Morgunblaðið - 13.02.2014, Síða 23
mun jafna sveiflur að hluta. Krónan
er óþörf og gengisfellingar skaðleg-
ar.
2. Orkufrekur iðnaður, orku-
vinnsla og álver. Sveiflur í eft-
irspurn eftir afurðum hefur mest
áhrif á afkomuna. Lækkun krónu
veldur vanda fremur en hitt sbr.
vandræði Orkuveitu Reykjavíkur
vegna gengislána.
3. Ferðaþjónusta gefur út
verðskrár í evrum og dollar. Geng-
isáhætta minnkar við að kostnaður
fellur til í sömu mynt. Ferðamönn-
um fjölgar með lægra verði vöru og
þjónustu og þeir munu versla
meira.
4. Skapandi greinar og hátækni-
iðnaður, fyrirtæki eins og Össur,
Marel, Íslensk erfðagreining, kvik-
myndagerð, tónlistarmenn og hug-
búnaðargerð þurfa sárlega traustari
efnahagsumgjörð. Fjármagnshöftin
koma illa við þessar greinar. Ef
umgjörðin batnar fara fyrirtækin
síður úr landi, fjárfesting í nýsköp-
un vex og vel launuðum störfum
fjölgar.
5. Bankarnir hagnast á stöð-
ugleika og minni gengisáhættu.
Með evruna, ekki síst ef Ísland fær
aðild að hinu nýja bankasambandi
gegnum EES, fáum við væntanlega
erlenda banka hingað, samkeppni
við okkar banka og lægri vexti. Er-
lendir bankar minnka hættu á
krosseignatengslum og samþjöppun
eignarhalds í bankarekstri, sem var
einn helsti vandinn fyrir hrun. Okk-
ar bankar munu geta hafið starf-
semi erlendis, í þetta sinn með
traustri umgjörð. Fjármagnskostn-
aður á Íslandi er talin lækka um
tugi ef ekki hundruð milljarða
króna á ári við evru. Fyrir skuld-
ugri heimil lækka vextir og verð
vöru og þjónustu vegna þessa um
50 til 100 þús. kr. á mánuði, það er
10-20% af útgjöldum.
6. Verslun verður hagkvæmari
með lægri vöxtum og minni um-
sýslukostnaði. Netviðskipti framtíð-
arinnar verða ódýrari og einfaldari
í sama gjaldmiðli. Þetta lækkar
verð vöru og þjónustu og úrvalið
eykst.
7. Landbúnaðurinn hagnast á
evrunni því flytja þarf inn flest að-
föng svo sem áburð og tæki en út-
flutningur er lítill.
Kjarasamningarnir
Mikilvægt er að ljúka aðild-
arviðræðum að Evrópusambandinu
og búa í haginn fyrir upptöku evru.
Núverandi stjórnarflokkar standa
enn ekki við kosningaloforð um
þjóðaratkvæðagreiðslu um fram-
hald viðræðnanna.
Aðilar að kjarasamningum
standa frammi fyrir þeim vanda að
krónutöluhækkanir launa bæta ekki
kaupmáttinn. Nú eru um ¾ lands-
manna á því að rétt sé að ljúka að-
ildarviðræðunum. Því miður tekur
nokkur ár að fá fram ávinninginn af
ESB og evruaðild. Strax ætti að
opna á tollfrjálsan innflutning land-
búnaðarafurða sem bætir hag heim-
ilanna um 5-10%. Ofurtollar og inn-
flutningsbönn á nauðsynjavöru eru
glórulaus gagnvart heimilunum í
landinu. Kröfur til stjórnvalda í
þessum samningum ættu því að
vera þessar:
1) Opnað verði á tollfrjálsan inn-
flutning landbúnaðarafurða.
2) Haldin verði þjóðaratkvæða-
greiðsla samhliða sveitarstjórn-
arkosningunum í vor um hvort
halda eigi áfram samninga-
viðræðum við Evrópusambandið.
Samtals munu þessir tveir liðir
bæta hag heimilanna líklega um
25% til 40% þegar allt er komið
fram. Að sjálfsögðu fylgja aðild að
Evrópusambandinu ýmsir fleiri
kostir og e.t.v. einhverjir gallar.
Þjóðin mun taka afstöðu til þess
þegar öll spilin eru komin á borðið
og fram líða stundir.
Með von um góða samninga sem
bæta lífskjörin varanlega.
1) Seðlabanki Íslands. Sérritið: Valkostir
Íslands í gjaldmiðils- og gengismálum.
Höfundur er viðskiptafræðingur og
smáatvinnurekandi.
UMRÆÐAN 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2014
Nýverið kom út í
Frakklandi tveggja
binda verk sem fjallar
um samband Íslands
og Frakklands á 19.
öld, Les relations
franco-islandaises au
dix-neuvième siècle.
