Morgunblaðið - 13.02.2014, Blaðsíða 15
Q1 Q2 Q3 Q4
Hrein ný útlán stóru viðskiptabankanna þriggja til heimila*
Í milljörðum króna á 1. - 4. ársfjórðungi 2013
*Ný útlán að frádregnum uppgreiðslum.Að teknu tilliti til uppgreiðslna eru ný verðtryggð íbúðalán hærri en óverðtryggð árið 2013. Heimild: Peningamál Seðlabanka Íslands
12
10
8
6
4
2
0
-2
Óverðtryggð Verðtryggð Í erl. gjaldmiðlum Eignaleigusamningar
Q1 Q2 Q3 Q4 Q1 Q2 Q3 Q4 Q1 Q2 Q3 Q4
8,7
10,5
9,9
8,3
1,0
3,5
2,0
3,3
-0,5 -0,1 -0,6 -0,8
2,1 2,5
2,8 2,4
ur á vægi nýrra verðtryggðra og
óverðtryggðra íbúðalána árið 2013
því að bíða.
Þá ber að nefna að ofangreind
sundurliðun útlána eftir ársfjórð-
ungum er unnin samkvæmt nýrri að-
ferðafræði hjá Seðlabankanum og er
því ekki hægt að bera tölurnar sam-
an við gögn frá fyrri árum.
Heildarstofn útlána minnkar
Fram kemur í Peningamálum að
þrátt fyrir aukningu nýrra útlána
haldi gengis- og verðleiðrétt bókfært
virði heildarstofns útlána áfram að
minnka. Sökum þess að ekki eru til
samanburðarhæfar upplýsingar um
útlán síðustu ára er ekki hægt að
draga ályktanir um þróunina. Þá til
dæmis hvort þrengra aðgengi að
lánsfé kunni að skýra að hluta
minnkun heildarstofns útlána 2013.
Morgunblaðið sagði frá því í fyrra-
sumar að verðtryggð íbúðalán væru
aftur vinsælli en óverðtryggð íbúða-
lán. Leiðrétti Morgunblaðið þá frétt
sl. haust í frétt sem byggðist á tölum
úr Peningamálum. Virtust þær tölur
benda til að óverðtryggð íbúðalán
hefðu verið vinsælli á fyrstu níu
mánuðum síðasta árs en verðtryggð
íbúðalán á sama tímabili.
Nú er hins vegar komið í ljós að
verðtryggðu íbúðalánin voru eftir
allt vinsælli í fyrra en á móti var jafn-
framt meira um uppgreiðslur slíkra
lána. Sem áður segir liggja ekki fyrir
endanlegar tölur um þróun þeirra í
fyrra. Samkvæmt upplýsingum frá
Seðlabankanum stóðu verðtryggð
útlán með veð í íbúð í 1.210 millj-
örðum króna um áramótin en óverð-
tryggðu lánin voru þá 133 milljarðar.
Fram kemur í Peningamálum að
hrein ný útlán Íbúðalánasjóðs hafi
verið neikvæð um 4,4 milljarða
króna í fyrra.
Minnihluti lána óverðtryggður
Verðtryggð íbúðalán voru vinsælli en óverðtryggð íbúðalán í fyrra Heimilin tóku 7 milljarða bílalán
Gengislánadómar lækka skuldir heimila Hrein ný óverðtryggð útlán heimila voru 37,4 milljarðar
Morgunblaðið/Ómar
Mýrargata 26 Framkvæmdum við þetta fjölbýlishús lýkur næsta sumar.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Meirihluti nýrra útlána innlánsstofn-
ana til heimila í fyrra var verð-
tryggður. Séu uppgreiðslur lána hins
vegar dregnar frá er niðurstaðan sú
að vægi óverðtryggðra lána af hrein-
um nýjum útlánum er hærra.
Þetta má lesa í nýjum Peninga-
málum Seðlabanka Íslands og er
þróunin eftir ársfjórðungum sýnd á
myndrænan hátt hér fyrir ofan.
