Morgunblaðið - 05.03.2014, Qupperneq 21
Frá Kænugarði til Krímskaga
22. febrúar
Þing Úkraínu
vék Viktor
Janúkóvítsj úr
embætti forseta
Forseti þingsins,
Olexandr Túrtsjínov,
kjörinn forseti
Úkraínu til
bráðabirgða
Rússar saka
nýju valdhafana
í Úkraínu um
vopnað valdarán
Rússar setja hersveitir
sínar við landamærin
í viðbragðsstöðu
Þingið í Krím samþykkir
almenna atkvæðagreiðslu
um aukna sjálfstjórn héraðsins
Túrtsjínov sakar Rússa
um innrás eftir að
hermenn umkringdu
flugvelli í Belbek
og Simferopol
Barack Obama Bandaríkjaforseti
varar stjórnvöld í Rússlandi
við því að beita hervaldi
Vopnaðir hópar umkringdu
þingið í Simferopol. Rússar
sagðir hafa sent 6.000
manna liðsauka
á Krímskaga
Stjórnvöld í Kænugarði
segja hernaðaríhlutun
Rússa jafngilda
stríðsyfirlýsingu
23. febrúar
24. febrúar
26. febrúar
27. febrúar
28. febrúar
1. mars
2. mars
18.-20. febrúar
82 manns biðu bana í
Kænugarði í árásum
öryggissveita
Meirihlutinn
hefur úkraínsku
að móðurmáli
Meirihlutinn
hefur rússnesku
að móðurmáli
200 km
KÆNU-
GARðUR
ÚKRAÍNA
Sevastopol
RÚSSLAND
ÚKRAÍNA
SVARTAHAF
Sevastopol
AZOVSHAF
Novorossísk
KRÍM
Simferopol
Belbek
Lvív
Donetsk
Kharkov
Odessa
KRÍM
Bandarísku embættismennirnir
telja að staðan væri ekki öðruvísi nú
ef Bandaríkin hefðu látið meira að
sér kveða í málinu. „Sannleikurinn
er sá að Janúkóvítsj fór frá og nýja
ríkisstjórnin er miklu hlynntari
samstarfi við Vesturlönd,“ hefur
The Wall Street Journal eftir einum
embættismannanna. „Þetta er því
ekki sigur fyrir Rússa.“
Hafi það verið rétt hjá Banda-
ríkjastjórn að láta ESB um að leysa
vandamálið er sá hængur á að að-
ildarríki sambandsins greinir á um
hvernig taka eigi á því. Fyrrverandi
kommúnistaríki í Mið- og Austur-
Evrópu vilja að sambandið beiti sér
af hörku gegn Rússlandi til að verja
Úkraínu en önnur lönd, m.a.
Frakkland og Þýskaland,
vilja beita Rússa mildari
þvingunum.
Breskir fjölmiðlar
skýrðu frá því í gær
breska ríkisstjórnin
væri að svo stöddu
andvíg því að gripið
yrði til refsiaðgerða gegn Rússlandi
vegna deilunnar. Fjölmiðlarnir
byggðu þetta á ljósmyndum af
skjali sem breskur embættismaður
hélt á þegar hann fór á fund Davids
Camerons, forsætisráðherra Bret-
lands.
Evrópusambandið íhugar meðal
annars að frysta bankainnistæður
rússneskra auðmanna og Bretar
hafa áhyggjur af því að slíkar að-
gerðir geti skaðað banka og önnur
fjármálafyrirtæki í Lundúnum.
Þjóðverjar í lykilhlutverki
Þjóðverjar hafa einnig verið treg-
ir til að fallast á efnahagslegar
refsiaðgerðir vegna þess að þeir eru
háðir jarðgasi og olíu frá Rússlandi.
Um það bil þrír fjórðu af jarðgasi og
olíu, sem flutt var inn til Þýskalands
á síðasta ári, komu frá Rússlandi.
Útflutningur til Rússlands hefur
einnig haft mikla þýðingu fyrir
Þjóðverja og stuðlað að efnahags-
legri velgengni Þýskalands á síð-
ustu tíu árum. Vægi viðskiptanna
við Rússland hefur þó minnkað að
undanförnu. Rússland er enn mik-
ilvægur markaður fyrir þýsk fyr-
irtæki á borð við Mercedes og
Volkswagen en landið er þó komið
niður í ellefta sætið á lista yfir mik-
ilvægustu viðskiptalönd Þýska-
lands. Útflutningur Þjóðverja er til
að mynda meiri til Póllands en
Rússlands núna. Nokkrir frétta-
skýrendur hafa sagt að vegna efna-
hagslegrar stöðnunar í Rússlandi á
síðustu árum og aukins efnahags-
máttar Þýskalands myndu refsiað-
gerðir skaða Rússa meira en Þjóð-
verja.
