Morgunblaðið - 13.02.2014, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.02.2014, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2014 Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) ◊ 108 Reykjavík ◊ Sími 588 4499 ◊ mostc.is ◊ Möst.C Opið alla virka daga 12-18 og laugardaga frá 11-16 Tískuvöruverslun fyrir konur á öllum aldri Full búð af nýjum vörum á frábæru verði Túnika kr. 5.990 Kjóll kr. 14.900 Fiðrildabolur kr. 5.990Peysa kr. 10.900 Nýsköpunarverðlaun forseta Ís- lands verða afhent á Bessastöðum í dag en stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna hefur valið fimm verk- efni sem öndvegisverkefni og til- nefnt til verðlaunanna. Eva Dís Þórðardóttir og Gísli Rafn Guðmundsson standa að verk- efni um hjólaleiðir á Íslandi. Í því fólst að vega og meta hjólaleiðir á Íslandi út frá kröfum svonefnds EuroVelo-verkefnis en það heldur utan um meginkerfi reiðhjólaleiða í Evrópu og er ætlað að stuðla að sjálfbærri ferðamennsku. Tilgang- urinn er að koma einni leið á Íslandi á kort EuroVelo. Verkefni Fannars Benedikts Guðmundssonar, nemanda við Há- skóla Íslands, snýst um hönnun á rafsegulfastefni og var það unnið í samstarfi við stoðtækjaframleið- andann Össur. Verkefnið fólst í að athuga hvort raunhæft væri að nota segulvirka elastómera til þess að gera stífni stoðtækja breytilega. Kai Köhn, Karl Andrés Gíslason og Marínó Páll Valdimarsson, nem- endur við Delft-tækniháskólann eru tilnefndir fyrir verkefni um myndræna framsetningu upp- skrifta. Með lausn þeirra eru upp- skriftir krufnar til mergjar og þeim komið fyrir á tímalínu á mynd- rænan hátt þar sem hver aðgerð er auðsjáanleg og skiljanleg. Útsetur þjóðlögin fyrir fiðlu Karen Kristín Ralston, nemandi við HÍ, er tilnefnd fyrir verkefni sitt um myndræna málfræði fyrir börn sem eru greind með einhverfu og málhömlun. Hún útbjó námsefni fyrir börnin með tilliti til þess að þjálfa málkunnáttu þeirra á mynd- rænan hátt, bæði skriflega og munnlega með það markmið að mynda grunnþekkingu á íslensku málfræðikerfi. Er efnið útskýrt með myndum og formúlum. Verkefni Sigrúnar Harðardóttur, nemanda við Lamont-tónlistarskóla Denver-háskóla, um útsetningar á þjóðlögum fyrir einleiksfiðlur og fiðludúó er einnig tilnefnt. Með því er leitast við að vekja áhuga á ís- lenskri þjóðlagahefð og glæða hana nýju lífi. Með útsetningunum er gömlum íslenskum menningararfi blandað saman við nútíma- tónsmíðar og fiðlutækni. Stjórn Nýsköpunarsjóðsins er skipuð fulltrúum Rannís, mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Stúdentaráðs HÍ, Samtaka iðnaðar- ins og Reykjavíkurborgar. Fjölbreytt verk- efni tilnefnd í ár  Forseti veitir nýsköpunarverðlaun Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins - þjónustukönnun Könnunina gerði Maskína - www.maskina.is Traust til heilsugæslunnar Hversu mikið eða lítið traust berð þú almennt til heilsugæslunnar? Ánægja með þjónustu Almennt séð hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu með þjónustu heilsu- gæslunnar þinnar? Afgreiðsla erindis Myndir þú segja að leyst hafi verið vel eða illa úr erindi þínu síðast þegar þú komst á heilsugæsluna þína? Tímapantanir Gekk þér vel eða illa að fá hentugan tíma á heilsugæslunni þinni síðast þegar þú leitaðir eftir því? Áhrif efnahagshruns Finns þér þjónustan á heilsugæslunni þinni vera betri, verri eða svipuð nú og fyrir efnahagshrun 2008? Mjög mikið 26,5% Fremur mikið 48,7% Í meðallagi mikið/lítið 20,8% Fremur lítið 3,1% Mjög lítið 0,8% Mjög ánægð(ur) 45,3% Fremur ánægð(ur) 37,7% Í meðall. ánægð(ur)/óánægð(ur) 12,2% Fremur óánægð(ur) 3,9% Mjög óánægð(ur) 0,9% Mjög vel 62,6% Fremur vel 26,2% Í meðallagi vel/illa 7,6% Fremur illa 2,3% Mjög illa 1,3% Mjög vel 40,8% Fremur vel 28,5% Í meðallagi vel/illa 14,6% Fremur illa 10,9% Mjög illa 5,3% Miklu betri nú eftir hrun 2,1% Nokkru betri nú eftir hrun 8% Svipuð/Eins og fyrir hrun 70,6% Nokkru verri nú en fyrir hrun 