Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2013, Side 41
15.12. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
JÖR STÆKKAR VERSLUNINA
Úr herratísku
yfir í kvenfatnað
G
uðmundur Jörundsson, fatahönn-
uður og athafnamaður, hóf ný-
verið sölu á kvenfatnaði í versl-
un sinni Jör. Þar mun hann
selja átta vönduð merki ásamt eigin hönn-
un, Jör by Guðmundur Jörundsson. Línan
sem Jör framleiðir er tvíþætt, annarsvegar
er það hátískulína eða „Ready to Wear“
sem sýnd var á RFF í mars síðastliðnum
og hinsvegar Jör-undirlína sem er mun fjöl-
breyttari og inniheldur meðal annars Jersy-
kjóla og gallabuxur. „Það stóð alltaf til að
hanna kvenfatnað en það gerðist örlítið fyrr
en áætlað var,“ segir Guðmundur en öll
framleiðsla línunnar fer fram erlendis. Guð-
mundur segir það bæði kostnaðarsamt að
framleiða flíkurnar hérlendis og einnig tel-
ur hann gæðin mun meiri í erlendri fram-
leiðslu. „Við framleiðum flestallt í Tyrk-
landi, aðeins í Frakklandi en prjóna-
vörurnar eru framleiddar í Litháen. Við
vinnum náið með skrifstofu sem útvistar
framleiðslunni en sú skrifstofa sér um
mörg þekkt merki á borð við Acne og Cos.“
Kvenfatalínan er sú fyrsta sem Guð-
mundur hannar fyrir Jör. „Ég vann náið
með fatahönnuðinum Siggu Mæju sem að-
stoðaði við munstur í hátískulínunni og í
undirlínunni voru það Hrafnhildur Hólm-
geirsdóttir og Dainius Bendikas sem tóku
þátt í hönnun línunnar. Nú er þetta meira
hönnunarteymi sem vinnur að línunum en
alls starfa 17 manns hjá fyrirtækinu.“ Að-
spurður hvert fyrirtækið stefnir segist Guð-
mundur stefna á að ná betri tökum á fram-
leiðslu og tíma. Gera flotta búð með dömu-
og herrafatnaði sem verður vonandi vinsæl
hérna á Íslandi. Síðar meir mun fyrirtækið
hefja markaðssetningu erlendis en það er
ekki komin nákvæm stefna í henni. „Við er-
um ekkert að stressa okkur. Við erum að-
allega að einblína á að gera eitthvað
skemmtilegt og kúl hérna heima og kynna
okkur,“ segir Guðmundur að lokum.
Guðmundur Jörundsson hefur stækkað verslun sína JÖR á Laugavegi og bætt þar inn kvenfatnaði.
VERSLUNIN JÖR HÓF NÝVERIÐ SÖLU Á KVENFATNAÐI FRÁ
NÍU MISMUNANDI HÖNNUNARHÚSUM. JÖR HEFUR HLOTIÐ MIKLA
ATHYGLI UNDANFARIÐ FYRIR VANDAÐAN HERRAFATNAÐ.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Victor & Rolf
15.690 kr.
Íkoníski ilmurinn Flower-
bomb er kominn í jólafötin.
Klassískur lúxusilmur.
Farmers Market
16.800 kr.
Varmaland er dásamlegu
r
undirkjóll úr 100% merín
óull.
Lancôme
17.890 kr.
Sérstakur jólapakki
Lancôme er stór
taska með öll-
um þeim
snyrtivörum
sem þarf til
að full-
komna yf-
irborð og
undirlag
húð-
arinnar.
Eymundsson
9.999 kr.
The Fashion Book er loksins
fáanleg á ný. Bókin er nokk-
urs konar „tískubiblía“.
Uma.is
6.490 kr.
Falleg veggverk eru tilvalin gjöf.Þessi skemmtilegi pandabjörner frá Seventy tree.
Epal
1.350 kr.
Hið fullkomna
sælgæti - staðfest.
Kastanía
43.900 kr.
Vandað stálúr frá Tiwa
er fullkomin jólagjöf.
Fiona Cribben
25.900 kr.
Skartgripirnir frá Fionu Cribben eru fágaðir
og töff. Þetta fallega armband klikkar ekki.