Morgunblaðið - 05.03.2014, Page 15

Morgunblaðið - 05.03.2014, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2014 BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000 E N N E M M / S ÍA / N M 6 17 3 6 *Miðað við uppgefnar viðmiðunartölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri. Less emissions. More driving pleasure. AKTU FRAMFÖRUM Við kynnum þriðju kynslóðina af BMW X5 með sparneytnari vél en nokkur annar bíll í þessum flokki. Nýi BMW X5 er léttari og með minni loftmótstöðu en keppinautarnir. Hann kostar frá 10.490 þús. kr. með 218 hestafla dísilvél og 8 gíra sjálfskiptingu og notar einungis 5,8 l/100 km í blönduðum akstri. Aktu framförum – kynntu þér nýjan BMW X5! BMW X5 - 5,8 l/100 km.* Verð frá 10.490 þús. kr. Hrein akstursgleði BMW X5 www.bmw.is BAKSVIÐ Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Stjórn Fjármálaeftirlitsins braut upplýsinga- og stjórnsýslulög með því að halda ekki utan um gögn sem vörðuðu ráðningarferli for- stjóra stofnunarinnar. Þetta er álit umboðsmanns Alþingis vegna kvörtunar Óttars Guðjónssonar, framkvæmdastjóra Lánasjóðs sveitarfélaga, sem var einn um- sækjenda um forstjórastöðuna. Starfið var auglýst í apríl 2012 og sóttu tíu manns um. Sérstök óháð matsnefnd var fengin til að stýra ráðningarferlinu og til að leggja mat á hæfi umsækjend- anna. Á endanum stóð valið á milli Óttars og Unnar Gunnarsdóttur sem var á endanum ráðin í stöðu forstjóra. Engin gögn sögð til Óttar óskaði í kjölfarið eftir af- riti af öllum gögnum málsins varð- andi umsóknarferlið og meðhöndl- un umsóknar sinnar, þar með talið skýrslum, umsögnum og minn- isblöðum auk sambærilegra gagna um Unni. Á meðal þessara gagna var stigagjöf hvers nefndarmanns um þau, skýrslur um persónu- leikamat, viðtöl við þau og kynn- ing þeirra á framtiðarsýn sinni fyrir FME við stjórn þess. Flest gagnanna stöfuðu frá matsnefnd- inni að því er kemur fram í áliti umboðsmannsins. FME synjaði Óttari hins vegar um gögnin og sagði engar umsagnir liggja fyrir um hann né Unni og að ekki væru heldur til minnisblöð tengd um- sóknarferlinu. Eftir að hann áréttaði ósk sína um gögnin fékk hann hluta þeirra. Eftir sem áður var honum neitað um gögn frá matsnefndinni með vísan til þess að þau hefðu aldrei borist stjórn FME frá henni. Þá hefðu kynningar umsækjendanna tveggja fyrir stjórninni ekki verið afhentar heldur aðeins varpað á skjávarpa og kynntar munnlega. Þær teldust því ekki til gagna málsins. Enn ítrekaði Óttar ósk sína um nákvæmlega tiltekin gögn en fékk aftur synjun frá stofnuninni. Bar skylda til skráningar Umboðsmaður Alþingis afmark- aði athugun sína á kvörtun Óttars við það hvort stjórn FME hefði tryggt að það hefði í fórum sínum gögn sem voru hluti af stjórn- sýslumáli og því háð upplýs- ingalögum. Álit hans var að FME hefði ekki að öllu leyti fullnægt þeirri skyldu sinni að fá öll gögn málsins afhent og að upplýsingar væru skráðar eins og kveðið er á um í stjórnsýslu- og upplýsingalögum. Því hefði borið að afla stigagjafar eða rökstuðnings einstakra nefnd- armanna, fá afhenta skýrslu um persónuleikamat umsækjenda og skrá upplýsingar í viðtölum við matsnefndina og kynningu um- sækjenda fyrir stjórninni. Beinir umboðsmaður þeim til- mælum til stjórnarinnar að taka ósk Óttars um gögn til endurskoð- unar í samræmi við þessar at- hugasemdir og að hún hafi þau sjónarmið í huga í störfum sínum framvegis. Útvista valdi og ábyrgð Að sögn Óttars hefur það í auknum mæli tíðkast hjá stofn- unum að útvista að einhverju leyti valdi og ábyrgð stjórnvalds á ráðningarferlum til annarra. Það sé notað til að halda aftur gögnum sem geri þeim sem finnst ekki rétt farið að erfitt eða ómögulegt að leita réttar síns. „Ástæðan fyrir því að ég fór í þessa vegferð og sótti um starfið er að ég er mikill áhugamaður um að það sé farið að lögum og reglum. Þegar ég verð þess áskynja að ekki sé farið að lögum, reglum og verkferlum, þá get ég eðli málsins samkvæmt ekki annað en kvartað yfir því,“ segir hann. Óttar er einnig ósáttur við að ekki hafi verið haldið utan um það að stjórnarmenn hafi haft sam- band við aðila úti í bæ um um- sagnir um umsækjendur sem hann viti þó til að hafi verið gert í ráðn- ingarferlinu. „Ef menn halda ekki skrár og passa ekki upp á þær er alltaf hægt að halda því fram að gögnin séu ekki til,“ segir Óttar sem hef- ur þegar óskað eftir gögnunum aftur eftir að álit umboðsmanns lá fyrir. Hann hefur hins vegar ekki enn fengið viðbrögð frá FME. Brutu stjórnsýslu- og upplýsingalög  Umboðsmaður Alþingis gerir athugasemdir við ráðningarferli forstjóra Fjármálaeftirlitsins 2012  Annar umsækjenda gagnrýnir að ekki hafi verið haldið utan um gögn um umsækjendurna Morgunblaðið/Ómar Umsóknarferlið Staða forstjóra Fjármálaeftirlitsins var auglýst til um- sóknar í apríl 2012. Unnur Gunnarsdóttir var ráðin úr hópi tíu umsækjenda. Halla Sigrún Hjartardóttir, for- maður stjórnar Fjármálaeft- irlitsins, vildi ekki tjá sig efn- islega um málið í gær þegar eftir því var leitað. Bæði beiðni Óttars um gögn og athugasemdir umboðs- manns Alþingis við ráðning- arferlið væru til skoðunar hjá stofnuninni og hún gæti því ekki tjáð sig um það fyrr en niðurstaða lægi fyrir. Stofn- unin ætlaði sér einhverjar vik- ur til þess. Málin í skoð- un hjá FME STJÓRNARFORMAÐUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.