Morgunblaðið - 13.02.2014, Qupperneq 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú þarft að taka á honum stóra þín-
um til þess að komast fram úr öllu því sem
gera þarf. Hikaðu ekki við að tjá vini þínum
skoðanir þínar.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú skalt aldrei reikna með stuðningi
annarra sem gefnum hlut. Njóttu þess sem
þú hefur og þakkaðu fyrir það.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft á aðstoð að halda til þess
að hrinda áhugamáli þínu í framkvæmd. Hlát-
ur getur læknað margt en þó ekki allt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur engar efasemdir varðandi
markmið þín og átt því auðveldara með að fá
fólk til samstarfs við þig. Mundu hvað það
getur verið auðvelt að brjóta aðra niður, tal-
aðu því varlega.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú verður hugsanlega valin/n til að
gegna tilteknu hlutverki með mjög áberandi
hætti í dag.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Eitthvað í fari félaga þíns vekur með
þér ugg enda á ýmislegt eftir að koma á dag-
inn. Haltu hugmynd fyrir þig eða milli þín og
náins vinar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Tilfinningarnar koma upp á yfirborðið og
það er í hæsta máta eðlilegt. Enginn ætti að
þurfa að burðast einn með áhyggjur sínar.
Losaðu þig við þínar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Í hita dagsins gefst oft lítill tími
til að hrósa mönnum fyrir þeirra framlag.
Hlustaðu á þá eldri og dragðu lærdóm af því
sem þeir segja.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þetta er góður dagur til að leggja
upp í langferð bæði í bókstaflegum og tákn-
rænum skilningi. Með því að einbeita þér að
því ánægjulega máist það sem miður hefur
farið í minningunni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Reyndu að sjá fyrir næsta skref í
starfi þínu því svo kann að fara að þú þurfir
að taka það fyrr en þú ætlar. Þú færð óvænt-
an reikning, skoðaðu hann vel áður en þú
hleypur til og borgar hann.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Misklíð innan fjölskyldunnar eða
ósætti við viðskiptafélaga mun draga dilk á
eftir sér. Láttu ekki hugfallast heldur gakktu
æðrulaus til verks.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú geislar af gleði og gæðir umhverfi
þitt hlýju og kátínu. Húmorinn þinn er stund-
um svartur, passaðu að fara ekki yfir strikið,
fólk er misviðkvæmt.
Mér hættir til að fara ekkirétt með nöfn eins og kom
fyrir mig í Vísnahorni á laug-
ardag, þegar ég sagði að Helgi
R. Einarsson í Mosfellssveit væri
Jónsson og kann ég enga skýr-
ingu á því, hef enda beðist afsök-
unar. Þessi rangfeðrun tók á sig
mynd í göngutúr Helga með tík-
inni Tátu:
Af þessu hlýst nú tæpast tjón
né teljast syndir neinar
og fagurt nafnið finnst mér Jón
en faðir minn hét Einar.
Í síðustu viku birtust tvær
limrur eftir Kristján Karlsson í
Vísnahorni, þar sem „Lima“ bar
á góma. Fleiri eru kunnugir á
þeim slóðum. Hringfari yrkir:
Flestum er leiðin til Lima
löng (nema gegnum síma).
Þar Mia Farrow
átti mök við Pizarro,
mann, sem er, hreint út sagt prima.
Karlinn á Laugaveginum var
með á nótunum:
Í Reykjavík, London og Líma
er langsótt vor örlagaglíma
í erindisleysu.
Mín er kerling með kveisu
og komst ekki neitt, – nema í síma.
Það eru fleiri heimsborgir en
þessar þrjár. Jóhann Hannesson
orti:
„Ég er gras, Viltu gefa mér tóm?“
mælti gárungi suður í Róm.
Þegar á átti að herða
þorði enginn að verða
við ósk hans. Hún þótti ekki fróm.
Hjálmar Freysteinsson fylgist
vel með:
Nýjar höfum fréttir fengið,
finna má þeim eflaust stað.
Æseif málið afturgengið!
Efnilegur draugur það!!.
Ármann Þorgrímsson yrkir um
góðan gest:
Leti aldrei gefur grið
gleði fer um bekki.
Langafa sinn leikur við
svo leiðist honum ekki.