Fréttaskýrandi The New York
Times telur að Þýskaland geti ráðið
úrslitum um hvort hægt verði að
leysa deiluna. Hann bendir á að
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, hefur gagnrýnt ríkisstjórn
Pútíns fyrir mannréttindabrot á
síðustu mánuðum og gegndi mik-
ilvægu hlutverki í því að fá Pútín til
að náða þekktasta fanga Rússlands,
Míkhaíl Khodorkovskí.
AFP
Ólga Rússi á fundi í Moskvu til stuðnings Rússum í Krím kveikir í mynd af
Stepan Bandera, leiðtoga úkraínskra þjóðernissinna á fimmta áratug ald-
arinnar sem leið. Rússar saka valdhafana í Kænugarði um þjóðernisöfgar.
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2014
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
sagði á blaðamannafundi í gær að
hann teldi ekki þörf á að senda
hermenn inn í Úkraínu að svo
stöddu. Hann kvaðst þó áskilja sér
rétt til að beita „öllum aðferðum“,
meðal annars hervaldi, til að
vernda Rússa í austurhluta Úkra-
ínu „ef allt annað bregst“. Hann
sagði að Viktor Janúkóvítsj væri
enn forseti Úkraínu en viðurkenndi
að hann ætti ekki afturkvæmt til
Kænugarðs.
Pútín neitaði því að rússneskir
hermenn hefðu umkringt úkra-
ínskar herstöðvar í Krím og sagði
„sjálfsvarnarsveitir“ rússneskra
Krímbúa hafa gert það.
Breskir hermálasérfræðingar
telja þó engan vafa leika á því að
hermennirnir, sem hafa náð Krím á
sitt vald, séu í sérsveitum rúss-
neska hersins, meðal annars sér-
sveit sem nefnist Spetsnaz. Einn
sérfræðinganna sagði það
„200%“ öruggt að liðs-
menn Spetsnaz hefðu
verið sendir á Krím-
skaga. Annar sér-
fræðingur telur að
sérsveitarmönn-
unum fylgi að
minnsta kosti
tvær hersveitir
frá Svartahafs-
flota og Eystra-
saltsflota Rúss-
lands.
Sagður beita sérsveitum
PÚTÍN ÁSKILUR SÉR RÉTT TIL AÐ BEITA HERVALDI
Vladímír Pútín
Bókaverðir á bókasafni í eistnesku borginni Tartu hafa
náð góðum árangri í að kenna börnum að lesa með því
að fá þau til þess að lesa fyrir hunda sem leggja við
hlustirnar þegar krakkarnir lesa upphátt á safninu.
Þrír hundar heimsækja safnið tvisvar í mánuði og
hlusta á krakka sem eiga í erfiðleikum með lestur eða
eru með lítið sjálfsálit. Að sögn Evu Roots, verk-
efnastjóra, hefur þetta skilað mjög góðum árangri enda
fáir jafn þolinmóðir og hundar þegar kemur að því að
hlusta á upplestur.
EISTLAND
Börnin læra að lesa fyrir hundinn
Lesið fyrir voffa.
Aðalfundur
Sláturfélags Suðurlands svf.
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn á Laugalandi,
Holtum, föstudaginn 26. mars 2010 og hefst kl. 15:00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr. samþykkta félagsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera
komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir
aðalfund.
Reykjavík, 9. mars 2010.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.
l l s svf. ver ur haldinn á Goðalandi
Fljó shlíð, föstudagi n 21. mars 2014 og hefst kl. 15:00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillögur til breytingar á samþykktum.
3. Önnur mál.
Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera
komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir
aðalfund.
Reykjavík, 28. febrúar 2014.
Frumkvöðull í
hönnun glerja
SJÓNARHÓLL
Frumkvöðull að lækkun gleraugnaverðs á Íslandi
Reykjavíkurvegur 22 | S. 565 5970 | sjonarholl.is
Þar sem gæðagleraugu
kosta minna!
Á verði fyrir alla
- mikið úrval
*Les eða göngugleraugu Sph+/-4 cyl -2 fylgja
Glerin okkar koma frá BBGR
Frakklandi, einum virtasta
glerjaframleiðanda Evrópu
Margskipt verðlaunagler
frá 53.900 kr.
Rýmingarsala
Rýmum fyrir nýju!