Útgangspunkturinn
eru hinir frægu leið-
angrar Paul Gaimards
(1835 og 1836) og leið-
angur Jérôme Napóle-
ons (1856), en hann var bróðursonur
Napóleons Bónaparte, keisara. Höf-
undurinn er Gisèle Jónsson (1923-
2013), en hún og maður hennar, Sig-
urður Jónsson, sjávarlíffræðingur
(1926-2007), höfðu um áratugaskeið
safnað til þessa verks. Nútíma-
Íslendingi eru sjálfsagt lítil tíðindi
að erlendir menn ferðist til landsins
og skrifi um það bækur. En á
nítjándu öld var verk Gaimards ein-
hver viðamesta úttekt sem gerð
hafði verið á háttum lands og þjóðar
frá upphafi vega, tólf binda ritsafn
ríkulega skreytt Íslandsmyndum
málarans Auguste Meyer. Öll fram-
ganga hinna frönsku könnuða virðist
hafa komið landsmönnum þægilega
á óvart, ekki síst hve innlifaðan
áhuga þeir báru fyrir menningu og
siðum landsmanna, ólíkt tómlæti
sem þeir áttu að venjast af hálfu ný-
lenduherranna dönsku. Sá sem hafði
menninguna á sinni könnu, Xavier
Marmier, er í senn undrandi á bók-
menntaslagsíðu almennings og full-
ur hneykslunar á bágum húsakosti
og lífskjörum neðan við velsæm-
ismörk. En áhugi hans er ekki ein-
asta fræðilegur, hann
virðist samkvæmt dag-
bókarbrotum sem Gi-
sèle frumbirtir hafa átt
vingott við fjölda
kvenna, stundum er
hann með tvær í takinu
og gerir helstu blóma-
rós bæjarins, Málfríði
Sveinsdóttur, frammi-
stöðustúlku í Klúbbn-
um, barn. Annar eft-
irmáli nefnds
leiðangurs var ári síðar
í Kaupmannahöfn þar
sem Gaimard hafði við-
komu. Af því tilefni efndu íslenskir
stúdentar til samsætis honum til
heiðurs en við það tækifæri orti Jón-
as Hallgrímsson og frumflutti ljóðið
fræga: „Þú stóðst á tindi Heklu
hám.“
Leiðangur Napóleons prins árið
1856 átti sér aðrar og praktískari
rætur. Þegar hér var komið sögu
héldu Frakkar úti miklum fiski-
skipaflota við Íslandsstrendur og
höfðu hug á að bæta enn í, sexfalda
hann jafnvel að stærð og koma í því
skyni á fót um 500 manna þorps-
kjarna við Dýrafjörð sem átti að
þjónusta flotann, reka spítala og
halda úti herskipi með meiru. En Ís-
lendingum þess tíma leist ekki meira
en svo á blikuna og sáu í hendi sér að
með svo miklum umsvifum myndu
Frakkar taka yfir Spánarmarkaðinn
sem landsmönnum var lífsnauðsyn.
Þá var Dönum ekki skemmt sem sáu
í anda hvernig Frakkar myndu færa
sig upp á skaftið og taka á endanum
höndina alla. Eða segjum Englend-
ingum sem þótti nóg að hafa franska
heimsveldið fyrir framan sig þótt
þeir tækju sér ekki stöðu fyrir aftan
þá líka. Í stuttu máli varð ekkert úr
stórframkvæmdum.
En tveggja binda verk Gisèle
Jónsson um samband Íslendinga og
Frakka á nítjándu öld bregður
skæru ljósi á þessa sögu alla ásamt
líflegri atburðalýsingu og frumbirt-
ingu fjölda gagna. Verkið er veglega
útgefið í stóru broti, ríkulega mynd-
skreytt, bæði af grafíkmyndum höf-
undarins og aðfengnum myndum
sem efnið varða. Það ætti að vera ís-
lenskum söfnum ávinningur að eign-
ast þetta verk, svo og öllum áhuga-
sömum um sögu lands og þjóðar á
nítjándu öld.
Forvitnilegt verk
um Ísland á nítjándu öld
Eftir Pétur
Gunnarsson » Tveggja binda verk
Gisèle Jónsson um
samband Íslendinga og
Frakka á nítjándu öld
ætti að vera kærkomið
öllum áhugasömum um
sögu lands og þjóðar.
Pétur
Gunnarsson
Höfundur er rithöfundur.
Í dag verður kynning milli klukkan 15 og 18 í
Náttúrulækningabúðinni, Skólavörðustíg 20.
Prjónahönnuðir Tinnu verða á staðnum og
kynna nýjustu flíkurnar úr ÝR 56.
Skólavörðustíg 20 • Opið mánudag - föstudag 11-18 og laugardaga 11-16
56
V
er
ð
kr
.
2
.1
9
5
·
Ja
nú
ar
2
0
1
4
Brúðarþáttur
í Náttúrulækningabúðina
Rjúkandi heitt
á könnunni
Tilboð á garni,
prjónum og blöðum
- með morgunkaffinu