Tölurnar sýna hrein ný útlán, þ.e.
ný útlán að frádregnum upp-
greiðslum. Á þann mælikvarða voru
óverðtryggð lán 37,4 milljarðar, bor-
ið saman við 9,9 milljarða verðtryggð
lán, alls 47,2 milljarðar króna.
Stærstur hluti þessara lána var með
veði í íbúðarhúsnæði. Meirihluti
hreinna nýrra verðtryggðra íbúða-
lána ber breytilega vexti en í tilfelli
óverðtryggðra lána er hlutfallið milli
lána sem bera fasta vexti og breyti-
lega vexti svipað.
Gengisdómar lækka skuldir
Lán heimila í erlendum gjaldmiðl-
um rýrnuðu hins vegar um 2 millj-
arða, m.a. vegna endurútreiknings
ólöglegra gengistryggðra lána í kjöl-
far gengislánadóma.
Hrein ný útlán innlánsstofnana til
heimila vegna eignaleigusamninga
námu 9,8 milljörðum og voru því nær
jöfn verðtryggðum íbúðalánum, að
frádregnum uppgreiðslum. Skv.
upplýsingum frá Seðlabankanum
eru þar af um 7 ma. vegna bílalána.
Sem fyrr segir var meirihluti
nýrra útlána til heimila í fyrra verð-
tryggður. Frekari upplýsingar um
verðtryggðu útlánin liggja ekki fyrir
að svo stöddu og verður samanburð-
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2014
BL ehf / Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar, Reykjanesbæ, 420 0400 – Bílasalan Bílás, Akranesi, 431 2622 – Bílasala Akureyrar, Akureyri, 461 2533 – Bílaverkst. Austurlands, Egilsst., 470 5070 – IB ehf., Selfossi, 480 8080
RENAULT KANGOO II, DÍSIL
Verð:2.541.833 kr. án vsk. / 3.190.000 kr. m. vsk.
1,5 dísil – 90 hestöfl – Eyðsla 4,5 L/100 km*
• Rennihurð á báðum hliðum
• Topplúga að aftan
• Skilrúm með glugga
• Niðurfellanlegt farþegasæti
• Útvarp með USB og AUX tengi
• Handfrjáls símabúnaður
• Hæðarstilling á bílstjórasæti ásamt hitara
• Loftkæling (AC)
www.renault.is
RENAULT – Í LIÐI MEÐ ATVINNUREKENDUM Í 100 ÁR.
Það er ekki að undra að Renault sé stærstur á sviði sendibíla í Evrópu. Eftir meira en 100 ár í bransanum vita þeir hjá
Renault hvað skiptir máli þegar bíllinn er vinnustaðurinn þinn: áreiðanleiki, sveigjanleiki og ekki síst þægindi.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
13
7
3
*Miðað við uppgefnar tölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri.
P
FRÍTT Í
STÆÐI!
FRÍTT Í STÆÐI Á
MIÐBORGARSVÆÐINU
Fyrirhuguð niðurfærsla íbúðalána mun hafa margvísleg
efnahagsleg áhrif og m.a. örva einkaneyslu.
Þetta kemur fram í viðauka með Peningamálum um hin
efnahagslegu áhrif fyrirhugaðrar aðgerðar og áhrif á
verðbólgu 2014-2018. Segir þar að ætla megi að skuldir
heimila geti vegna leiðréttingar að óbreyttu farið úr 102%
af landsframleiðslu á 3. ársfjórðungi 2013 í 94%, þegar
áhrifin eru komin að fullu fram.
Seðlabanki Íslands (SÍ) metur bein auðsáhrif leiðrétt-
ingar alls 121 milljarð og að miðað við þjóðhagslíkan bank-
ans geti þetta aukið einkaneyslu varanlega um tæplega 7
milljarða eða sem nemur 0,7% af áætlaðri einkaneyslu árs-
ins 2013. Fengust þær upplýsingar frá SÍ að hér væri að
öðru óbreyttu átt við áhrif á einkaneyslu til frambúðar.
