Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2013, Side 55
HÁSKÓLAÚTGÁFAN haskolautgafan.hi. is
Náttúruvá
á Íslandi
Eldgos og jarðskjálftar
LEIKHÚS NÚTÍMANS
TRAUSTI ÓLAFSSON
Hér eru raktar hugmyndir og hugsjónir frum-
kvöðla í leikhúsi Vesturlanda allt frá miðri
nítjándu öld og fram yfir aldamótin tvö þús-
und. List og fagurfræði leikstjóra, leikskálda
og hönnuða eru gerð skil og því lýst hvernig
þróun leikhússins helst í hendur við sögu
menningar og samfélags.
ÖNNUR SKYNJUN
– ÖNNUR VERÖLD
Jarþrúður Þórhallsdóttir
„Bókin dregur upp margþætta og sannfærandi
mynd af lífi einhverfra og dregur lesandann nær
heimi þeirra. Hún ætti að vera aðstandendum
einhverfra styrkur og leiðsögn og veita öðrum
innsýn í veruleika einhverfra einstaklinga“
– Úr umsögn dómnefndar.
TILNEFND TIL FÖRUVERÐLAUNANNA
NÁTTÚRUVÁ Á ÍSLANDI
– ELDGOS OG JARÐSKJÁLFTAR
Stórbrotin bók um eldgos og jarðskjálfta.
Tæpar 800 bls. í stóru broti með nærri 1000 ljós-
myndum, teikningum og skýringamyndum.
Án efa eitt ítarlegasta og efnismesta rit um eldvirkni
og jarðskjálfta á Íslandi sem gefið hefur verið út.
SAGAN AF GUÐRÚNU
KETILSDÓTTUR
Hér er fjallað um líf þessarar merkilegu
alþýðukonu og hvernig hún náði, þrátt fyrir
afar þrönga stéttarstöðu sína, að hasla sér
völl í erfiðu árferði móðuharðindanna. Saga
hennar er líklega elsta varðveitta sjálfsævi-
saga íslenskrar alþýðukonu.
TILNEFND TIL FÖRUVERÐLAUNANNA
RÍKIÐ OG RÖKVÍSI STJÓRNMÁLA
Páll Skúlason
Páll setur hér fram skarpa gagnrýni á hugmynda-
fræði markaðshyggjunnar, umræðu um þörfina
fyrir nýja stjórnarskrá, hvert sé eðli og markmið
skattlagningar, hvaða lífsgildi við ættum að
tileinka okkur, til hvers við höfum ríki og hvað
felst í hugtakinu réttlæti.
HÁBORGIN
Ólafur Rastrick
Hér er fjallað um samband fagurfræði,
menningar og umbótastjórnmála á Íslandi
frá lokum nítjándu aldar og fram til um 1930.
Bókinni er ætlað að svara spurningum um
hvaða hugmyndir mennta- og stjórnmála-
menn gerðu sér um félagslegt hlutverk
íslenskrar menningar á mikilvægu mótunar-
skeiði hennar.
EFTIR SKILNAÐ
– um foreldrasamstarf og kynslóðatengsl
SIGRÚN JÚLÍUSDÓTTIR
Bókin fjallar um þau áhrif sem skilnaðir hafa
á lífsgæði barna. Greint er frá stöðu skiln-
aðarforeldra og þeim ólíku myndum sem
samskipti þeirra og forsjárfyrirkomulag taka
á sig. Einnig er hugað að breytingum sem
skilnaður veldur á réttarstöðu og uppeldis-
högum barna.
TRAUSTI ÓLAFSSON
Leikhús
nútímans
HUGMYNDIR OG HUGSJÓNIR
DAGBÓK 2014
– Árið með heimspekingum
Í senn dagbók/dagatal fyrir árið 2014 og
saga margra helstu kvenheimspekinga allt
frá fornöld til samtímans. Sigríður
Þorgeirsdóttir, heimspekiprófessor, rekur hér
í stuttum pistlum sögu heimspekinnar í ljósi
hugmynda þessara kvenna.
CHOMSKY.
MÁL, SÁL OG SAMFÉLAG
Hér er fjallað á aðgengilegan hátt um helstu
þætti kenninga Chomskys um mannlegt mál
og eðli þess og valin atriði í samfélagsrýni
þessa merka vísindamanns.