Jón Hjaltason orti þegar Stein-
grímur J. Sigfússon kvaddi og
vék „í orði“ fyrir Katrínu Jak-
obsdóttur:
Vart mun hann ráð sitt kunna af
kæti
er kænlega bregður á dömuna fæti.
Hann berst ekki á
því enginn má sjá
hver ekur nú bílnum úr aftursæti.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af limrum, draugagangi
og heimsborgum
Víkverji er orðinn nokkuð lang-eygður eftir haldgóðum ráðum
fyrir klakabrynjuna sem hefur ver-
ið yfir mestöllu suðvesturhorninu
síðustu vikur. Sem betur fer virðist
sem að eitthvað hafi hlýnandi veð-
ur náð að bræða klakann. Hið til-
tölulega nýtilkomna töframeðal að
setja sand en ekki salt á klakann
hefur hins vegar ekki skilað neinu
öðru en því að anddyrið að híbýli
Víkverja líkist einna helst sand-
kassa. Víkverji er ekki fyrr búinn
að sópa og ryksuga sandinn í burtu
en annar skammtur er kominn inn.
x x x
Víkverji var nýbúinn að bölva ogragna sandkassanum mikla
heima hjá sér þegar hann tók eftir
því að Dagur B. Eggertsson var
spurður út í það hvort ekki væri
ráð að blanda salti út í sandinn.
Hann tók nú ekki illa í það fyrir ut-
an að það væri alltaf kvartað ef of
mikið salt væri notað. Víkverji tel-
ur að það mætti alveg gera könnun
á því hvort að það sé meirihluti
fólks sem kvartar undan saltinu,
eða í raun bara háværi minnihlut-
inn, sem allt of oft fær sitt fram?
Hvað sem því líður er það þó já-
kvætt að Dagur hafi tekið vel í
þessa fyrirspurn, þó að ólíklegt sé
að nokkuð meira verði gert með
hana.
x x x
Annars hefur vikan ekki veriðmjög spennandi fréttalega séð
og fátt sem hefur virkilega kveikt
glóð í hjarta Víkverja. Það er
kannski helst fréttin um að meiri-
hluti fólks vilji skólagjöld í Háskóla
Íslands. Víkverji ætlar sér engan
veginn að blanda sér í þá umræðu
enda getur öll umræða um skóla-
gjöld orðið býsna heit. Það sem
Víkverja leikur þó forvitni á að vita
er það hvers vegna „skráning-
argjaldið“ svonefnda slagar núna
upp í heilar 75.000 krónur? Síðan
Víkverji var upp á sitt besta hefur
gjaldið hækkað um heilar 50.000
krónur. Varla hefur kostnaðurinn
við það að taka nafn manns niður á
blað aukist svo mikið á einum ára-
tug. Hvenær borgar maður skrán-
ingargjald og hvenær borgar mað-
ur skólagjald? víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Enginn er þinn líki,
Drottinn! Mikill ert þú og mikið er
nafn þitt sakir máttar þíns.
(Jeramía 10, 6.)
54 54 300 • SMIÐJUVEGUR 7 • KÓPAVOGUR
Eina glerverksmiðjan á landinu með vottaða framleiðslu
RENNIHURÐIR Á KYNNINGARVERÐI
Sparar pláss
Öruggt og traust
Einfalt í uppsetningu
Tilbúnar til afgreiðslu
vegghengdar agila 50
rennihurðabrautir með
hertu 8mm sýruþveignu
gleri og fingurgróp á
frábæru verði, 99.500 kr
Í klípu
„ÉG VAR EKKERT AÐ LJÚGA ÞEGAR ÉG
SAGÐI AÐ FÉLAGSMÁLAKERFIÐ VÆRI
EINS OG VÖLUNDARHÚS.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG FRÉTTI AÐ ÞIÐ VÆRUÐ AÐ
LEITA AÐ STARFSMANNI SEM
GÆTI UNNIÐ SJÁLFSTÆTT.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að dreyma um hann
dreyma þig.
SKO, ERFÐA-
GRIPIR.
SEM ELSTI
SONURINN ...
ER KOMIÐ AÐ MÉR
AÐ BERA HATTINN.
VEISTU EINU
SINNI HVAR
HANN HEFUR
VERIÐ?
ÞETTA HLJÓTA
AÐ VERA
MISTÖK ...
VIÐ VORUM EKKI
MEÐ EFTIRRÉTTI.