Morgunblaðið - 05.03.2014, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 05.03.2014, Qupperneq 44
MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 64. DAGUR ÁRSINS 2014 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Kristinn fundinn heill á húfi 2. Tveir lögreglumenn á slysadeild 3. Lýst eftir 28 ára manni 4. Verstu skipulagsmistök í áratugi »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Japanski fiðlusnillingurinn Midori leikur með Sinfóníuhljómsveit Ís- lands í Eldborgarsal Hörpu á morgun og á föstudag kl. 19.30. Auk þess að vera meðal eftirsóttustu fiðluleikara heims er Midori friðarsendiherra Sameinuðu þjóðanna og hefur hún unnið að því að kynna hinum efna- minni víða um heim tónlist, stendur m.a. fyrir árlegri röð tónleika í skól- um New York-borgar. Midori mun fara um Reykjavík í heimsókn sinni og spila á ýmsum stöðum. Midori vakti heimsathygli þegar hún lék með Fíl- harmóníusveit New York aðeins ell- efu ára og hefur leikið með öllum þekktustu hljómsveitum heims. Fiðlusnillingur leikur víða um Reykjavík  Nær þúsund áhorfendur hafa séð Ármann Einarsson, 48 ára „föður með bumbu“, eins og honum er lýst í tilkynningu, dansa í verkinu Dansaðu fyrir mig sem nú er sýnt í Tjarnarbíói. Ármann bjó ekki að neinni dans- reynslu þegar hann ákvað í fyrra að láta áralangan draum sinn rætast um að koma fram í samtímadansverki. Danshöfundurinn Brogan Davison, tengdadóttir Ármanns, dansar með honum í verkinu og var það frumsýnt fyrir tæpu ári. Ármann og Davison munu seinna á árinu dansa í Noregi, Kanada og Þýskalandi og von- ast til þess að ná þúsund gesta markinu áður en að því kem- ur. Tæpt þúsund hefur séð Ármann dansa Á fimmtudag og föstudag Suðvestan 5-13 m/s og él, en skýjað með köflum og þurrt NA- og A-lands. Suðvestan 10-18 síðdegis á föstudag. Frost víða 0 til 5 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða él, en úrkomulítið fyrir norðan. Gengur í suðvestan 13-20 m/s á S- og SA-landi með snjókomu eftir hádegi. Dregur úr vindi og ofankomu annað kvöld. Hiti kringum frostmark. VEÐUR „Maður er búinn að spila þarna nokkra leikina og það er auðvitað svolítið sérstakt að vera á heima- velli en samt á útivelli. Ég er bara spenntur og hlakka til leiksins,“ sagði Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, við Morg- unblaðið í gær en Ísland mætir Wales í vin- áttulandsleik í Cardiff í Wales í kvöld. »1 Hvað gera strák- arnir gegn Bale? „Þetta er rosalega mikilvægt mót fyrir okkur. Við sjáum mikil tækifæri í því að nýta þennan tíma til að æfa og koma okkar áherslum inn. Við kynn- umst líka leikmönnum betur, innan sem utan vallar, sem er líka mjög mik- ilvægt,“ sagði Freyr Alex- andersson sem er mættur á sitt fyrsta Alg- arve-mót sem þjálf- ari kvenna- landsliðs Íslands í knatt- spyrnu. »4 Rosalega mikilvægt mót fyrir okkur „Stefna okkar er að komast í um- spilið. Auðvitað vilja strákarnir kom- ast í lokakeppnina. Bæði til að upp- lifa það að keppa á stórmóti, og svo er það stór og mikill gluggi fyrir leik- menn til að sýna hvað í þeim býr,“ segir Eyjólfur Sverrisson þjálfari U21 árs landsliðsins sem mætir Kasakst- an ytra í dag í undankeppni EM. »2 Stefna okkar er að kom- ast í umspilið fyrir EM ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Geitastofninn hér á bæ dafnar vel. Frjósemin er mikil, kjötið gott og mjólkurlagni huðnanna með ágætum. Þetta er árangur ræktunarstarfs síð- astliðinna fjórtán ára og ég vonast til þess að geta haldið þessu áfram,“ segir Jóhanna B. Þorvaldsdóttir, geitabóndi á Háafelli í Hvítársíðu, í Borgarfirði. Fólk vill