Morgunblaðið - 13.02.2014, Síða 40
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 44. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Missti 99 kíló án þess að fara í …
2. Schumacher berst við …
3. Hættir eftir 18 ár hjá Símanum
4. Safnar peningum fyrir frænku í …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Miðar á tónleika Bubba Morthens
og Björgvins Halldórssonar í Eldborg
Hörpu 5. apríl nk. seldust upp á
fyrsta söludegi og vegna mikillar eft-
irspurnar hefur aukatónleikum verið
bætt við. Fara þeir fram degi fyrr, 4.
apríl, kl. 20. Á tónleikunum munu
Bubbi og Bó flytja eigin lög og lög
hvor annars ásamt hljómsveit en
kynnir verður grínistinn Ari Eldjárn.
Björgvin og Bubbi
halda aukatónleika
Uppsetning
Óskabarna ógæf-
unnar og Borgar-
leikhússins á
Bláskjá, eftir Tyrf-
ing Tyrfingsson,
hefur fallið í mjög
góðan jarðveg
leikhúsunnenda.
Sökum þessa hef-
ur verið ákveðið að framlengja sýn-
ingartímabilið um tvær vikur, eða
fram til 15. mars, og bæta sex sýn-
ingum við þær sex sem þegar var bú-
ið að ráðgera.
Nýtt íslenskt leikrit
fellur í góðan jarðveg
Rithöfundurinn Andri Snær Magna-
son, sem hlaut Íslensku bókmennta-
verðlaunin í þriðja sinn á dögunum
fyrir Tímakistuna, fjallar
um tilurð bóka sinna í
fyrirlestri sem fram
fer í dag kl. 12 í
stofu 101 í Odda í
Háskóla Íslands. Fyr-
irlesturinn er hluti af
fyrirlestraröðinni
Hvernig
verður bók
til?
Andri Snær fjallar
um tilurð bóka sinna
Á föstudag Norðaustan 8-15 m/s og víða él, en þurrt að
kalla suðvestan- og vestanlands. Frost 1 til 8 stig, kaldast inn
til landsins fyrir norðan. Á laugardag Norðan 10-15 m/s.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Bjartviðri að mestu um landið sunn-
anvert og þurrt að kalla austanlands. Hiti víða 0 til 4 stig en
sums staðar vægt frost til landsins.
VEÐUR
Liverpool og Tottenham
þokuðu sér nær þremur
efstu liðum ensku úrvals-
deildarinnar í knattspyrnu
í gærkvöld. Það er of
snemmt að tala um fimm
liða baráttu um titilinn en
það er líka of snemmt að
afskrifa þann möguleika
að annað eða bæði þessi
lið skjóti sér upp á milli
hinna þriggja, Chelsea,
Arsenal og Manchester
City. »1
Fimm liða barátta
um titilinn?
„Ég er að fara að keppa í þremur
greinum og hef mestar væntingar til
stórsvigsins. Þar hefur mér gengið
best. Aðalmarkmiðið hjá mér er að
komast í aðra umferð,
sem ég held að 50
efstu komist í, og
mér finnst líklegast
að það takist í stór-
sviginu,“ segir
Helga María Vil-
hjálmsdóttir
sem keppir í
risasvigi á
vetrarólymp-
íuleikunum á
laugardag-
inn. »4
Hefur mestar væntingar
til stórsvigsins í Sotsjí
Lið Hamars í Dominos-deild kvenna í
körfuknattleik vann góðan útisigur á
KR í gærkvöld, 85:68. Liðið er nú ein-
ungis tveimur stigum á eftir Val sem
situr í fjórða sætinu sem er síðasta
sætið sem gefur þátttökurétt í úr-
slitakeppninni. Snæfell vann Val á
heimavelli sínum og nálgast deildar-
meistaratitilinn óðfluga eftir ellefu
sigurleiki í röð. »2
Hamar nálgast fjórða
sætið og ætlar í úrslit
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Það er mál manna að fátt gerist í
menningunni á Akranesi án þess að
Bíóhöllin komi við sögu, en í fyrra
kom rekstrarfélag hennar, Vinir
Hallarinnar, að yfir 470 viðburðum.
Því kom það ekki á óvart á dögunum
þegar Ísólfur Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Bíóhallarinnar, var
útnefndur Skagamaður ársins 2013.