15,8% Miklu verri nú en fyrir hrun 3,5% 2,1% 8,0% 70,6% 15,8% 3,5% 40,8% 28,5% 14,6% 10,9% 5,3%1,3% 62,6% 26,2% 7,6% 2,3% 45,3% 37,7% 12,2% 3,9% 0,9% 26,5% 48,7% 20,8% 3,1% 0,8% Guðni Einarsson gudni@mbl.is Nærri 89% þeirra sem komu á heilsugæslustöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) í nóv- ember og desember sl. töldu að mjög eða frekar vel hefði verið leyst úr erindum þeirra. Þá voru 83% notenda mjög eða frekar ánægð með þjónustu heilsugæsl- unnar. Rúmlega 75% svarenda kváðust bera mikið eða frekar mikið traust til HH. Einungis tæp- lega 4% notenda báru lítið traust til hennar. Þetta sýndi þjón- ustukönnun sem Maskína gerði fyrir HH. „Niðurstaðan var ánægjuleg. Ekki síst ef hafður er í huga sá mikli niðurskurður sem heilsu- gæslan hefur gengið í gegnum,“ sagði Svanhvít Jakobsdóttir, for- stjóri HH. „Við erum sátt við að halda ánægju fólks með þjón- ustu stofnunar- innar þrátt fyrir mikið aðhald í rekstrinum. Því ber m.a. að þakka frábæru starfsfólki sem hefur lagt mikið á sig og verið tilbúið að laga sig að breyttum aðstæðum til að halda upp sem bestri þjónustu.“ Þegar notendur voru beðnir að nefna það sem brýnast væri að bæta úr nefndu 57,1% það að stytta biðtíma. Þá sögðu 31,1% að auðveldara þyrfti að vera að ná sambandi við starfsfólk eða lækni í síma. Hvað þarf til að bæta úr þessu? „Um 70% notenda telja að þeir hafi fengið hentugan tíma hjá heilsugæslunni. En vissulega bendir ríflega helmingur á að hann vilji stytta bið. Við teljum að það muni lagast með efldri heilsu- gæslu og bættri mönnun,“ sagði Svanhvít. Könnuð var ánægja fólks með þjónustu á fimmtán heilsugæslu- stöðvum HH. Af þeim fengu níu „græna einkunn“ hærri en 4,2 af 5 mögulegum. Sex stöðvar voru með „gula einkunn“ frá 3,96 til 4,18 en það þykir vera merki um tækifæri til nokkurra úrbóta. „Einstaka stöð hefur glímt við manneklu,“ sagði Svanhvít. „Mark- mið okkar er að fjölga „grænu“ stöðvunum. Við vitum að stöðvar sem fengu „gula einkunn“ hafa ekki verið með allar stöður setnar. Ekki aðeins vegna niðurskurðar heldur hefur ekki tekist að manna allar lausar stöður.“ Einhverjum stöðum sérfræðinga hefur verið breytt í sérnámsstöður og eru setnar af læknum í sérnámi. Áhugi lækna á að stunda sérfræðinám hefur aukist verulega og fjölgað hefur verið nemum í sérfræðinámi innan HH. Einnig hafa læknar sem ekki hafa sérfræðileyfi verið ráðnir til skamms tíma. En hvað um að gera fólki auð- veldara að ná tali af læknum eða starfsfólki stöðvanna í síma? Svanhvít sagði það krefjast meiri mönnunar. Ekki hefur verið reiknað út hvað myndi kosta að auka símaþjónustu heilsugæsl- unnar í ljósi niðurstöðu könnunar- innar. Athyglisvert er að 28,7% þátttakenda lýsti áhuga á auknum rafrænum samskiptum við heil- brigðisstarfsfólk. „Við höfum verið í heilmiklum aðhaldsaðgerðum á undanförnum árum. Fólk hefur tekið á sig kjaraskerðingar, við höfum tekið út yfirvinnu og það hefur dregið úr vinnumagninu,“ sagði Svanhvít. Einnig var spurt um hve ánægt fólk væri með sína heilsugæslu- stöð. Í ljós kom að 83% svarenda voru ánægð en innan við 5% voru óánægð. Karlar (86,6%) voru ánægðari með þjónustuna en kon- ur (81,5%) og óx ánægja fólks með hækkandi aldri. Framkvæmd könnunarinnar Fólk sem kom á 15 heilsugæslu- stöðvar HH í nóvember og desem- ber 2013 var beðið um að taka þátt í könnuninni. Spurningalistar voru sendir til þeirra sem höfðu tölvupósföng og hringt til hinna. Alls voru sendir spurningalistar með tíu spurningum til 3.807 not- enda heilsugæslunnar á tímabilinu 28. nóvember til 20. desember. Svör fengust frá 3.101 notanda og var svarhlutfallið því 81,5%. Ánægja með þjónustu heilsugæslu  Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins þykir almennt veita góða þjónustu samkvæmt nýrri þjónustu- könnun  Ánægjuleg niðurstaða, ekki síst í ljósi mikils niðurskurðar, að mati forstjórans Svanhvít Jakobsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.