Morgunblaðið - 30.04.2014, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 3 0. A P R Í L 2 0 1 4
Stofnað 1913 100. tölublað 102. árgangur
SAMKEPPNIN
HÖFUÐFAT
ÁRSINS 2014
ÍBV
TRYGGÐI
ODDALEIK
GRUNNSKÓLABÖRN
FJÖLMENNTU Á
OPNUNARATHÖFN
HANDBOLTI ÍÞRÓTTIR BARNAMENNINGARHÁTÍÐ 40ULLARVINNSLAN Í ÞINGBORG 10
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Lax Íslenskur eldislax er fluttur ferskur á
markað vestanhafs og austan.
Framleiðsla í fiskeldi eykst um
60% í ár frá síðasta ári, samkvæmt
áætlun framkvæmdastjóra Lands-
sambands fiskeldisstöðva. Mesta
aukningin er í laxi og regnbogasil-
ungi. Enn meiri aukning er í spil-
unum. Ef áform þeirra sem fengið
hafa leyfi og sótt um leyfi ganga
eftir mun fiskeldið framleiða 80-90
þúsund tonn á ári eftir 10-15 ár og
útflutningsverðmæti afurðanna
verður 75-80 milljarðar króna.
Fiskeldið er sveiflukennd og erfið
atvinnugrein og þarf margt að
ganga eftir til að þessar áætlanir
nái fram að ganga.
Mikill áhugi er á fiskeldi um þess-
ar mundir. Það kom m.a. fram í því
að hátt í 200 manns sóttu ráðstefnu
Landssambands fiskeldisstöðva um
sjókvíaeldi í gær. »4
Fiskeldið getur skil-
að 75-80 milljarða
króna verðmætum
Mél Ein gerð stangaméla með
tunguboga sem á að útiloka.
Rannsókn á áverkum í munni hesta á
Landsmóti og Íslandsmóti 2012 sýna
að beint samband er á milli notkunar
stangaméla með tunguboga og
áverka á kjálkabeini. Sigurborg
Daðadóttir yfirdýralæknir telur notk-
un mélanna stangast á við ný lög um
velferð dýra og beinir þeim tilmælum
til hestamanna og samtaka þeirra að
hætta notkun þeirra.
Niðurstöður rannsóknarinnar, sem
Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir
hrossasjúkdóma, vann með liðsinni
Þorvaldar Kristjánssonar, kennara
við Landbúnaðarháskóla Íslands,
sýna að sterk tengsl og hámarktæk
eru á milli notkunar stangaméla með
tunguboga og áverka á kjálkabeini.
Ríflega helmingur þeirra hrossa sem
riðið var við tunguboga var með
áverka á kjálkabeini, í flestum til-
vikum alvarlega. Þessir áverkar
fundust nánast ekki hjá hrossum sem
riðið var við aðrar gerðir méla. Notk-
un stangaméla með tunguboga
reyndist auka hættuna á áverkum á
kjálkabeini 75-falt. Sigríður ráð-
leggur hestamönnum að nota ekki
búnaðinn við undirbúning Landsmóts
í sumar. »14
Tungubogi talinn ólöglegur
Yfirdýralæknir biður hestamenn að hætta notkun búnaðar
Fluga Svarta hermannaflugan.
Svarta hermannaflugan var flutt
til landsins fyrir um ári og hefur
verið í sóttkví á Keldum síðan.
Brátt verður hún flutt til Vestfjarða
þar sem lirfa hennar mun gegna
hlutverki úrgangseyðis og fóðurs í
umhverfisvænu íslensku verkefni
sem hefst í júní. Lirfurnar éta líf-
rænan úrgang en enda svo sjálfar á
að verða fóður fyrir eldisfiska því
þær eru mjög próteinríkar. »6
Lirfur látnar éta
lífræna úrganginn
ASÍ kynnti SA í gær kröfur sínar
um breyttar áherslur í komandi
kjaraviðræðum. ASÍ segir ljóst að
tilraun til að gera stöðugleikasamn-
ing til lengri tíma sé í uppnámi.
Bent er á að ríki og sveitarfélög
hafi undanfarið samþykkt veruleg
frávik frá þeirri meginlínu sem lá
til grundvallar kjarasamningum
sem gerðir voru í desember 2013 og
febrúar 2014.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
sagði t.d. ljóst að krafa grunnskóla-
og leikskólakennara væri sú sama
og var hjá framhaldsskólakenn-
urum, hvað sem
viðkæmi meintri
hagræðingu.