beint frá býli Jóhanna var meðal þátttakenda í vetrarmarkaði Búrsins í Hörpu um helgina, en til hans var efnt jafnhliða setningu Búnaðarþings. Þar sýndu og seldu milli 40 og 50 framleiðendur – margir tengdir sveitum landsins – vörur sínar. Meðal afurða má nefna geitakjöt frá Háafelli og sápur og snyrtivörur úr geitamjólk og tólg. Aðrir voru með snyrtivörur, sultur, drykki, kornmeti, brauð og svo mætti lengi áfram telja. Fjölmargir sóttu markaðinn og gerðu þar góð kaup. Segir Jóhanna það haldast í hendur við að áhugi almennings á landbún- aði, og eins því að kaupa vörur beint frá býli, sé stöðugt að aukast. Í vetur hefur Jóhanna haldið um 190 geitur á Háafelli. Hún segir inn- byrðisskyldleika í stofninum hafa sett nokkurt strik i reikninginn – en með markvissri ræktun sé verið að taka á því. „Ég nota að jafnaði níu hafra sem sinna 160 huðnum. Í fyrra seldi ég um 30 lífdýr til bænda sem vilja hasla sér völl í geitabúskap, en um 80 dýr fóru í sláturhús á Hvammstanga. Þar er kjötið líka unnið, eins og læri, hrygg- ur og grillsneiðar af kiðlingum. Kjöt af eldri dýrum er hins vegar nýtt sem hráefni í pylsugerð. Í sláturhúsinu á Hvammstanga hefur fólk einmitt ver- ið mjög áhugasamt um þetta verkefni og að gefa nýrri búgrein þannig svig- rúm,“ segir Jóhanna. Hún kemur geitamjólkinni að Erpsstöðum í Döl- um. Þar er rekið lítið mjólkurbú, sem hefur öll tilskilin leyfi til vinnslu á til að mynda ostum sem Jóhanna selur í sínum eigin ranni. Kýr fátæka mannsins „Stundum er sagt að geitin sé kýr fátæka bóndans. Þetta eru ótrúlega afurðamiklar skepnur, sem eru léttar á fóðrum en skila samt sínu; það er kjöti og mjólk. Geta komist vel af þrátt fyrir þurrka og það er ekki að ástæðulausu að geitfjárrækt er mikið stunduð til dæmis í Asíu, Afríku og löndum Suður-Ameríku. Þeir sem til þekkja segja að um 70% alls kjöts og mjólkur sem neytt er í heiminum komi af geitum. Geitamjólkin hefur líka aðra samsetningu en kúamjólk, þannig að til dæmis fólk sem er með mjólkuróþol getur yfirleitt drukkið hana án óþæginda,“ segir Jóhanna. Hún tekur á ári hverju á móti um 5.000 gestum sem koma í Geit- fjársetrið að Háafelli, að stærstum hluta Íslendingar, til að sjá hafra, huðnur og kiðlinga – og bragða á af- urðum. Góð mjólk og frjósamar huðnur  Kynnti geita- afurðir af Hvít- ársíðu í Hörpu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sveitakona Þetta eru ótrúlega afurðamiklar skepnur, sem eru léttar á fóðrum en skila samt sínu, það er kjöti og mjólk,“ segir Jóhanna Þorvaldsdóttir geitabóndi sem kynnti afurðir sínar á markaði í Hörpu um sl. helgi. Nærri 70 bændur víða um land stunda geitfjárrækt. Flestir eru með þennan búskap í smærri stíl, það er tíu dýr eða færri. Nokkrir eru umsvifameiri, svo sem bændur í Flókadal í Borgarfirði, Dölum, Svarfaðardal og á Möðrudal á Fjöllum. „Kúnstin við geit- fjárbúskap felst í því að gera sér grein fyrir að þetta eru dýr sem hafa sterkan persónuleika. Þú rek- ur geiturnar ekki áfram í einu safni eins og fé af fjalli heldur þarf að koma til móts við hverja og eina. Þú þarft að vinna með skepnunum til þess að það skili góðum afurð- um,“ segir Jóhanna sem hefur ver- ið frumkvöðull í því að rækta upp íslenska geitastofninn. Kunnugir hafa stundum á það bent að líklegt sé að geitfjárrækt hafi verið stunduð hér á landi á landnámsöld. Er þar bent á örnefni og bæjarnöfn eins og Geitafell, Hafursey, Hafrahvamma og Geit- eyjarströnd. Dýr með sterkan persónuleika TUGIR GEITABÆNDA ERU VÍÐA UM LANDIÐ Geitur Í Geitfjársetrinu í Hvítársíðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.