Morgunblaðið - 05.03.2014, Side 22

Morgunblaðið - 05.03.2014, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það er meðmiklum ólík-indum að fylgjast með um- ræðunni hér á landi í tengslum við Evr- ópumálin. Stöð- ugum rangfærslum er haldið á loft um aðlögunarferlið, sem jafnan er kallað „samninga- ferli“, og látið sem að Ísland geti orðið aðili að Evrópusam- bandinu án þess að taka upp all- ar þær réttarreglur og tilskip- anir sem þegar hafa verið samþykktar innan sambands- ins. Þannig væri samkvæmt þessu hægt að ná fram glæsi- legri niðurstöðu fyrir Íslend- inga, einhvers konar samningi sem síðan ætti að kjósa um. „Pakkinn“ hefur hins vegar staðið opinn fyrir allra augum allan tímann, og heitir Lissa- bon-sáttmálinn. Það eina sem þarf að semja um er hversu langan tíma það taki fyrir okkur að aðlagast regluverkinu. Það sem einnig tálmar allri rökrænni umræðu um þessi mál er heiftin sem stuðningsmenn aðildar sýna af sér. Ef einhver dirfist að benda á klæðaleysi keisarans er hjólað í manninn en boltinn skilinn vandlega eft- ir. Nú síðast steig Ágúst Þór Árnason, einn af höfundum skýrslu Hagfræðistofnunar Há- skóla Íslands fram, og ítrekaði þá meginniðurstöðu skýrsl- unnar, að engar varanlegar undanþágur væri að fá úr hendi sambandsins. Viðræðunum væri því að hans mati sjálfhætt. Það var eins og við manninn mælt að um leið var farið að vega að starfsheiðri fræði- mannsins og draga í efa heilindi hans og jafnvel getu til þess að tjá sig um þessi mál. Var þar fremstur í flokki fyrrverandi utanríkisráðherra, sem gekk langt, jafnvel á eigin mæli- kvarða. En það hefði nú ekki þurft að koma Össuri neitt á óvart þó að honum væri bent á að engar varanlegar undanþágur væru í boði. Það hefur legið ljóst fyrir allan tímann. Daginn sem aðildarviðræðurnar hófust formlega, 27. júlí 2010, var haldinn víðfrægur fréttamanna- fundur þar sem Össur talaði um lausnir sem gætu hentað öllum og hugvitssemi ESB til þess að finna upp á „klæðskera- sniðnum“ sérlausnum fyrir ný aðildarríki. Hann hafði ekki fyrr sleppt orðinu en Stefan Füle, þáverandi stækk- unarstjóri ESB, áréttaði að sama hversu slíkar lausnir væru hugvitssamlegar, yrðu þær að vera innan ramma nú- verandi tilskipana. Orðrétt sagði hann að slíkar lausnir yrðu að vera „byggðar á þeirri almennu meginreglu, sem verð- ur gegnum- gangandi í gegnum viðræðurnar, að það eru engar var- anlegar und- anþágur frá tilskip- unum ESB“. En orð stækkunarstjórans sjálfs eru eflaust bara eitthvert svartstakkahjal og að engu haf- andi að mati áköfustu aðild- arsinna. Lítum því á hvað fram- kvæmdastjórn Evrópusambandsins sjálfs seg- ir á heimasíðu sinni um „samn- ingaferlið“. Undir liðnum „Um hvað er samið?“ er sagt skil- merkilega frá því að samið sé um aðstæður og tímasetningu þess að aðildarríkið taki upp allar núverandi reglur Evrópu- sambandsins. Segir svo í ís- lenskri þýðingu: „Þessum reglum er skipt í 35 mismun- andi stefnusvið (kafla), eins og samgöngur, orkumál, umhverfi o.s.frv., og er samið um hvern kafla sér. Reglurnar eru ekki umsemjanlegar.“ Síðustu tvö orðin, „ekki umsemjanlegar“, eru feitletruð til þess að ítreka það sem er rétt í þessum efnum: Það eru engar varanlegar und- anþágur í boði, en stundum fær aðildarríkið tíma til þess að að- lagast regluverkinu. Þessi orð sjálfrar fram- kvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins á eigin heimasíðu passa síðan vel við bæklinginn „Understanding Enlargement“ sem sambandið gaf út árið 2011 til þess að hjálpa fólki að skilja aðildarferlið, en þar segir á blaðsíðu 9: „Hugtakið „samn- ingaviðræður“ getur verið vill- andi. Aðildarviðræður einblína á skilyrði og tímasetningar á innleiðingu aðildarríkisins, út- færslu og framkvæmd á reglum ESB – um 100.000 blaðsíðum. Og þessar reglur (einnig þekkt- ar sem acquis, franska fyrir „það sem hefur verið sam- þykkt“) eru ekki umsemj- anlegar.