Morgunblaðið - 05.03.2014, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.03.2014, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2014 Iðnþing 2014 Framleiðni Menntun Samkeppnis- hæfni Nýsköpun Stöðugleiki Auðlindir Hugvit Fagmennska Fundurinn er öllum opinn - léttar veitingar. Skráning á www.si.is Iðnþing Samtaka iðnaðarins verður haldið í Íþrótta- og sýningar- höllinni Laugardal fimmtudaginn 6.mars kl. 14–16. Á Iðnþingi verður 20 ára afmæli SI fagnað og fjallað um fjölbreyttan iðnað sem drifkraft nýrrar sóknar og endurreisnar íslensks efnahagslífs. Drifkraftur nýrrar sóknar Dagskrá Drifkraftur í iðnaði Ný sókn Bergsteinn Einarsson, framkvæmdastjóri Sets Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri JÁVERKS Aðalheiður Héðinsdóttir, framkvæmdastjóri Kaffitárs Guðmundur Fertram Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Kerecis Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis á Íslandi Fundarstjóri: Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls Þorsteinn Pálsson, fv. forsætisráðherra og framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP Svana Helen Björnsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðarráðherra H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 4 -0 1 4 8 Ríkisstjórnin hefur samþykkt að setja á fót ráðherranefnd um lýð- heilsumál undir stjórn forsætisráð- herra, að því er kemur fram í til- kynningu frá forsætisráðuneytinu. Jafnframt hefur verið ákveðið að setja á fót ráðgefandi lýðheilsunefnd undir yfirstjórn heilbrigðisráðherra sem í eigi sæti fulltrúar ráðuneyta og ýmissa embætta og samtaka. Lýðheilsunefndin mun vinna drög að heildstæðri stefnumótun og að- gerðaáætlun sem hefur það að markmiði að efla og bæta lýðheilsu almennings á öllum aldursskeiðum. Lagt hefur verið til að sérstakri verkefnisstjórn undir yfirstjórn heil- brigðisráðherra verði falið að starfa með ráðherranefndinni og lýðheilsu- nefndinni. Varið verður 15 millj- ónum króna til verkefnisins af ráð- stöfunarfé ríkisstjórnarinnar árið 2014 og unnin verður áætlun um kostnað við verkefnið fyrir árið 2015 sem lögð verði til grundvallar við fjárlagagerð vegna ársins 2015. Nefndir fjalla um lýðheilsu  Markmiðið að auka almenn lífsgæði Morgunblaðið/Eggert Hlaup Markmiðið starfsins er að efla og bæta lýðheilsu almennings. Búið er að mála varðskipið Tý í nýjum litum vegna leiguverkefnis sem skipið mun sinna á Svalbarða næstu mánuðina. Varðskipið hef- ur algjörlega skipt um lit. Grái liturinn er horfinn en skrokk- urinn orðinn rauður og stýr- ishúsið hvítt. Verkið var unnið hjá Slippnum á Akureyri. Þar vinna margir stuðningsmenn Íþróttafélagsins Þórs og þótti þeim ekki verra að skipið skartar nú litum félagsins. Týr eða annað íslenskt varð- skip hefur ekki áður skipt al- gjörlega um ham í sínum leigu- verkefnum, að því er fram kemur hjá Hrafnhildi Brynju Stef- ánsdóttur, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar. Helst þeg- ar Týr fékk á sig merki Evrópu- sambandsins vegna fiskveiðieft- irlits fyrir sambandið í Miðjarðarhafi fyrir um þremur árum, en þá hélst grár undirtónn skipsins. Týr heldur á næstunni til eft- irlits- og björgunarstarfa fyrir sýslumanninn á Svalbarða, með heimahöfn í Longyearbyen. Leigutakinn, Fáfnir Offshore hf., mun bera kostnað af slipptöku og málningu ofan sjónlínu. Gæslan greiðir botnhreinsun og -máln- ingu, sem átti að fara fram á næsta ári. Að verkefni loknu á Svalbarða verður Týr málaður aftur í sínum gráu litum. Týr hefur skipt um ham Ljósmynd/Slippurinn Týr í þurrkvínni Grár litur hefur vikið fyrir rauðum og hvítum.  Grái liturinn hefur vikið fyrir rauðum og hvítum Vilborg Arna Gissurardóttir komst ásamt ferðafélögum sín- um á topp Kilim- anjaro, hæsta fjalls Afríku í gærmorgun. Hún segir að allir í hópnum hafi komist upp á toppinn. Fjallið er 5.895 metrar á hæð. „Nokkrir fundu fyrir örlitlum hæðaróþægindum en það var ekkert til að tala um. Við fengum ofboðs- lega gott veður og það var mikil stemning í hópnum,“ segir Vilborg á vefsíðu sinni. Hún bætir því við að þau hafi tekið með sér gítar á topp- inn og sungið nokkur lög. Þetta er sjötti tindurinn af sjö sem Vilborg Arna klífur, en hún hefur klifið hæstu tinda fimm heimsálfa. Hún á eftir að klífa Everest-fjall. Vilborg Arna búin að klífa sex tinda Vilborg Arna Gissurardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.