Ísólfur tók við rekstri Bíóhall-
arinnar 2002 og endurreisti hana
sem alhliða menningarhús. Frá 2004
hafa hann og félagar hans, Vinir
Hallarinnar, leigt húsið af Akranes-
kaupstað og síðan hefur hver menn-
ingarviðburðurinn rekið annan,
hvort sem um er að ræða bíósýn-
ingar, tónleika, leiksýningar eða
annað. Vinir Hallarinnar fengu til
dæmis að koma að því skemmtilega
verkefni að endurvekja hljómsveit-
ina Dúmbó og Steina með tónleikum
á Akranesi, Hvolsvelli og í Hörpu.
Tónlistarhátíðin Lopapeysan hefur
verið haldin í tengslum við Írska
daga undanfarin 10 ár að frumkvæði
Vina Hallarinnar, en tónleikana eða
dansleikinn, eins og Ísólfur kallar
viðburðinn, sækja um 3.000 manns
árlega. Og svo má lengi telja.
Samvinnan mikilvæg
„Meginmarkmið Vina Hallarinnar
er að blása lífi í menninguna á Akra-
nesi, vera þátttakandi í að efla
menninguna í heimabyggð og tengja
fólk saman, en tónlistarlíf bæjarins
er frábært,“ segir Ísólfur.
Hann segist alla tíð hafa haft trú á
verkefninu enda ávallt verið með
frábært lið með sér. „Ég er mjög
þakklátur öllum samverka-
mönnum mínum sem gera
starfið skemmtilegt og
gefandi. Það gekk
hægt í byrjun og við
tókum mörg hliðar-
spor, gerðum margar
tilraunir. Eftir að við
fundum réttu leiðina hefur gengið
vel og við höfum verið með stærri
viðburði.“
Í áratugi var Bíóhöllin helsta mið-
stöð Skagamanna og Ísólfur hefur
nú endurvakið þá ímynd. „Í menn-
ingunni er okkur ekkert óviðkom-
andi,“ segir hann. Ísólfur bætir við
að húsið hafi verið nútímavætt sem
fjölnotahús og því sé hægt að vera
með bíósýningu klukkan fjögur og
allt tilbúið til tónleikahalds fyrir aft-
an tjald um kvöldið. Þetta megi
þakka Akraneskaupstað og fimm
milljóna króna framlagi frá HB
Granda í tilefni af 70 ára afmæli Bíó-
hallarinnar 2012. „Hugmyndin
gengur upp og aðrir eru farnir að
horfa til okkar. Við viljum einmitt
stuðla að samvinnu sem flestra,
leiða fólk saman til að heildin verði
stór. Að menningin blómstri sem
víðast.“
Efla menningu í heimabyggð
Ísólfur Haralds-
son Skagamaður
ársins 2013
Skagamaður ársins 2013 Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri á Akranesi, og Ísólfur Haraldsson eftir útnefninguna.
Bíóhöllin á Akranesi er eitt elsta
starfandi kvikmynda- og menning-
arhús landsins. Húsið á sér merka
sögu. Hjónin Ingunn Sveinsdóttir
og Haraldur Böðvarsson,
langamma og langafi Ísólfs, létu
reisa það árið 1942 og
ákváðu að rekstrar-
ágóðanum, ef ein-
hver yrði, skyldi
varið til
stuðn-
ings og
uppbygg-
ingar
menning-
ar- og mannúðarmála á Akranesi.
365 sæti voru í Bíóhöllinni og voru
viðburðir í henni gjarnan vel sóttir.
Í fyrstu fór ágóðinn í að byggja
upp Sjúkrahús Akraness og í árs-
lok 1949 var hægt að afhenda
Akraneskaupstað sjúkrahúsið full-
gert og skuldlaust. Síðustu ára-
tugina hefur tekjuafgangur Bíó-
hallarinnar farið í að halda húsinu
við og einnig hefur bæjarfélagið
komið þar myndarlega að verki.
Allar götur síðan húsið var reist,
hefur fjölbreytt menningarlíf farið
þar fram, kvikmyndasýningar, tón-
leikar, leiklist og fleira.
Bíóhöllin á sér merka sögu
EITT ELSTA STARFANDI KVIKMYNDA- OG MENNINGARHÚSIÐ