Morgunblaðið - 13.02.2014, Síða 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2014
Hvernig myndi maðurbregðast við ef maðurynni stóra vinninginn ílottóinu og gæti gert allt
sem mann dreymdi um og keypt allt
sem hugurinn girntist? Þessari
spurningu þarf
Jocelyne að svara í
Óskalistanum eftir
franska rithöfund-
inn Grégoire De-
lacourt í afbragðs-
þýðingu Guðrúnar
Vilmundardóttur.
Í upphafi bókar
er Jocelyne 47 ára
gömul og á tvö
uppkomin börn með eiginmanni sín-
um til rúmlega tuttugu ára. Hún
segist vera hamingjusöm með eig-
inmanni sínum þrátt fyrir að síðar
komi í ljós að hann hafi árum saman
beitt hana bæði líkamlegu og and-
legu ofbeldi. En Jocelyne er sér
raunar meðvituð um að maður sé
„alltaf að ljúga að sjálfum sér“ (bls.
9). Jocelyne rekur eigin vefn-
aðarvöruverslun og heldur úti bloggi
um hannyrðir. Hún þurfti snemma
að sjá fyrir þar sem hún var aðeins
17 ára þegar móðir hennar lést svip-
lega og faðir hennar veiktist fljót-
lega í kjölfarið. Að sögn Jocelyne
hafa draumar hennar „lagt á flótta“
(bls. 21).
Daginn sem Jocelyne vinnur
18.547.301 evru og 28 sent í lottói
eða sem samsvarar tæpum þremur
milljörðum íslenskra króna verða
straumhvörf í lífi hennar. Hún
ákveður að segja engum fréttirnar
strax meðan hún er að átta sig á
hlutunum, enda ljóst að það að „láta
drauma annarra rætast felur í sér þá
áhættu að eyðileggja þá“ (bls. 112).
Jocelyne skoðar líf sitt, gleymda
drauma og væntingar og gerir í
framhaldinu nokkra ólíka óskalista
þar sem bæði má finna efnislega
hluti og markmið.
Framan af bókinni er stíllinn
fremur lágstemmdur og fyrstu per-
sónu frásögnin ræður ríkjum. Les-
endur fá að kynnast Jocelyne og
þeim atburðum sem mótað hafa
hana sem manneskju. Í seinni hluta
bókar færist sjónarhorn söguhöf-
undar yfir á aðrar lykilpersónur
verksins og við þau umskipti verður
bókin fullmelódramatísk. Sagan er
stutt og auðlæsileg, en býður ekki
upp á mikla dýpt í persónusköpun.
Þótt Grégoire Delacourt, höfundur
bókarinnar, velti upp ýmsum áhuga-
verðum spurningum um samspil
auðs og hamingju, þá er úrvinnslan
of grunn til að vera sérlega eft-
irminnileg.
Höfundur Grégoire Delacourt veltir upp spurningum um auð og hamingju.
Er hamingjan föl?
Skáldsaga
Óskalistinn bbmnn
Eftir Grégoire Delacourt. Guðrún Vil-
mundardóttir íslenskaði. 153 bls.
Bjartur, 2014.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
BÆKUR
Bandaríski fornleifafræðingurinn
Jesse Byock heldur erindi hjá Mið-
aldastofu Háskóla Íslands í dag kl.
16.30 í stofu 311 í Árnagarði.
Jesse Byock, sem er prófessor
við UCLA í Bandaríkjunum og Há-
skóla Íslands, stýrir umfangs-
miklum fornleifauppgrefti í Mos-
fellsdal. „Þar hafa fengist
mikilsverðar upplýsingar um lifn-
aðarhætti í Mosfellsdal á öldunum
fyrst eftir landnám þar sem saman
fléttast heiðinn og kristinn átrún-
aður. Þær fjölbreyttu og oft vel
varðveittu fornleifar sem fundist
hafa í þessu verkefni gefa býsna
glögga mynd af pólitískum, trúar-
legum og efnahagslegum hliðum
mannlífs í Mosfellsdal á þessum
tíma,“ segir m.a. í tilkynningu.
Allir eru velkomnir á meðan hús-
rúm leyfir.
Fornleifafræðingur Jesse Byock
Jesse Byock fjallar um rannsóknir sínar
„Öll þessi ár kona góð, öll þessi ár“
er yfirskrift fyrirlesturs sem Guð-
björn Sigurmundsson, MA í íslensk-
um bókmenntum og íslenskukenn-
ari við Menntaskólann í Kópavogi,
flytur á rannsóknarkvöldi Félags
íslenskra fræða í Hljóðbergi í
Hannesarholti í kvöld kl. 20.
