Morgunblaðið - 13.02.2014, Page 10
Íslenskar konur Sannlega góðir ljósmyndarar sem gaman er að kynnast.
Í dag kl. 14 býður Þjóðminjasafn Ís-
lands leiðsögn sem sérstaklega er
ætluð foreldrum í fæðingarorlofi.
Víða eru starfræktir svokallaðir
foreldramorgnar en með leiðsögn
fyrir foreldra í fæðingarorlofi vill
Þjóðminjasafnið taka þátt í þjónustu
fyrir þennan hóp fólks. Að þessu
sinni verður sýningin Betur sjá augu,
Ljósmyndun íslenskra kvenna 1872-
2013 í Myndasal safnsins skoðuð. Á
sýningunni er að finna ljósmyndaverk
eftir 34 konur sem eiga það
sameiginlegt að hafa unnið við ljós-
myndun hér á landi, flestar sem at-
vinnuljósmyndarar en einstaka sem
áhugaljósmyndarar. Í þessum mynd-
um nýtur persónuleg sýn og sköpun
ljósmyndaranna sín vel. Myndirnar í
Þjóðminjasafni tiheyra flokknum fjöl-
skylda/heimilislíf og portrett/
mannlíf. Leiðsögnin er ókeypis og all-
ir foreldrar í fæðingarorlofi eru vel-
komnir.
Endilega …
… fáið leiðsögn í fæðingarorlofi
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2014
STOFNAÐ1987
einstakt
eitthvað alveg
Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n S k i p h o l t 5 0 a | S í m i 5 8 1 4 0 2 0 | w w w . g a l l e r i l i s t . i s
M
ál
ve
rk
:
Si
g
u
rb
jö
rn
Jó
n
ss
o
n
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég keyri sjálf blómin ogpakkana til viðtakendaog það er besti parturinnaf þessu starfi, að fá að
afhenda á tröppunum heima hjá
fólki. Viðtakendur eru alltaf mjög
ánægðir, því fæstir eiga von á send-
ingu og eru skemmtilega hissa og
glaðir að sjá mig með blóm í fanginu.
Ég hef fengið mörg knús og kossa,“
segir Eva Sæland en hún stofnaði
nýlega vefverslunina Reykjavík Gift
Shop. „Þetta er alhliða gjafaþjón-
usta og góður valkostur fyrir þá sem
vilja spara sér tíma og fyrirhöfn.
Fólk fer inn á síðuna, velur blóm,
gjafavöru og kort, ég skrifa textann í
kortið, pakka öllu inn og kem gjöf-
inni til viðtakanda. Þetta er líka frá-
bær valkostur fyrir þá sem búa í út-
löndum og langar að senda ætt-
ingjum eða vinum blóm og gjöf á
stórum stundum.“
Fyrsti launaseðillinn
Blómvendirnir hjá Evu koma
beint frá bónda og eru handbundnir
heima í sveitinni hennar, en hún er
dóttir blómabændanna Áslaugar og
Sveins Sæland sem búa á Espiflöt í
Biskupstungum. „Axel bróðir minn
hefur tekið að mestu við búinu og Ív-
ar bróðir minn sér um að mynda fyr-
ir mig það sem ég set á síðuna, svo
þetta er sannkölluð systkinasam-
vinna. Þetta er notaleg samvinna, ég
bý í bænum, fer heim í sveitina um
helgar og þar dúllum við Ívar okkur
við myndatöku og pabbi setur saman
vendina fyrir mig. Hann er fullkom-
inn hugmyndasmiður að vöndunum“
Eðli málsins samkvæmt eru
blóm Evu nánast í blóð borin og hún
var mjög ung þegar hún byrjaði að
vinna í blómunum heima á Espiflöt.
„Ég held að ég hafi fengið minn
fyrsta launaseðil þegar ég var sjö
ára. Frá því við systkinin gátum
unnið og nýst eitthvað til verka vor-
um við á launaskrá hjá foreldrum
okkar. Ég vann við blómin alveg
fram til tvítugs og þá var ég vissu-
lega búin að fá nóg af þeim, flutti til
Ítalíu og síðar til Danmerkur og
Englands,“ segir Eva sem flutti
heim fyrir rúmi ári og starfar sem
rekstrarstjóri hjá Kron ehf. „Mér
finnst svo gaman að sinna þeim
rekstri að það kveikti hugmyndina
Ég hef fengið mörg
knús og kossa
Eva Sæland var ekki há í loftinu þegar hún byrjaði að vinna við blómin heima á
Espiflöt þar sem hún ólst upp hjá blómabændunum foreldrum sínum. Nú rekur
hún sitt eigið fyrirtæki, alhliða gjafaþjónustu með blóm og gjafavöru. Axel bróðir
ræktar blómin, Ívar bróðir tekur myndir og pabbi setur saman vendina.
Blómafjölskyldan á Espiflöt Sveinn, Áslaug, Ívar, Eva og Axel.
Ljósmynd/Ívar Sveinsson
Eva Kemur færandi hendi, hér með pakka og uppáhladsblómin sín, liljur.
Bergrós Kjartansdóttir og Dýrfinna
Torfadóttir ætla að opna sýningu á
safnasvæðinu Görðum, Akranesi,
næstkomandi laugardag 15. febrúar
kl. 14. Þar sýnir Bergrós handprjón-
aðar flíkur sem hún hefur hannað, en
hún ætlar líka að kynna vef sinn
tíbrá.is. Dýrfinna sýnir nýjustu skart-
gripalínuna sína. Dýrfinna Torfadóttir
er gullsmiður á Akranesi og Bergrós
Kjartansdóttir er prjónahönnuður og
býr í Reykjavík, en báðar eru þær
fæddar og uppaldar á Ísafirði. Á síð-
unni tíbrá.is er hægt að skoða hönn-
un Bergrósar og á vefsíðunni didi-
torfa.com er hægt að skoða það sem
Dýrfinna er að gera, skart, skúlptúra
og lágmyndir. Þetta eru heldur betur
skapandi vestfirskar konur sem fara
sínar eigin leiðir. Í verkum Dýrfinnu
eru sögð kallast á nálægð sjávar,
hrikaleg fjöll og hin viðkvæma vest-
firska flóra. Sjávarskart fjallkon-
unnar er til dæmis eitt af því sem
komið hefur úr smiðju hennar, en það
er hálsmen þar sem hún sækir
mynstrin í íslenska skautbúninga-
hefð. Allir eru velkomnir á opnunina á
laugardaginn á Akranesi.
Vefsíðan www.diditorfa.com
Sjávarskart Munstrið sækir Dýr-
finna í íslenska skautbúninginn.
Sýning
Bergrósar og
Dýrfinnu
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.