Morgunblaðið - 05.03.2014, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 05.03.2014, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 5. M A R S 2 0 1 4 Stofnað 1913  54. tölublað  102. árgangur  ÞÓRDÍS EVA MEÐ BETRI TÍMA EN ANÍTA HUGAR- FRELSI OG HUGLEIÐSLA YFIR 433.000 MIÐAR SELDIR FRÁ FRUMSÝNINGU SLÖKUN 10 SÓLVEIG OG KVIKMYNDIR 38ÍÞRÓTTIR Skýrsla Hagfræðistofnunar um aðildarviðræður við Evr- ópusambandið var til um- ræðu á fundi utanríkismála- nefndar Alþingis í gær. Stefán Már Stefánsson og Maximilian Conrad, höf- undar viðauka skýrslunnar, voru gestir fundarins. Rætt var meðal annars um mögu- leika á undanþágum fyrir Ísland. Birgir Ármannsson, for- maður utanríkismála- nefndar, telur hæpið að und- anþágur fáist. „Ég tel persónulega að það sé afar ólíklegt að nokkrar undanþágur sem máli skiptu myndu nást á sviði sjávarútvegs- og land- búnaðarmála. Það er himinn og haf milli regluverks ESB á þessu sviði og þeirra sjón- armiða sem Íslendingar þyrftu að setja á odd- inn. Þrátt fyrir að finna megi dæmi um afmark- aðar sérlausnir á þröngum sviðum þá sýnist mér regluverk ESB vera þannig úr garði gert að það séu hreinir draumórar að halda því fram að hægt væri að ná fram einhverju sem máli skipti fyrir okkur Íslendinga,“ segir Birgir. „Þetta var frábær fundur með þessum tveim- ur sérfræðingum sem komu í dag,“ sagði Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingar og fyrrverandi utanríkisráðherra, í gærkvöldi. „Að mínu viti er öllum efasemdum eytt hvað varðar það að sérlausn er fær samkvæmt Evrópurétt- inum, svo fremi sem hún er vel skilgreind og út- færð,“ segir hann. Össur segir þá leið full- komlega færa, til dæmis hvað varðar íslenskan sjávarútveg. Hann segir yfirferðinni varðandi kafla Stefáns Más ekki nándar nærri lokið og að hann muni koma aftur til fundar við nefndina. „Ég tel að Stefán Már hafi talað mjög skýrt og afdráttarlaust og orð hans glöddu mig,“ segir hann. Undanþág- ur hreinir draumórar  Sérlausnir sannarlega á borðinu, segir Össur Birgir Ármannsson Össur Skarphéðinsson Rússneski herinn tilkynnti í gær- kvöldi að hann hefði skotið á loft langdrægri eldflaug af gerðinni To- pol RS-12M, frá Kapustin Yar-til- raunasvæðinu nærri Kaspíahafi. Til- kynningin kom í kjölfar ummæla Johns Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Kænugarði en hann fordæmdi ögrandi aðgerðir Rússa og sakaði rússnesk stjórnvöld um að vinna ötullega að því að búa til átyllu fyrir því að ráðast lengra inn í Úkraínu. Tímasetning tilraunaskotsins þyk- ir afar óheppileg en Reuters hafði eftir ónefndum bandarískum emb- ættismanni í gær, að bandarískum yfirvöldum hefði borist tilkynning um skotið áður en íhlutun Rússa á Krímskaga hófst. Forsætisráðherra Úkraínu, Arse- niy Yatsenyuk, sagði frá því í gær að þarlend stjórnvöld hefðu átt „var- færnisleg“ samskipti við yfirvöld í Rússlandi. Þá birti nokkuð til á mörkuðum víða um heim eftir að Vladimir Pútín Rússlandsforseti sagði m.a. að ekki væri þörf á því að senda rússneskar hersveitir inn í Úkraínu. »20-21 Prófuðu langdræga eldflaug  „Varfærnisleg“ samskipti komin á milli stjórnvalda í Úkraínu og Rússlandi AFP Í Kænugarði John Kerry leggur rauðar rósir við minnisvarða um mótmæl- endur sem féllu í átökum við óeirðalögreglu á Sjálfstæðistorginu.  „Þessi veira er áhugaverð því hún veldur eng- um einkennum í fuglum og því erfitt að vakta hana,“ segir Magnús Gott- freðsson, pró- fessor í smit- sjúkdómum og yfirlæknir á Landspítalanum, um nýja flensu- veiru sem kom upp í Kína í fyrra. Um er að ræða skæða fuglaveiru sem berst í menn og nefnist H7N9. Meira en 200 manns hafa greinst með veiruna og dánartíðni er 33%, sem Magnús segir að sé mjög hátt. Hann segir erfitt að spá því hvort þessi veira muni valda næsta heims- faraldri. »4 Erfitt að vakta nýja fuglaflensuveiru Flensupestir geta verið mjög skæðar.  Almar Halldórsson, verkefn- isstjóri PISA hjá Námsmatsstofnun, segir að með því að verja fjár- munum í að ráða hæfasta fólkið inn í grunnskólana, frekar en að ein- blína á fjölda, fáist betri kennarar til starfa. „Og í kjölfarið fáum við stétt sem nýtur meira álits og hefur sterkari sjálfsmynd,“ segir hann. Almar segir að meiri harka mætti vera í vali nemenda í Kennarahá- skólann. Viðbrögð manna við gagnrýni Andreas Schleicher, stjórnanda PISA-kannana OECD, eru blendin en hann hefur m.a. haldið því fram að margir nemendur virðist ofmeta hve vel þeir standa í námi og að gögn PISA bendi til þess að þeim sé hrósað of mikið. »12 Morgunblaðið/Kristinn Kennarar Frá mótmælafundi í Reykjavík. Bara klára fólkið í kennaranámið  Umboðsmaður Alþingis gerir at- hugasemdir við að stjórn Fjár- málaeftirlitsins hafi ekki haldið utan um gögn um umsækjendur þegar ráðið var í stöðu forstjóra stofnunarinnar árið 2012. Óttari Guðjónssyni, öðrum af tveimur umsækjendum sem komu til greina, var synjað um aðgang að gögnum um ferlið. Hann gagnrýnir hvernig stofnanir hafi í auknum mæli útvistað valdi og ábyrgð á ráðningum undanfarið. »15 Útvista valdi og ábyrgð á ráðningum Óttar Guðjónsson Eftir þurrviðrið í febrúar sunnan- og vestanlands er hætt við að fyrstu dagarnir í mars verði vætu- samir, ef marka má veðurspár. Norðanlands og austan fer að hlýna eftir helgi og þá gæti orðið mikil bleyta á þeim slóðum. Sunnanlands snjóaði í gærmorgun en fljótlega breyttist sú úrkoma í slyddu og rigningu. Þá tóku sumir sig til og þrifu bílana, sem getur verið vandaverk. »14 Gæti orðið vætusamt næstu daga, segir veðurfræðingur Morgunblaðið/Þórður Enn tækifæri til að þrífa bílinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.