„Erindið fjallar um skáldskap
Sigfúsar Daðasonar á árunum
1945-1959 sem kalla má æskuskeið
hans, það fyrsta af þremur. Litið
verður til erlendra áhrifavalda á
ljóð Sigfúsar og hvernig þessi áhrif
birtast í fyrstu tveimur ljóðabókum
skáldsins. Þá verður einnig fjallað
um atómskáldin og stöðu Sigfúsar
innan hópsins þar sem hann tók að
sér forystuhlutverk vegna afburða-
þekkingar á ljóðlist samtímans,“
segir m.a. í tilkynningu.
Æskuskeið Sigfús Daðason skáld.
Rannsóknarkvöld í
Hannesarholti
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Þriggja daga tónlistarveisla hefst í
kvöld í Hörpu, tónlistarhátíðin Són-
ar Reykjavík sem nú er haldin öðru
sinni. 67 atriði eru á dagskrá hátíð-
arinnar og fer hún fram á fimm svið-
um. Ryuichi Sakamoto kom fram á
hátíðinni í fyrra og snýr nú aftur
með Taylor Deupree og halda þeir
tónleika í Silfurbergi kl. 20. Saka-
moto og Deupree þykja með áhrifa-
mestu tónlistarmönnum heims þeg-
ar kemur að tilraunakenndri raf-
tónlist og eru tónleikar þeirra meðal
hápunkta hátíðarinnar. Af öðrum er-
lendum tónlistarmönnum sem troða
upp í kvöld má nefna Danann Eloq,
réttu nafni August Fenger Janson,
sem þykir mikið undrabarn og nýtur
mikilla vinsælda í heimalandi sínu.
Íslenskir tónlistarmenn og hljóm-
sveitir verða í öndvegi í kvöld, þ.á m.
Högni Egilsson, GusGus, Good Mo-
on Deer, Hermigervill, Introbeats
og Fura. Fura er tiltölulega ný
hljómsveit og sendi frá sér fyrstu
smáskífuna í fyrra, „Demons“, og
mánudaginn síðasta aðra smáskífu,
„Poems of the Past“. Fura er skipuð
söngkonunni Björt Sigfinnsdóttur
og tvíeykinu Halli Jónssyni og Jan-
usi Rasmussen en Janus er einnig
liðsmaður Bloodgroup.
Grúví tónlist
„Við byrjuðum að vinna saman í
byrjun árs 2012 og höfum verið að
þróa okkur síðan,“ segir Björt. Fura
hélt tvenna tónleika í fyrra á Iceland
Airwaves á sk. „off-venue“ dagskrá
og kemur í fyrsta sinn fram á Sónar í
kvöld. „Það eru miklar andstæður,
þungir taktar og undirspil við mjög
léttar og fíngerðar laglínur og rödd,“
svarar Björt þegar hún er beðin að
lýsa tónlist Furu. „Þetta er samt al-
veg grúví tónlist,“ bætir hún við.
– Þið eruð að vinna að fyrstu
breiðskífunni ykkar, ekki satt?
„Jú, við stefnum á að gefa út EP-
plötu á árinu og erum komin með
efni hátt upp í heila plötu þannig að
það kemur í ljós hvað kemur út úr
því,“ segir Björt.
Tilraunakennt og taktfast
Tónlistarhátíðin Sónar Reykjavík hefst í Hörpu í kvöld
Íslenskir tónlistarmenn í öndvegi á fyrsta hátíðardegi
Fura Björt Sigfinnsdóttir er í hljómsveitinni Furu ásamt Halli Jónssyni og
Janusi Rasmussen. Fura leikur á Sónar í kvöld, í Kaldalóni kl. 21.
Silfurberg
● Kl. 20. Ryuichi Sakamoto
& Taylor Deupree
● Kl. 21.30. HE
● Kl. 22.45. Eloq
● Kl. 23.45. GusGus
Kaldalón
● Kl. 20. DADA
● Kl. 21. Fura
● Kl. 22. Good Moon Deer
● Kl. 23. Muted
● Kl. 00. Tanya & Marlon
Flói
● Kl. 20. Tonik
● Kl. 21. Introbeats
● Kl. 22. Kiriyama Family
● Kl. 23. Moses Hightower
● Kl. 00. Hermigervill
14 atriði á þremur sviðum
DAGSKRÁ KVÖLDSINS Á SÓNAR REYKJAVÍK
Víðfrægur Ryuichi Sakamoto kemur
fram á Sónar í kvöld með Taylor Deupree.
– Hvernig líst þér á dagskrá Són-
ar, einhverjir listamenn þar sem þú
ert sérstaklega spennt fyrir?
„Já, ég er mjög spennt fyrir When
Saints Go Machine, þeir eru í miklu
uppáhaldi hjá mér. Ég hlakka líka til
að sjá Good Moon Deer, mér finnst
þeir alltaf mjög skemmtilegir og
Hermigervill líka, af þessum ís-
lensku böndum. Ég sá Sakamoto í
fyrra og hann var rosalega flottur,“
svarar Björt.
Þeir sem vilja kynna sér tónlist-
armenn kvöldsins og hlusta á lög eft-
ir þá geta gert það á vef Sónar
Reykjavík, sonarreykjavik.com.