Morgunblaðið - 13.02.2014, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2014
Bæjarlind 4, Kópavogur S: 554 6800
Njarðarnesi 9, Akureyri S: 466 3600 www.vidd.is
Öðruvísi flísar
byggð við höfnina þá verði ekkert
hafnarlíf, “ segir Guðmundur.
Hver er þá núverandi hugmynd
um notkun hússins Geirsgötu 11?
„Húsið verður örugglega rifið og
byggð þarna íbúðablokk eða hótel.
Borgin vill það. Ég get ekki verið
með fiskvinnslu þarna og íbúða-
blokkir allt í kring sem drepa allt
mannlíf. Höfnin er ein mesta menn-
ingargersemi Reykjavíkur en nú á
að fylla allt hafnarsvæðið af íbúða-
blokkum og ekkert verður eftir sem
tengist sjávarútvegi,“ segir Guð-
mundur.
Vilja að það færist líf í húsið
Húsið á Geirsgötu 11 var byggt
árið 1982. Þar var fyrst til húsa út-
gerð Ríkisskipa, en síðar var þar
fiskvinnsla Jóns Ásbjörnssonar hf.
og Fiskkaupa hf. sem seldu Brim hf.
húsið. Það hefur staðið að mestu
autt síðan og er farið að láta á sjá.
Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxa-
flóahafna, segir að rætt hafi verið við
Brim hf. um með hvaða hætti megi
koma lífi í húsið aftur. Upphaflega
hugmynd Brims um nýtingu hússins
falli vel að þeirra hugmyndum um að
auka lífið við höfnina enn frekar.
„Eins og er er útlit hússins svæðinu
ekki til sóma og við viljum umfram
allt að það færist líf í húsið og að
starfsemin verði tengd sjávarútvegi
og fiskvinnslu,“ segir Gísli.
Geirsgata 11 rifin eða fyllt af lífi?
Hugmynd um að hafa ferðamannafiskvinnslu og veitingastað í húsinu Geirsgötu 11 við Reykjavík-
urhöfn Slegið út af borðinu vegna fyrirhugaðra íbúðablokka við höfnina Fer ekki saman
Framtíðin? Upprunalega hugmyndin að nýtingu hússins. Það átti að laga það að utan, byggja við það, setja upp þakgarð og veitingahús svo dæmi séu tekið.
Geirsgata 11 Brim hf. er eigandi fasteignarinnar sem er 2.573 fermetrar
að stærð. Lóð fasteignarinnar er alls 4.805 fermetrar. Húsið var byggt 1982.
SVIÐSLJÓS
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Enn meira líf gæti færst í hafn-
arsvæði Reykjavíkurhafnar ef hug-
mynd að andlitslyfting á húsinu
Geirsgötu 11 verður að veruleika.
Húsnæðið er í eigu Brims hf. Haust-
ið 2012 gengu eigendur hússins frá
samkomulagi við Faxaflóahafnir um
að endurnýja ytra byrði hússins og
færa aftur líf í það.
Á fundi stjórnar Faxaflóahafna 7.
febrúar síðastliðinn var hugmynd
Brims að breyttri nýtingu og
breyttu útlit hússins tekin fyrir en í
henni er gert ráð fyrir að í húsinu
verði fiskvinnsla, sýningarrými fyrir
almenning um sjávarútveg, fisk-
markaður og útimarkaður, skrif-
stofur fyrirtækisins, veitingasala og
aðstaða fyrir sjóstangveiðifólk.
Hafnarstjórnin tók jákvætt í tillög-
una um breytingar á húsinu og lýsti
sig reiðubúna til viðræðna um fram-
hald málsins, samkvæmt fund-
argerð.
Íbúðablokkir drepa hafnarlífið
Þrátt fyrir að stjórn Faxaflóa-
hafna hafi verið að fjalla um málið í
lok síðustu viku segir Guðmundur
Kristjánsson, forstjóri Brims hf., að
hugmyndin að breytingunni á Geirs-
götu 11, sem var tekin fyrir á fund-
inum, gangi ekki lengur upp.
