Morgunblaðið - 13.02.2014, Side 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2014
Eyrún Björg Magnúsdóttir er 35 ára í dag
Á þeytingi Eyrún hefur gaman af því að ferðast og fór m.a. til Möltu
síðastliðið sumar og heimsótti vinkonu sína í Danmörku.
Með kokkadrauma
í kennslustörfin
Mér finnst gaman að eiga afmæli; mér finnst að maður eigi aðfagna því að hafa náð ári í viðbót,“ segir Eyrún BjörgMagnúsdóttir framhaldsskólakennari, sem er 35 ára í dag.
Hún segist ætla að halda upp á daginn á árshátíð nemenda Fjöl-
brautaskóla Suðurlands, þar sem hún kennir félagsfræði og stjórn-
málafræði, en hún segir starf sitt afar gefandi. „Það sem mér finnst
skemmtilegast er að fá krakkana til að hugsa,“ segir hún og bætir
við að áhugi hennar á kennslu hafi einmitt verið kveiktur á fram-
haldsskólaárum hennar.
Í þá daga átti hún reyndar líka annan draum, sem er ástríða í dag.
„Þegar ég var yngri var löngun í mér til að verða kokkur og það
blundar alltaf í mér pínu löngun til að reka smá veitingahús eða svo-
leiðis þjónustu,“ segir Eyrún. „En svo hef ég bara mjög gaman af
því að halda matarboð og elda fyrir fjölskyldu og vini. Prófa eitt-
hvað nýtt. Ég fer mjög sjaldan eftir uppskriftum, þetta er meira til-
finning,“ segir hún.
Eyrún hefur mikinn áhuga á pólitík og samfélagslegri umræðu en
segist verja mestum tíma utan vinnu við uppeldi barnanna þriggja:
13 ára tvíbura og 4 ára gamallar stúlku. Þá er jafnan mikið dýralíf á
heimilinu. „Tvíburastelpan er dugleg að koma með flækingsdýr
heim og reyna að bjarga þeim,“ útskýrir Eyrún, sem er ánægð með
áhugamál dótturinnar. „Börn hafa gott af því að vera í kringum
dýr,“ segir hún. „Þau kenna okkur að hafa tilfinningar og bera
ábyrgð og hugsa um þá sem minna mega sín.“ holmfridur@mbl.is
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reykjanesbær Hrafntinna Þórunn
fæddist 8. maí kl. 3. Hún vó 4390 g og
var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru
Laufey Svala Hill og Hans Ingi Þor-
valdsson.
Nýir borgarar
Kópavogur Sveinn Theodór fæddist
4. október kl. 0.31. Hann vó 3482 g og
var 52 cm langur. Foreldrar hans eru
Margrét Martins Sveinbjörnsdóttir og
Oddur Tryggvi Elvarsson.
S
veinn fæddist í Reykjavík
13.2. 1954 en ólst upp við
Hraunbrautina í vest-
urbæ Kópavogs: „Þar
rak pabbi járn-
smíðaverkstæði á neðstu hæð húss-
ins. Það var mikil gæfa að alast upp
á járnsmíðaverkstæði og hefur
hjálpað mér mikið sem arkitekt.“
Sveinn var í Kársnesskóla og
Gagnfræðaskóla Kópavogs, lauk
stúdentsprófi frá MT og prófi í
arkitektúr frá Arkitektaskólanum í
Árósum 1981.
Að námi loknu starfaði Sveinn á
skipulagsdeild Kópavogsbæjar til
1985, stofnaði þá Arkitektaþjón-
ustuna sf. ásamt frænda sínum
Guðmundi Gunnarssyni arkitekt en
hana ráku þeir í 10 ár. Þá stofnaði
Sveinn stofu undir eigin nafni og
hefur starfrækt hana síðan: „Verk-
efnin hafa verið margvísleg, s.s.
skipulag hverfa og endurskoðun
skipulaga hjá Kópavogsbæ, hönnun
skólabygginga, flugstöðvarbygging
í Kulusuk, en nýjasta verkefnið er
reiðhöll Hestamannafélagsins
Spretts í Kópavogi. Hún er stærsta
reiðhöll landsins.“
Við bankahrunið stofnaði Sveinn
ferðaþjónustufyrtækið IceBlue
sem býður upp á ferðir á sér-
útbúnum jeppum og gistingu í
Sveinn Ívarsson arkitekt – 60 ára
Steinarnir tala Sveinn á æskuslóðum afa síns, meistara Þórbergs, á Hala, ásamt Sindra, vini sínum.
Arkitekt selur norðurljós
„Græna gullið“ Sveinn að selja norðurljósin eins og Einar Benediktsson.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is