Skammtímaáhrifin séu metin frá 5,5-8 milljörðum kr.
fyrsta árið sem leiðréttingin kemur til framkvæmda.
Leiðréttingin er tvískipt, annars vegar 80 milljarða
niðurfærsla höfuðstóls verðtryggðra íbúðalána og hins
vegar 70 milljarða afborganir inn á höfuðstól íbúðalána í
gegnum skattleysi á úttektum séreignarsparnaðar. Segir í
greiningu Seðlabankans að niðurfærslan létti greiðslu-
byrði heimila um 2,5 milljarða í ár og um 5-5,5 milljarða á
ári eftir það. Að viðbættri úttekt séreignar léttist greiðslu-
byrðin alls um 2,7 milljarða í ár og léttist hún svo frekar í
10,8 milljarða árið 2018.
Greiðslubyrðin minni þar til lán eru uppgreidd
Í svari frá Seðlabankanum vegna þessa er bent á að
höfuðstólsleiðréttingin sé látin eiga sér stað öll í einu um
mitt þetta ár og það þýði minnkun greiðslubyrði sem nem-
ur afborgunum, vöxtum og verðbótum af því sem ríkis-
sjóður yfirtekur frá og með þeim tíma – þ.e. í formi leið-
réttingarhluta – og þar til lánin eru uppgreidd, nema hvað
allar greiðslur verðtryggðra lána hækki með verðlagi.
Minnkun greiðslubyrði vegna greiðslna inn á höfuðstól
með séreignarsparnaði létti greiðslubyrðina smátt og
smátt frá því að hún kemur til framkvæmda um mitt þetta
ár og þar til henni lýkur þremur árum síðar, nema hvað
allar greiðslur verðtryggðra lána hækki með verðlagi. Eft-
ir það helst sú minnkun greiðslubyrði þar til lánin eru upp-
greidd. Í greinargerð SÍ er bent á að lægri greiðslubyrði
auki ráðstöfunartekjur heimila. Á hinn bóginn er bent á að
innflutningur kunni að aukast vegna rýmri ráðstöfunar-
tekna og meiri einkaneyslu en ella. Sú þróun geti þrýst
gengi krónu niður og þannig ýtt undir verðbólgu.
Áætlar SÍ að áhrif leiðréttingarinnar á verðbólguna
verði líklega lítil í ár en leiði til 0,2 prósentum hærri verð-
bólgu 2015 en ella, og 0,4 prósentum hærri verðbólgu
2016-17. Þá er talið líklegt að vextir SÍ verði 0,3 prósent-
um hærri í ár og 0,6 prósentum hærri 2015 vegna leiðrétt-
ingar og tæplega 1 prósenti hærri 2016-18. Leiðréttingin
geti skapað framleiðsluspennu sem brugðist verði við með
hærri vöxtum en ella. Þá verði hagvöxtur 0,2 prósentum
meiri 2014-2018 en ella. Fram kemur í greiningu SÍ að
bankaskattur muni skila ríkissjóði 62 ma. umfram þá 92
ma. sem ráðstafað verður vegna leiðréttingar. Gert er ráð
fyrir að 36 ma. af 154 komi frá starfandi fjármálafyrir-
tækjum en 118 ma. frá búum fallinna fjármálafyrirtækja.
Sigurður Hannesson, formaður sérfræðingahóps um
leiðréttingu verðtryggðra íbúðalána, segir aðspurður að
gert hafi verið ráð fyrir því í haust að bankaskattur skilaði
um 14 milljörðum í ár. Sú tala hafi verið hækkuð um 22-23
ma. eftir að leiðréttingin var kynnt 30. nóv. sl., enda hafi
skatturinn þá verið hækkaður. Því séu 62 milljarða um-
framtekjur ríkissjóðs þessi fjögur ár hinar upphaflegu
skatttekjur sem skatturinn hefði skilað.
Seðlabankinn metur áhrif niðurfærslu íbúðalána
Einholtsreiturinn Búseti hyggst reisa hér 205 íbúðir.
Leiðréttingin eykur hagvöxt
Morgunblaðið/Ómar