Morgunblaðið - 13.02.2014, Page 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2014
Rauð viðvörun vegna óveðurs
Hæsta hættustig vegna aftakaveðurs í Bretlandi Ekkert lát á flóðunum
Breska veðurstofan gaf í gær út „rauða viðvörun“,
sem er hæsta hættustigið, vegna aftakaveðurs á
norðvestanverðu Englandi og í vesturhluta Wales.
Þetta er í fyrsta skipti í vetur sem veðurstofan gef-
ur út rauða viðvörun sem felur í sér að hætta er
talin á manntjóni og miklu eignatjóni og fólk er
hvatt til að forðast hættusvæðin.
Að sögn fréttavefjar breska ríkisútvarpsins var
talið að vindhraðinn gæti orðið allt að 55 m/s. Ótt-
ast var að fárviðrið myndi valda rafmagnsleysi og
varað var við háum öldum á strandsvæðum í
vestanverðu Wales og norðvesturhluta Englands.
Ekkert lát var á flóðum vegna mikils úrhellis í
Bretlandi síðustu daga og spáð var áframhaldandi
rigningu víða á landinu í gær. Íbúum á fjórtán
stöðum var talin stafa hætta af flóðum í sýslunum
Birkshire og Surrey, vestan við Lundúnir, og á
tveimur stöðum í Somerset á suðvestanverðu
Englandi. Vatn hefur flætt inn í meira en 1.000
íbúðir vestan við Lundúnir eftir að Thames flæddi
yfir bakka sína.
EPA
Allt á floti Björgunarmenn vaða vatn á götu í bænum Staines-upon-Thames í Surrey. Nokkrum íbúum
var bjargað úr umflotnum húsum í bænum í gær eftir að Thames flæddi yfir bakka sína.
Talsmenn stóru flokkanna í Bret-
landi ætla að senda skoskum kjós-
endum þau skilaboð að bresk stjórn-
völd myndu hafna myntbandalagi
við Skotland ef þeir samþykkja sjálf-
stæði í þjóðaratkvæði sem fram fer í
september, að sögn breska dag-
blaðsins The Guardian.
George Osborne, fjármálaráð-
herra Bretlands, Danny Alexander,
talsmaður Frjálslyndra demókrata í
fjármálum, og Ed Balls, talsmaður
Verkamannaflokksins, ætla að vara
skoska kjósendur við því að sjálf-
stætt Skotland geti ekki haldið
pundinu, að sögn The Guardian.
Blaðið hefur eftir skoskum and-
stæðingi sjálfstæðis Skotlands að
slík álitamál geti ráðið úrslitum í
þjóðaratkvæðinu. „Tvær fylkingar
hafa búið um sig í skotgröfum – um
35% styðja sambandið við Bretland
og láta ekki haggast og um 25%
styðja sjálfstæði. Síðan eru um 35% í
miðjunni sem ljá sennilega máls á
sjálfstæði en þurfa að vera alveg viss
um að því fylgi ekki nein hætta,
einkum efnahagsleg.“
Myndu ekki taka við skuldum
Alex Salmond, forsætisráðherra
heimastjórnar Skotlands, vill að
Skotland verði sjálfstætt ríki en
haldi pundinu. Breski seðlabanka-
stjórinn Mark Carney hefur sagt að
að ef sjálfstætt Skotland vilji halda
pundinu þurfi Skotar að sætta sig
við „nokkurt valdaframsal“.
Talsmaður Salmonds sakaði í gær
bresk stjórnvöld um að reyna að
„kúga“ Skota til að greiða atkvæði
gegn sjálfstæði og sagði að Skotar
myndu ekki taka við hluta af skuld-
um Bretlands nema þeir fengju að
halda pundinu. Það myndi stórskaða
bresk fyrirtæki ef bresk stjórnvöld
hafna myntbandalagi við sjálfstætt
Skotland. bogi@mbl.is
Hafna
mynt-
bandalagi
Vill pundið Alex Salmond, forsætis-
ráðherra heimastjórnar Skotlands.
Sjálfstætt Skotland
haldi ekki pundinu
AFP
Um 2.500 hjón voru gefin saman í einu lagi í Suður-Kóreu í gær á vegum
Einingarkirkjunnar, sem kennd er við stofnanda hennar, Sun Myung
Moon. Þetta var önnur fjöldahjónavígslan á vegum kirkjunnar frá því að
Moon lést í september 2012, 92 ára að aldri. Ekkja hans, Hak Ja Han, sem
er 71 árs, stjórnaði hjónavígslunni sem fór fram í höfuðstöðvum kirkjunnar
í Gapyeong, austan við höfuðborgina Seoul. Mörg hjónanna voru pöruð
saman við sérstaka trúlofunarathöfn sem fór fram undir stjórn ekkjunnar
nokkrum dögum fyrir hjónavígsluna.
Þúsundir hjóna gefnar saman í einu lagi
EPA
fi p y j g p
C p iar acc o ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam
með hindberja-vinaigrette og geitaosti Villibráðar-paté prikmeð pa
mauki Bruchetta eykmeð tvír
ðlahangikjöti, bal- samrau
og piparrótarsósu hetBruc
ta með hráskinku, balsam
nmgrill uðu Miðjarðar- hafsgræ
K r a b b a - salat f
ðboskum kryddjurtum í brau
B r u c h e t t a Mimeð
jarðarhafs-tapende aR i s
rækja á spjóti með peppadew Silunga hrogn ónmeð japönsku maj
sinnepsrjóma-osti á bruchettuBirkireykt-ur lax alioá bruchettu með
grillaðri papriku og fetaosti Hörpuskeljar ddju, 3 smáar á spjóti m/kry
taídýfu Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og ferskum berjum ufyVanill
tar vatnsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarberjum nguKjúkli
satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti RisahörpuskSími 511 8090 • www.yndisauki.is
MöndluMix og KasjúKurl
er ekki bara hollt snakk.
Líka gott á salatið.
Hollt oggott frá Yndisauka.
Fæst í: Hagkaupum, Heilsuhúsunum,
Melabúðinni, Fjarðarkaup, Miðbúðinni,
Kjöthöllinni, Hreyfingu, Garðheimum,
Mosfellsbakaríi og Bakaríinu við brúna
Akureyri.
Vísindamenn
hyggjast rað-
greina allt gena-
mengi Ríkharðs
3. til að afla frek-
ari upplýsinga
um konunginn,
m.a. um háralit
hans, augnalit,
forfeður og
skyldleika við fólk sem lifir núna.
Þetta er í fyrsta skipti sem allt
genamengi sögufrægs manns er
raðgreint, að sögn The Telegraph.
Bein konungsins fundust undir
bílastæði í Leicester og rannsókn
hefur leitt í ljós að hann var krypp-
lingur. Ennfremur hafa fundist vís-
bendingar um að hann hafi verið
með þráðorm, sníkil sem var al-
gengur á Englandi þegar Rík-
harður var uppi. Vísindamenn vona
að DNA-rannsóknin leiði m.a. í ljós
hvort málverk, sem til eru af hon-
um, gefi rétta mynd af útliti hans.
ENGLAND
Genamengi Rík-
harðs 3. raðgreint