Morgunblaðið - 05.03.2014, Síða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2014
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA Fífa salernispappírinn er einstaklegamjúkur þriggja laga pappír, náttúrulega
hvíttur, án klórbleikiefna og viðbættra ilmefna. Þú færð Fífa í næstu verslun.
WWW.PAPCO.IS
FIÐURMJÚK FÍFA
Lopi 33
Sjá sölustaði á istex.is
að félagið hefur fengið undanþágu frá
einstaka lánaskilmálum. Við eigum
afar gott og náið samstarf við við-
skiptabanka okkar sem styður okkur
í þeirri vegferð sem við erum á.
Reksturinn er að skila ágætlega af
sér. Handbært fé frá rekstri var 560
milljónir króna á árinu, handbært fé í
lok árs 450 milljónir króna og vaxta-
berandi skuldir voru greiddar niður á
árinu. Við gerum svo ráð fyrir að eig-
infjárhlutfall fari batnandi, fyrst og
fremst með heilbrigðari rekstri og
minni efnahagsreikningi,“ segir Finn-
ur.
Uppgjör markar þáttaskil
Hann segir að horfur félaga sam-
stæðunnar á Íslandi og í Svíþjóð séu
ágætar og þau vel í stakk búin til að
mæta þörfum öflugs núverandi við-
skiptavinahóps og svo nýrra að sjálf-
sögðu. „Við höfum nú skýrari fókus
en áður. Leggjum sérstaka áherslu á
góða þjónustu, einbeitum okkur betur
að íslenska markaðnum og nýtum
tækifærin sem felast í því að setja sér-
hæfðar lausnir dótturfélaga til sölu á
erlendum mörkuðum, sem hefur að
undanförnu gengið einstaklega vel.“
Brugðist við tap-
rekstri í Danmörku
Nýherji setti Applicon á sölu 11% eiginfjárhlutfall
Morgunblaðið/Eggert
Skýrari fókus „Við höfum nú skýrari fókus en áður,“ segir Finnur Oddsson,
forstjóri Nýherja. Félagið tapaði 1,6 milljörðum króna árið 2013.
VIÐTAL
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Nýherji, sem skráður er í Kauphöll,
hefur sett Applicon í Danmörku í
söluferli. Í lok síðasta árs seldi það
danska dótturfélagið Dansupport.
Nýherji varð að afskrifa 1,2 milljarða
af viðskiptavild á liðnu ári, einkum
vegna taprekstrar í Danmörku en
Nýherji tapaði þá 1,6 milljörðum.
Eiginfjárhlutfallið lækkaði í 11% úr
28% á milli ára.
Fram kom í uppgjörinu að innlend
starfsemi samstæðunnar, þ.e. Ný-
herja, Applicon og TM Software,
hefði gengið ágætlega á liðnu ári og
að jákvæður viðsnúningur orðið hjá
Applicon í Svíþjóð. Morgunblaðið
ræddi við Finn Oddsson, forstjóra
Nýherja.
– Hvers vegna hefur reksturinn
gengið svona illa í Danmörku og
hvers vegna var ákveðið að selja
starfsemina frekar en að róa öllum ár-
um að því að gera reksturinn arðbær-
an?
„Reyndar er rétt að halda því til
haga að rekstur Dansupport hefur
gengið ágætlega undanfarin ár. Ef við
horfum hins vegar til Applicon félag-
anna eru margar ástæður fyrir því
hvers vegna ekki hefur gengið sem
skyldi, allt frá efnahagsástandinu þar,
til vals á stefnu og áherslum í stjórn-
un, til stórra verkefna sem ekki hafa
gengið sem skyldi. En að því við-
bættu, er meginástæða þess að við
höfum ákveðið að skilja við rekstur í
Danmörku sú staðreynd að samlegð
starfsemi þar hefur verið lítil sem
engin við aðrar einingar Nýherja, á
Íslandi og í Svíþjóð. Undir slíkum
kringumstæðum er ekki réttlætan-
legt að halda áfram að óbreyttu.“
– Hvað gerir þú þér vonir um að
það taki langan tíma að selja Applicon
í Danmörku? Hvernig er markaður-
inn fyrir sölu á fyrirtæki sem þessu í
Danmörku?
„Vonandi sem stystan, en það mun
taka einhvern tíma. Það eru allnokkr-
ir áhugasamir kaupendur sem hafa
verið í sambandi við okkur og eiga
þeir það allir sameiginlegt að þeir
geta nýtt sér mjög sterkt tæknilegt
teymi ráðgjafa og hugbúnaðarlausnir
Applicon fyrir núverandi viðskipta-
vinahóp sinn. Það gerir Applicon að
áhugaverðu kauptækifæri fyrir þessi
félög. “
Heilbrigðari rekstur
– Í hvernig ásigkomulagi verður
samstæða Nýherja þegar búið er að
selja reksturinn í Danmörku?
„Það felur í sér að rekstur sam-
stæðunnar verður allur mun heil-
brigðari. Allar íslensku einingarnar,
Nýherji, Applicon og TM Software,
skila jákvæðri afkomu og það sama
má segja um Applicon í Svíþjóð, eins
og verið hefur undanfarið hálft ár.“
– Eiginfjárhlutfall Nýherja var
11% við árslok. Brýtur félagið lána-
skilmála? Með hvaða hætti verður
reynt að auka eigið fé félagsins og
hvað verður það að gerast hratt?
„Öll lán Nýherja eru í skilum en
það kemur einnig fram í ársreikningi
Laun hjá íslenskum fyrirtækjum
hækkuðu um 6,1% að meðaltali á síð-
asta ári, en það hefur verið ris í
hækkun á síðustu árum. Topparnir í
fyrirtækjunum leiða hækkunina, en í
dag eru 7,5% launamanna með yfir
eina milljón í heildarlaun. Þetta
kemur fram í nýrri launagreiningu
PWC sem var kynnt í gærmorgun.
Laun hækkuðu almennt um 2,2%
umfram verðlag, en Hafsteinn Már
Einarsson, sérfræðingur hjá PWC,
segir að það hafi verið áhugavert að
aukagreiðslur hafi tekið að hækka á
ný eftir að hafa lækkað frá hruni.
Fóru aukagreiðslur og hlunnindi upp
í 12,4% af heildarlaunum, en það er
hækkun um 2,5 prósentustig milli
ára. Hafsteinn sagði í kynningu sinni
að þar gætti áhrifa frá nýjum þátt-
tökufyrirtækjum, en jafnframt væri
aukning yfir línuna hjá eldri fyrir-
tækjum.
13 til 15 þúsund þátttakendur
PWC hefur gert þessa könnun
undanfarin ár og er tilgangurinn að
sjá laun og samsetningu launa fyrir
tiltekin störf. Í ár voru milli 13 til 15
þúsund þátttakendur í könnuninni,
en það eru um 8 til 9% af heildar-
vinnuafli landsins.
Samkvæmt skýrslunni eru meðal-
heildarlaun í dag 568 þúsund krónur
og hækkuðu þau úr 535 þúsund
krónum árið áður. Hækkunin nemur
sem fyrr segir 6,1%, en árið á undan
hækkuðu þau um 4,5%. Flestir laun-
þegar eru í flokkunum 300 til 400
þúsund og 400 til 500 þúsund, eða um
21% í hvorum flokk. Nánar á mbl.is
Flestir voru með
300-500 þúsund
Aukagreiðslur hækkuðu á ný í fyrra
Morgunblaðið/Golli
Topparnir Greining PWC sýnir að
topparnir leiddu launahækkanir.