Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2013, Page 50
„Ég er meira í þungarokkinu á laugardögum en öðruvísi lögum á föstudögum. Það er ágætt að blanda þessu aðeins,“ segir Vagna Sólveig Vagnsdóttir.
É
g segi bara allt fínt. Það þýðir
ekkert annað,“ segir Vagna Sól-
veig Vagnsdóttir þegar ég slæ á
þráðinn til hennar vestur í Dýra-
fjörð á fallegum desem-
bermorgni. Síðan hlær hún þessum dillandi
hlátri sem hlustendur Næturvaktarinnar á
Rás 2 þekkja svo vel. Um hverja helgi
hringir Vagna Sólveig inn til að spjalla við
umsjónarmenn þáttarins, Guðna Má Henn-
ingsson og Inga Þór Ingibergsson, um allt
milli himins og jarðar. Og velja lag til spil-
unar – allt frá Metallica að Hauki Mort-
hens. Hún er sannkölluð alæta á tónlist.
„Ég er meira í þungarokkinu á laug-
ardögum en öðruvísi lögum á föstudögum.
Það er ágætt að blanda þessu aðeins,“ segir
Vagna Sólveig sem er 78 ára gömul. Það er
fólki eins og henni að þakka að Næt-
urvaktin er óvissuferð af bestu gerð, allt
getur gerst í þættinum. Bókstaflega allt.
„Já, já, fólk er orðið vant því að ég
hringi,“ heldur Vagna Sólveig áfram. „Sumir
fara víst ekki að sofa fyrr en ég er búin að
ná inn. Þess vegna reyni ég yfirleitt að
hringja frekar snemma. Það er ómögulegt
að halda vöku fyrir fólki.“
Aftur hlær hún.
Þess má geta að þátturinn hefst klukkan
22 og lýkur klukkan 2 eftir miðnætti.
Fjöldi hlustenda sendir Vögnu Sólveigu
kveðju um hverja helgi og umsjónarmenn
Næturvaktarinnar eru ósjaldan spurðir
frétta af henni. „Þetta er alveg yndislegt,“
segir hún. „Ég hef eignast fleiri vini gegn-
um Rás 2 en á nokkrum öðrum stað í þessu
lífi.“
Langaði að senda kveðju
Fyrsta símtalið má rekja aftur til ársins
1989. Vagna Sólveig man þó ekki nákvæma
dagsetningu. „Fyrstu árin skrifaði ég hjá
mér hvað ég ætlaði að tala um og hverjum
ég ætlaði að senda kveðju en þeir pappírar
týndust þegar ég flutti búferlum hérna á
Þingeyri fyrir þrettán árum. Því miður.“
Spurð hvers vegna hún hafi byrjað að
hringja inn á Rás 2 svarar hún því til að
sig hafi langað að senda vinum og vanda-
mönnum kveðju. Eitt leiddi svo af öðru.
„Guðni Már Henningsson var þá með
þáttinn og við náðum strax mjög góðu sam-
bandi. Það er svo gott að tala við hann
Guðna. Ég hringdi strax næstu helgina eftir
fyrsta skiptið og fljótlega varð þetta að rút-
ínu. Það er ekki helgi nema ég hringi í út-
varpið. Ef ég er með gesti læt ég þá bara
bíða á meðan. Ég er orðin svo háð þessu.
Þeir hafa fullan skilning á því, gestirnir.“
Vagna Sólveig missti eiginmann sinn,
Snorra Bergsson, árið 1988 og eftir það fór
hún að sinna trélistinni af meiri þunga. „Ég
notaði næturnar oft til að smíða og þá var
upplagt að opna fyrir útvarpið. Seinni árin
hefur Rás 2 verið opin hjá mér allan sólar-
hringinn. Ég slekk aldrei á henni, ekki einu
sinni meðan ég sef.“
Mikil og góð vinátta hefur tekist með
Vögnu Sólveigu og Guðna Má enda þótt þau
hafi bara einu sinni hist augliti til auglitis.
Hann hefur til dæmis verið duglegur að
kaupa af henni listaverk gegnum tíðina.
„Þegar Guðni frétti að ég spáði í bolla
vildi hann endilega senda mér bolla vestur
Það er ekki helgi nema
ég hringi í útvarpið
ALÞÝÐULISTAKONAN VAGNA SÓLVEIG VAGNSDÓTTIR Á ÞINGEYRI HEFUR HRINGT INN Á NÆTURVAKTINA Á RÁS 2 UM HVERJA
EINUSTU HELGI Í ALDARFJÓRÐUNG OG ER LÖNGU ORÐIN HLUTI AF ÞÆTTINUM. UM ÁRAMÓTIN VERÐUR NÆTURVAKTIN
LÖGÐ NIÐUR OG HEFUR VAGNA SÓLVEIG STRENGT ÞESS HEIT AÐ KVEIKJA ALDREI MEIR Á RÁS 2 OG RÁS 1 Í MÓTMÆLASKYNI.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
* „Ég notaði næturnar oft til að smíða og þá varupplagt að opna fyrir útvarpið. Seinni árin hefurRás 2 verið opin hjá mér allan sólarhringinn. Ég slekk
aldrei á henni, ekki einu sinni meðan ég sef.“
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.12. 2013
Viðtal