Morgunblaðið - 05.03.2014, Side 8

Morgunblaðið - 05.03.2014, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2014 Andríki víkur að þeim sem hafahaldið því að fólki að Sjálf- stæðisflokkurinn tapi fylgi vegna tillögu um að hætta viðræðum um aðild Íslands að ESB í samræmi við vilja landsfundar flokksins og segir það vera sömu menn og lögðu að for- ystu flokksins að samþykkja síðasta Ice- save „samn- ing“ Jóhönnu og Steingríms, þrátt fyrir af- dráttarlausa ályktun landsfundar um að hafna löglausum kröfum Breta og Hol- lendinga:    Hverjar voru afleiðingar þess-ara heilræða ESB-sinnanna sem forysta Sjálfstæðisflokksins kaus að fylgja? Jú, þegar nið- urstaða EFTA-dómstólsins lá fyrir í lok janúar 2013 tók fylgi Sjálf- stæðisflokksins að hrapa en það hafði þá lítt vikið frá 36% í nær þrjú ár. Samkvæmt Capacent var fylgið í janúar 2013 36% en féll niður í 30% í febrúar og svo áfram niður í 24% í mars. Á sama tíma jók Framsókn- arflokkurinn fylgi sitt úr 14 í 27%. Það er því fjarstæðukennd kenn- ing að Sjálfstæðisflokkurinn hafi tapað fylgi vegna ályktana lands- fundar flokksins um ESB. Fylgið fór yfir á Framsóknarflokkinn sem hafði sömu afstöðu til ESB og landsfundur Sjálfstæðisflokksins.    Sjálfstæðisflokkurinn fékk skellí síðustu kosningum vegna þess að Þorsteinn Pálsson, Þor- gerður K. Gunnarsdóttir, Benedikt Jóhannesson og fleiri ESB-sinnar fengu forystu hans til að ganga gegn skýrum ályktunum lands- fundar um Icesave.    Og það eru þau sem uppnefnafélaga sína í Sjálfstæð- isflokknum kjána, kommúnista- samtök, svartstakka og svikara.“ Valhöll Dýrkeypt ráðgjöf STAKSTEINAR Veður víða um heim 4.3., kl. 18.00 Reykjavík 3 skýjað Bolungarvík 2 alskýjað Akureyri 1 snjókoma Nuuk -3 skýjað Þórshöfn 6 skúrir Ósló 2 súld Kaupmannahöfn 5 skúrir Stokkhólmur 2 léttskýjað Helsinki 1 skýjað Lúxemborg 7 skýjað Brussel 7 skýjað Dublin 8 skýjað Glasgow 8 léttskýjað London 10 léttskýjað París 8 skýjað Amsterdam 7 heiðskírt Hamborg 8 heiðskírt Berlín 7 heiðskírt Vín 10 léttskýjað Moskva -2 snjókoma Algarve 17 skýjað Madríd 12 skýjað Barcelona 16 léttskýjað Mallorca 15 léttskýjað Róm 10 skúrir Aþena 12 skúrir Winnipeg -26 léttskýjað Montreal -13 skýjað New York -6 heiðskírt Chicago -8 alskýjað Orlando 21 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 5. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:21 18:58 ÍSAFJÖRÐUR 8:30 18:59 SIGLUFJÖRÐUR 8:13 18:42 DJÚPIVOGUR 7:52 18:26 Opnað verður fyrir skil skattframtala einstaklinga á vefnum skattur.is á föstudaginn, hinn 7. mars. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskatt- stjóri segir skil launagreiðenda á launamiðum hafa verið mjög góð. „Við erum komin með 99,67% af launamiðum og nú er verið að heimsækja þá sem ekki hafa skilað síðustu launamiðunum til þess að fá skýr- ingar á því. Við höfum upplýsingar um hvaða launagreiðslur eru í land- inu út frá staðgreiðslunni en skipt- ingu milli þess hvað eru t.d ökutækja- styrkir höfum við ekki, þess vegna þarf þetta allt að koma inn á launa- miða og ratar þá inn á ýmsa reiti á framtalinu.“ Skúli segir að mikið sé lagt upp úr því að framtalið verði tilbúið fyrir stóran hóp framteljenda svo þeir þurfi ekki annað en að staðfesta það á netinu. „Þetta er sennilega í síðasta skipti sem framtalsmátinn er þrenns konar; nú er talið fram með svoköll- uðu einföldu framtali, svo venjulegu framtali og þá fá örfáir send papp- írsframtöl. Á næsta ári gerum við ráð fyrir því að það verði engin papp- írsframtöl og eitt framtalsforrit óháð því hvað menn þurfa að vera með flóknar útfæringar á því,“ segir Skúli. „Við höfum í auknum mæli haft sam- band við þá sem hafa talið fram á pappír og boðið þeim aðstoð í gegnum netið. Margir hafa þegið það. Þetta er einkum fullorðið fólk, ýmsir aðilar sem hafa ekki tölvu eða með lélegt tölvusamband.“ Rúmlega 265.000 manns eru á skattgrunnskrá í ár. Síðasti skiladag- ur skattaframtals á vefnum er 21. mars en með því að sækja um frest lengist hann til 30. eða 31. mars. Opnað á framtalið á föstudag  265.000 manns eru á skattgrunnskrá Skúli Eggert Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.