„Þetta er okkar upphaflega hug-
mynd að tengja sjávarútveginn við
ferðamennina og leyfa þeim að
borða það sem kemur úr hafinu. En
með nýjasta skipulagi Reykjavík-
urborgar þar sem á að fylla alla
höfnina af íbúðablokkum þá verður
engin fiskvinnsla eða útgerð í höfn-
inni. Það fer ekki saman og það er
margbúið að segja við yfirvöld í
Reykjavík að með því að setja íbúða-
Morgunblaðið/Eggert
Umhverfislistaverkið Þúfa eftir
Ólöfu Nordal, sem stendur við vest-
anverða innsiglinguna að Reykja-
víkurhöfn, hefur vakið verðskuld-
aða athygli síðan það var vígt í lok
desember. Um er að ræða grasi
vaxinn hól með steinþrepum sem
leiða upp á topp hólsins þar sem
stendur lítill fiskhjallur.
Hóllinn er 26 metrar í þvermál
og átta metra hár. Hæð og bratti
hólsins hafa valdið nokkrum veg-
farendum áhyggjum sem lúta að
því að einhver eigi eftir að rúlla
þarna niður og slasa sig. „Við erum
ekki búin með fráganginn en það
verður sett upp skilti þar sem fólki
er bent á að það fari upp á eigin
ábyrgð,“ segir höfundur verksins,
Ólöf Nordal.
„Það verður að hafa í huga að
Þúfa er ekki útivistarsvæði eða
leikvöllur, þetta er skúlptúr sem
lýtur lögmálum efnis og forms og
þennan skúlptúr má fara upp á ef
vill en það er ekki beinlínis þannig
að það sé nauðsynlegt. Fólk er
vissulega dálítið leitt þarna upp
enda verkið rýmisverk sem spilar á
rýmisvitund áhorfandans. Áhættan
er hluti af verkinu, þú ferð svolítið
út á ystu nöf, eins og að fara í fjall-
göngu.“
Þúfa stendur úti á Granda og þar
má t.d. ganga út á gamla sjóvarnar-
garðinn á eigin ábyrgð og er það
mun hættulegra en að ganga upp á
Þúfu. „Þú verður að taka ábyrgð á
þér sjálfum og börnunum þínum í
umhverfinu. Forræðishyggjan má
ekki drepa allt,“ segir Ólöf. ingveld-
ur@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Þúfan Hóllinn er 26 metrar í þvermál og átta metra hár. Í verkið fóru um 2.400 rúmmetrar af jarðefni.
Á eigin ábyrgð upp á Þúfu
Verkið er skúlptúr en ekki útivistarsvæði eða leikvöllur
Alls tóku 15 fyrirtæki þátt í útboði
um rekstur þjónustumiðstöðvar á
Skarfabakka í Sundahöfn í Reykja-
vík. Fyrirtækið Drífa ehf. bauð best
og tekur því við rekstri þjónustu-
miðstöðvarinnar hinn 1. maí nk. en
samningurinn er til fimm ára.
Drífa ehf. er rúmlega fjörutíu
ára gamalt fyrirtæki sem sérhæfir
sig í rekstri ferðamannaverslana en
fyrirtækið framleiðir einnig útivist-
arfatnað undir vörumerkinu Ice-
wear. Fram kemur á vef Faxaflóa-
hafna að Drífa ehf. hyggst bjóða
farþegum skemmtiferðaskipa upp á
ýmsa þjónustu og m.a. bjóða til sölu
íslenskar lopapeysur, íslenskt
handverk og matvæli.
Einnig ætli fyrirtækið að bjóða
ferðir til nágrannastaða Reykjavík-
ur, bílaleiguþjónustu og hugsan-
lega geta farþegar leigt reiðhjól.
Þjónustumiðstöðin hefur verið
starfrækt í fimm ár. sisi@mbl.is
Faxaflóahafnir semja við Drífu ehf. um
rekstur þjónustumiðstöðvar á Skarfabakka