma og svo er líka hægt að frysta þær og hita þær dálítið í ofni eða ör- bylgjuofni áður en þær eru borðaðar. Rjómi eða ís á engan veginn við þessar bökur, kannski þunn vanillusósa eða hið enska koníaks- og rommbætta smjör, en allt er jú leyfilegt. Enska jólabakan nýtur sín alltaf best á hráslagalegum desemberdegi, saðsöm og volg og að sjálfsögðu með góðum tebolla á kantinum. AFP KJÖTLAUSAR ENSKAR „KJÖTBÖKUR“ Misskildar enskar jólabökur Í FLESTUM ENSK-ÍSLENSKUM ORÐABÓKUM ER „MINCE PIE“ ÞÝTT SEM „KJÖTHAKKSBAKA“ – KANNSKI EKKI UNDARLEGT ÞAR SEM „MINCE(D) MEAT“ ER HAKKAÐ KJÖT OG „MINCE“ ÞÝÐIR JÚ „AÐ HAKKA/HAKK“. NÚ TIL DAGS ER ÞETTA HINS VEGAR KOLRÖNG ORÐABÓKARÞÝÐING ÞVÍ ÞETTA ENSKA JÓLAGÓÐGÆTI INNIHELDUR EKKI EINA EINUSTU ÖRÐU AF KJÖTI! ÞETTA ERU LITLAR, SÆTAR BÖKUR FYLLTAR MEÐ „MINCEMEAT“ SEM ÞRÁTT FYRIR NAFNIÐ INNIHELDUR HELDUR EKKERT „MEAT“ (KJÖT). Ingibjörg Rósa Björnsdóttir ingibjorgrosa@gmail.com Bökurnar sem Ingibjörg Rósa fjallar um eru til í mörgum útgáfum. 350 g mincemeat (fæst m.a. í Pipar og salt á Klapparstíg) 225 g hveiti 2 msk. sykur 125 g ósalt smjör í teningum 1 egg (hrært) Aðferð: Blandið hveiti, sykri og smjöri saman í hrærivél eða matvinnsluvél og bætið svo egginu rólega út í smátt og smátt. Hnoðið deigkúlu í höndunum, hylj- ið hana og setjið í kæli í a.m.k. eina klukkustund. Fletjið deigið út þunnt og skerið út stóra hringi sem geta hulið bökumótin. Skerið út jafnmarga minni hringi, eða stjörnur (gott til að drýgja deigið), til að setja ofan á fyllinguna sem er sett í hverja böku. Ef þið lokið bök- unum alveg, stingið þá gat á toppinn og penslið bökurnar með mjólk áður en þær eru settar í 200°C heitan ofn. Bakið í u.þ.b. 20 mínútur þar til þær eru gull- inbrúnar. Passið að kæla bökurnar dálítið áður en þær eru smakkaðar, fyllingin verður sjóðheit. Sagan segir að fólki hafi átt að borða eina böku á hverjum degi jóla, tólf alls, því það myndi færa því 12 hamingjuríka mánuði. Í dag er talið að hver Breti borði að meðaltali 27 „mince pie“ yfir jólin. Að því gefnu að hver baka jafnist á við handfylli af smákökum, mætti þá kannski ætla að Íslendingar borði að meðaltali jafnmikið af jólasmákökum? Enskar jólabökur (10-12 stk.)

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.