Morgunblaðið - 13.02.2014, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2014
Varsjá. AFP. | Tugir hjóna halda á
kampavínsglösum, gráhærð og
skælbrosandi, við hátíðlega athöfn
þeim til heiðurs í Varsjá. Þau hafa
lifað af 50 ára hjónaband og í Pól-
landi telst það yfrið nóg til að verð-
skulda orðu frá forsetanum.
„Til að uppfylla skilyrðið þarf fólk
að skila heilum 18.000 vinnudögum.
Það krefst miklu minni vinnu að fá
aðrar orður, þannig að það er veru-
legt afrek að vera saman í hnapp-
heldunni í hálfa öld,“ sagði Hanna
Gronkiewicz-Waltz, borgarstjóri
Varsjár, þegar hún ávarpaði hjónin
við athöfnina.
Hjónin ganga ein í einu eftir rauð-
um dregli til að taka við orðunni sem
er silfurhúðuð með samanfléttaðar
rósir í miðjunni og bleikan borða.
Fjölskyldur þeirra fylgjast með og
fagna fyrir aftan þau í Brúðkaups-
höllinni svonefndu í Varsjá.
Á ári hverju eru að meðaltali
veittar 65.000 orður fyrir gullbrúð-
kaup í Póllandi, samkvæmt upplýs-
ingum frá pólska forsetaembættinu.
Hjón eru heiðruð í fleiri löndum þeg-
ar þau ná þessum áfanga, til að
mynda fá bandarísk hjón kveðju frá
forsetanum í Hvíta húsinu þegar þau
halda upp á 50 ára hjúskaparafmæli.
Bretar þurfa hins vegar að vera í 60
ár í hjónabandi til að fá kveðju frá
drottningu sinni. Sjálf náði Elísabet
2. þeim áfanga fyrir sjö árum.
Pólland er hins vegar eina landið
þar sem hjón fá orðu frá forsetanum
þegar þau halda upp á gullbrúð-
kaupið, að sögn Megan Robertson,
54 ára forritara sem heldur uppi vef-
síðu um orður í heiminum. Miklu al-
gengara er að orður séu veittar fyrir
hetjudáðir í hernaði.
Vísbending um gildismat
Robertson segir að mörg dæmi
séu um að konur hafi fengið orður
fyrir að fæða mörg börn, einkum í
kommúnistaríkjum. Þegar komm-
únistar voru við völd í Rúmeníu hafi
konur fengið „orðu móðurhetj-
unnar“ eftir að hafa fætt tíu börn.
„Það er reyndar heilmikil hetjudáð í
mínum augum.“
Robertson bætir við að orðuveit-
ingar séu vísbending um hvað þjóðir
telji mikilvægt, hvort sem orðurnar
eru veittar fyrir einhver ákveðin
störf, svo sem hermennsku, eða fyrir
að geta af sér nógu mörg börn fyrir
verksmiðjurnar og herinn.
Pólska gullbrúðkaupsorðan var
fyrst veitt árið 1960, að sögn Marcin
Zaremba, sagnfræðiprófessors í
Varsjá. Hann segir að orðan hafi
verið liður í „íhaldsbyltingu“ í Pól-
landi eftir dauða Jósefs Stalíns.
Orðan endurspegli afstöðu pólsku
valdaelítunnar til stalínismans og
afturhvarfs hennar til hefðbundinna
fjölskyldugilda. Leiðtogi pólska
kommúnistaflokksins á þessum
tíma, Wladyslaw Gomulka, hafi sjálf-
ur verið í farsælu hjónabandi og haft
ímugust á skilnuðum og hjúskapar-
brotum.
Skilnuðum hefur fjölgað í Póllandi
á síðustu áratugum. Árið 1980 hafði
13% hjónbanda lokið með skilnaði,
en tæpum 32% árið 2012. Skiln-
aðarhlutfallið er þó enn miklu lægra
í Póllandi en í löndum á borð við
Lettland og Portúgal þar sem 70%
hjónabanda lýkur með skilnaði.
Fá orðu fyrir
gullbrúðkaup
Hjón heiðruð fyrir 50 ára hjúskap
AFP
Afrekaði hálfa öld í hjónabandi Stoltur afi sýnir barnabarni orðuna sína eftir athöfn í Brúðkaupshöllinni í Varsjá.
AFP
Gullbrúðkaup Heiðurshjón með
orðu frá forseta Póllands fyrir 50
ára hjónaband í blíðu og stríðu.
CRÉATIVE TECHNOLOGIE
Frábær vinnuaðstaða með góðu aðgengi fyrir farm og farþega. 180° opnun á afturhurðum, rennihurð, þægileg
hleðsluhæð, há sætisstaða og fjöldi geymsluhólfa. Öflug en sparneytin 90 hestafla dísilvél ásamt spólvörn og ESP
stöðugleikakerfi gera Berlingo Van að öruggum og hagkvæmum kosti fyrir þinn rekstur.
KOMDU OG PRÓFAÐU CITROËN BERLINGO VAN
citroen.is
• 3,3 M - 4,1 M HLEÐSLURÝMI • 850 KG BURÐARGETA • 3JA MANNA • SPARNEYTINN •3 3
Útbúnaður og gerð getur verið frábrugðin mynd í auglýsingu
BETRI REKSTUR OG AUKIN ÞÆGINDI
CITROËN BERLINGO VAN 1,6 HDi 90 hö dísil
VERÐ FRÁ: 2.382.470 KR. ÁN VSK
VERÐ FRÁ: 2.990.000 KR. MEÐ VSK
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050