“ Þetta eru ekki einu dæmin, því að framkvæmdastjórn ESB og sambandið sjálft hafa statt og stöðugt verið samkvæm sjálfum sér í því að ítreka og taka fram hvað sé í boði við inn- gönguna. Það er því löngu kom- inn tími til þess að stuðnings- menn aðildar fari að rökræða það hvers vegna Ísland eigi heima í Evrópusambandinu út frá þeim staðreyndum sem liggja fyrir, í staðinn fyrir að halda áfram með þann ranga málflutning sem hingað til hef- ur verið ráðandi í umræðunni. Það liggur nefnilega ljóst fyrir að á endanum myndi Ísland allt- af þurfa að gangast undir hina sameiginlegu sjávarútvegs- stefnu sambandsins. „Pakkinn“ svonefndi er nefnilega bæði gal- opinn og tómur í þokkabót. ESB hefur alls ekki falið „pakkann“ heldur sagt skýrt hvað í honum er} Umræða um ESB á miklum villigötum Á þessu ári eru liðin 1200 ár frá láti Karlamagnúsar, Karls mikla, og er þess minnst á ýmsan hátt víða í Evrópu. Eru það ekki síst Frakk- ar sem halda minningu hans á lofti, enda má hann heita einn helsti veraldlegi þjóðardýrlingur þeirra. Hann var konungur í Frankaríkinu mikla sem spannaði nær alla Vestur-Evrópu og oft er talið marka upphaf Evrópu í nútímaskilningi. Íslendingar höfðu snemma spurnir af Karla- magnúsi og afrekum hans. Íslenskir náms- menn í Frakklandi, menn eins og Sæmundur fróði á 11. öld og Þorlákur helgi á 12. öld, hafa kynnst sögnum um hann og áreiðanlega báðir lesið hina frægu ævisögu hans eftir lærdóms- manninn Einhard. Um Karlamagnús segir í Oddaverjaannál: „Karlamagnús var einn mekt- ugur keisari, sigursæll, guðhræddur, góðfús, vel siðaður. Hann kristnaði mörg lönd og háði stórar orrustur við heiðna kónga, hann er kallaður einn nytsamasti keisari kristindómsins.“ Karlamagnúss saga var skrifuð á Íslandi á 13. öld, hugsanlega fyrr, eftir erlendum heimildum, sum- um glötuðum. Engir voru hrifnari af Karlamagnúsi en Oddaverjar, mesta höfðingjaætt á Íslandi á 12. og 13. öld, tengdir norsku konungsfjölskyldunni blóðböndum. Þeir voru stórlátir og birtist það meðal annars í nafngiftum í fjölskyldunni. Nafnið Karlamagnús kemur þar fyrir á 13. öld, í fyrsta sinn á Íslandi. Ef marka má Ólafs sögu helga í Heimskringlu var Magnúsar-nafnið nokkru fyrr búið að ná fótfestu í Noregi, raunar fyrir áhrif íslensks skálds. Gat nú verið! Samkvæmt sögunni fæddi ambátt Ólafs konungs Haraldssonar ár- ið 1024 sveinbarn sem hann hafði getið. Þegar sveinninn fæddist var hann ekki talinn eiga líf fyrir höndum. Konungur svaf og hirðmenn þorðu ekki að vekja hann, þótt öllum væri ljóst að nauðsyn bar til að barnið fengi skírn ef það átti að verða hólpið. Sighvatur skáld Þórð- arson frá Apavatni var þá við hirðina og fregn- aði þessi vandræði. Hann tók af skarið og lét skíra barnið. Segir svo í Heimskringlu: „Svo gerðu þeir að sveinn sá var skírður og hét Magnús. Eftir um morguninn þá er konungur var vaknaður og klæddur var honum sagt allt frá þessum at- burðum. Þá lét konungur kalla til sín Sighvat. Konungur mælti: Hví varstu svo djarfur að þú lést skíra barn mitt fyrr en ég vissi? Sighvatur svarar: Því að ég vildi heldur gefa guði tvo menn en einn fjandanum. Konungur mælti: Fyrir hví mundi það við liggja? Sig- hvatur svarar: Barnið var að komið dauða og mundi það fjandans maður ef það dæi heiðið en nú var það guðs mað- ur. Hitt er og annað að ég vissi þótt þú værir mér reiður að þar mundi eigi meira við liggja en líf mitt en ef þú vilt að ég týni því fyrir þessa sök þá vænti ég að ég sé guðs mað- ur. Konungur mælti: Hví léstu sveininn Magnús heita? Ekki er það vort ættnafn. Sighvatur svarar: Ég hét hann eftir Karla-Magnúsi konungi. Þann vissi ég mann bestan í heimi.