Eins væri ljóst að
háskólamenn
hefðu samið við
sveitarfélögin
um 8-9% launa-
hækkun sem
ekki stóð lægri
tekjuhópum til
boða. Hann sagði
ljóst að búið væri að taka upp aðra
viðmiðun og það hefði valdið mikilli
reiði meðal annarra launþega. »4
ASÍ vill breyttar
áherslur í samningum
Gylfi
Arnbjörnsson
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Forsvarsmenn Samtaka atvinnulífs-
ins og Isavia og Félags flugmála-
starfsmanna ríkisins (FFR), Stéttar-
félags í almannaþjónustu (SFR) og
Landsambands slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamanna (LSS) undirrituðu
nýjan kjarasamning kl. 23.30 í gær-
kvöldi.
Samningurinn er til þriggja ára og
hljóðar upp á 4% hækkun á ári. Fyrr
um kvöldið höfðu aðilar tilkynnt að
samkomulag hefði náðst um að fresta
allsherjarverkfalli, sem hefjast átti kl.
4 í morgun, fram til 22. maí.
„Þetta er flókinn samningur og það
var lagt upp með það að ná fram
launaleiðréttingum og almennum
hækkunum fyrir okkar félagsmenn og
ég tel að það hafi tekist,“ sagði Krist-
ján Jóhannsson, formaður FFR, í
gærkvöldi. Hann sagði að menn hefðu
lagt mikið á sig til að mætast, síðustu
daga og fram eftir degi í gær, og sú
vinna hefði skilað árangri.
Kristján sagði að legið hefði fyrir í
gær að verkfallið yrði ekki langlíft en
það yrði félagsmanna að úrskurða um
örlög samningsins. Niðurstaða úr at-
kvæðagreiðslu um samninginn verður
að liggja fyrir 15. maí en kynningar á
honum hefjast strax eftir helgi.
Tókst að forðast stórtjón
Þorsteinn Víglundsson, fram-
kvæmdastjóri SA, sagði í gærkvöldi
að tekist hefði að leysa úr ýmsum
ágreiningsmálum í gær og að menn
hefðu leitað lausna með opnum huga.
„Ég held að þetta sé farsæl niðurstaða
fyrir báða aðila. Það er ljóst að þarna
tókst að forða stórkostlegu tjóni, sem
hefði getað orðið ef komið hefði til alls-
herjarverkfalls. Þarna voru mikir
hagsmunir í húfi,“ sagði hann.
Þorsteinn sagði yfirvofandi verkfall
þó ekki hafa orðið til þess að menn
vikju frá markmiðum sínum. „Við
náðum niðurstöðu sem er í samræmi
við þá línu sem mótuð hefur verið á al-
mennum vinnumarkaði og forsendur
um stöðugleika og ég held að báðir að-
ilar geti vel við unað.“
Samið og verkfalli frestað
Flugvallastarfsmenn sömdu til þriggja ára Hækkunin nemur 4% á ári Alls-
herjarverkfalli frestað til 22. maí „Farsæl niðurstaða fyrir báða aðila“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á miðnætti Kristján Jóhannsson, með samninginn í höndunum, ásamt Magnúsi Péturssyni ríkissáttasemjara.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Leifsstöð Farþegar og áhafnir á leið í Ameríkuflug í Leifsstöð síðdegis í
gær, um það leyti sem ljóst varð að boðuðu verkfalli hafði verið frestað.
Hanna Birna Kristjánsdóttir innan-
ríkisráðherra fór yfir stöðu mála á
ríkisstjórnarfundi í gær en ráðu-
neytið hafði undirbúið frumvarp að
lagasetningu gegn yfirvofandi
verkfalli. Eftir fundinn sagði hún
m.a. að því yrði ekki unað að landið
yrði lokað í langan tíma en að
samningsaðilar ættu að fá tækifæri
til að leiða málið til lykta.
Helgi Hjörvar, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, gagnrýndi umfjöll-
un um aðgerðir gegn verkfalli á Al-
þingi í gær og sagði lagasetningu
brot gegn verkfallsréttinum.
Spurði hann m.a. hvort lögunum
yrði þá næst beitt gegn flug-
mönnum og flugfreyjum. Til laga-
setningar kom ekki.
Ráðuneytið hafði
undirbúið lög