“ gudmundur@mbl.is Guðmundur Magnússon Pistill Þann vissi ég mann bestan í heimi STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Kristján Jónsson kjon@mbl.is Nám fer ekki eingöngufram í hefðbundnumskólum á Íslandi. All-mörg fyrirtæki hafa á síðustu árum lagt áherslu á það sem nefnt er mannauðsstefna. Oft er þá reynt að hafa í huga nýlegar kenn- ingar um straumlínustjórnun þar sem m.a. er reynt að tryggja öruggt flæði upplýsinga til starfsmanna og góðan starfsanda. Og eitt er víst: í slíkum fyrirtækjum er starfs- mannavelta yfirleitt minni en gengur og gerist. Námskeið til að auka þekkingu og færni hafa lengi tíðkast en fyrir 16 árum var gengið lengra. Þá stofnaði álverið í Straumsvík, nú í eigu Rio Tinto Alcan, Stóriðjuskólann en nám í honum gefur einingar sem metnar eru til stúdentprófs. Markmið skól- ans er einkum að auka fagþekkingu og öryggi starfsmanna og auka möguleika þeirra á frekari menntun og þróun í starfi. Fjarðaál á Reyð- arfirði hefur einnig komið sér upp Stóriðjuskóla í líkingu við starfsem- ina í Straumsvík, fékk leyfi til að nota sama heitið. Fleiri fyrirtæki og stofnanir hafa tekið upp þennan þráð, bjóða starfs- fólki nám sem stundað er í vinnutíma og kostað að mestu eða öllu leyti af fyrirtækinu. Hundruð manna hafa gegnum tíðina lokið slíku námi. Fyrirtækið Samskip var í gær útnefnt Menntafyrirtæki ársins 2014. Er þetta í fyrsta skipti sem þessi heiðursverðlaun eru veitt, auk Sam- skipa voru Isavia, Landsbankinn og Rio Tinto Alcan á Íslandi tilnefnd. Í skóla Samskipa fyrir flutninga- starfsmenn er sérstakt umbótaverk- efni unnið til lokaprófs eftir tveggja ára nám, þar eru lagðar fram hug- myndir að bættum verkferlum. Auð- ur Þórhallsdóttir, mannauðsráðgjafi Samskipa, segir að fyrirtækið hafi lagt sig fram í menntunar- og fræðslustarfsemi. Góð áhrif á reksturinn „Við teljum að flutningaskólinn hafi mjög góð áhrif á rekstur fyr- irtækisins og við munum kappkosta að gera enn betur,“ segir hún. Auk þess sem starfsmenn annast kennslu varðandi sín sérsvið hjá fyrirtækinu eru fengnir utanaðkomandi kennarar í undirstöðugreinum eins og íslensku og stærðfræði. Einu skilyrðin sem sett eru fyrir inngöngu eru að starfs- maður hafi náð 20 ára aldri og unnið í þrjú ár hjá Samskipum, fyrri mennt- un skiptir engu. Og nemendur eru á öllum aldri og af báðum kynjum. Kennt er fyrir hádegi á vinnutíma, annir eru tvær á ári. Þóra Birna Ásgeirsdóttir stýrir nú Stóriðjuskólanum í Straumsvík, þar er kennt eftir hádegi, fjórar stundir í senn. Alls hafa 206 útskrif- ast úr grunnnámi skólans og 22 úr framhaldsnámi. Hægt er að afla sér allt að 78 eininga til stúdentsprófs í skólanum. Þeir sem mæta í tíma þeg- ar þeir ættu ekki að vera á vakt fá hálft kaup greitt, einnig má geta þess að þeir sem ljúka náminu fá nokkra kauphækkun. Flestir starfsmenn eru úr röðum karla en núna eru álíka margar konur og karlar í skól- anum. En athyglisvert er að við nýráðningar í fyrra voru kon- ur í miklum meirihluta, að sögn Þóru. Er það í sam- ræmi við nýja stefnu fyr- irtækisins um að auka hlut kvenna. „Mér finnst sérstak- lega gott að sjá að fólk sem ekki hefur stundað nám um langt skeið gengur hnarreistara um þegar það er búið að sýna að það getur þetta,“ segir hún. Kennt í vinnunni og fagþekkingin nýtt Ylhýra málið Nokkrir kátir nemendur í íslenskutíma í flutningaskóla Samskipa. Þeir sem standa sig vel fá ábyrgðarmeiri störf. Í umfjöllun SA um þau fyrirtæki sem tilnefnd voru til verðlauna á Menntadegi ársins 2014 sagði: „Við mat á tilnefningum voru gæði fræðslunnar metin og kannað hvort mennta- og fræðslustefnan hafi eflt mennt- un innan fyrirtækjanna og aukið samkeppnishæfni þeirra.“ Áherslur fyrirtækjanna sem tilnefnd voru eru auðvitað ólíkar en mest er lagt upp úr því að nýta betur þekkingu starfsmanna og auka starfsánægju. Isavia leggur áherslu á að kenna þarfagreiningu og í skólanum er fjallað um fræðslu og þjálf- un á sviði flug- leiðsögu. Lands- bankinn hefur frá 2010 lagt áherslu á að efla liðsheild og innviði, ánægju við- skiptavina og ávinn- ing „samfélags og eigenda“. Mismunandi áherslur AUKIN SAMKEPPNISHÆFNI Starfsmaður Isavia

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.