Morgunblaðið - 30.04.2014, Blaðsíða 35
hverju sumri. Tilgangurinn var að
viðkomandi lærðu þýsku. Vinkon-
urnar og vinnukonurnar þetta sum-
arið lærðu ýmisleg orð, ekki öll á há-
þýsku heldur frekar með týrólskum
sönglanda.
Eftir stúdentspróf úr Mennta-
skólanum í Reykjavík, stundaði hún
nám við viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla Íslands og lauk prófi 1988.
Meðfram háskólanámi starfaði Ásta
Hrönn sem blaðamaður á Morg-
unblaðinu frá 1983-1988, fyrst í inn-
lendum fréttum og síðan á við-
skiptablaði Morgunblaðsins.
Eftir háskólapróf starfaði Ásta
Hrönn sem markaðsráðgjafi á Ís-
lensku auglýsingastofunni, var fram-
kvæmdastjóri Kirkjulistahátíðar og
tók síðan við framkvæmdastjórn Ís-
lenskrar tónverkamiðstöðvar. Að
loknu MBA námi við Háskóla Ís-
lands, hóf Ásta Hrönn störf við skól-
ann, fyrst sem forstöðumaður sjóða
Háskólans, þá sem skrifstofustjóri
rekstrar- og framkvæmdasviðs og
síðan framkvæmdastjóri markaðs-
og samskiptasviðs.
Frá hausti 2007 hefur Ásta Hrönn
starfað hjá hugbúnaðarfyrirtækinu
EC Software á Íslandi og í borginni
Chennai á Indlandi. Fyrirtækið
hannar gagnvirkan hugbúnað fyrir
tölvur og snjalltæki. EC Software er
með eitt hæsta hlutfall af kvenkyns
stjórnendum í Tamil Nadu-héraði,
og eitt af því sem þær ákváðu að
gera var að stofna blaklið. „Kven-
klæðnaður í Chennai er hefðbund-
inn, hann heitir salwar, og sam-
anstendur af síðum kjól, buxum og
slæðu. Konur stunda sína líkams-
rækt í þessum fötum, þær fara í
þessum fötum á hlaupabrettin,“ seg-
ir Ásta. Sú hefð breyttist því ekki, þó
að blakliðið væri komið til sögunnar,
og æfir það og spilar í sínum hefð-
bundnu fötum.
Áhugasvið Ástu liggur víða. Frá 7
ára til þrítugs var kórsöngur fyr-
irferðamikill, fyrst í Laugarnesskóla,
og síðan í Tónskóla Sigursveins.
Ásta er einn af stofnfélögum Mót-
ettukórs Hallgrímskirkju og söng
með í 15 ár undir stjórn Harðar Ás-
kelssonar. Ásta sat í stjórn Hlað-
varpans í nokkur ár á meðan húsið
gegndi hlutverki menningar-
miðstöðvar kvenna. „Starfsins vegna
eru fjarvistir margar og langar og þá
er samveran með fjölskyldunni það
eina sem máli skiptir og allt sem
gæti flokkast undir áhugamál verður
léttvægt. En þau eru samt þarna og
bíða síns tíma: tónlist, leiklist, garð-
urinn, gæludýrin, handavinnan og
sveitin,“ segir Ásta Hrönn.
Fjölskylda
Eiginmaður Ástu Hrannar er Jón
Karlsson, f. 13.3. 1946.
Foreldrar hans: Svanborg Oktavía
Karlsdóttir, f. 9.2. 1928, húsmóðir í
Reykjavík, og stjúpfaðir er Hjörtur
Jónsson. f. 5.2. 1920, d. 30.12. 1975
verkstjóri BÚR.
Foreldrar Ástu Hrannar eru
Viggó Einar Maack, f. 4.4. 1922, d.
30.10. 2013, skipaverkfræðingur og
Ásta Þorsteinsdóttir f. 30. sept-
ember 1924, húsmóðir og versl-
unarmaður í Reykjavík.
Fyrri maki Ástu Hrannar er
Hörður Magnússon f. 21.2. 1965,
verslunarstjóri.
Börn Ástu Hrannar og Jóns eru:
Hjörtur Jónsson framkvæmdastjóri,
Flórída, Bandaríkjunum. Hann á
Kolbrúnu Ýr, Hjört Inga, Bergdísi
Sif og Sigrúnu Lilju; Hans Jónsson
framkvæmdastjóri í Svíþjóð er
kvæntur Camillu Jónsson tannsmið
og þau eiga Anton og Sögu; Ívar
Jónsson bílstjóri, Reykjavík, er
kvæntur Guðnýju Sigurbjörgu Jó-
hannesdóttur tryggingafræðingi.
Þau eiga Erlu Björku, Fanneyju
Svanborgu og Hans Jón; Jón Helgi
Jónsson hugbúnaðarsérfræðingur er
kvæntur Yuko Ishi hugbúnaðarsér-
fræðingi og þau búa í Tokyo; Jóhann
Páll Jónsson er nemi við Háskóla Ís-
lands; Pétur Jónsson er nemi við
Menntaskólann í Hamrahlíð og
Viggó Einar Maack Jónsson er nemi
við Menntaskólann í Reykjavík.
Systkini Ástu Hrannar eru Lára
Halla Maack geðlæknir; Pjetur Þor-
steinn Maack kennari; Einar Viggó
Maack, f. 14.4 1952, d. 24.7. 1977; og
María Hildur Maack líf- og umhverf-
isfræðingur.
Úr frændgarði Ástu Hrannar Maack
Ásta Hrönn
Maack
Daníel Þorsteinsson
skipasmíðameistari í Reykjavík
Guðrún Egilsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Þorsteinn Daníelsson
skipasmíðameistari í Reykjavík
Lára Guðmundsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Ásta Þorsteinsdóttir Maack
verslunarmaður í Reykjavík
Guðmundur Guðmundsson
verkamaður í Reykjavík
Bjarney Guðrún Eleseusdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Pjetur Andrés Maack
prestur á Stað í Grunnavík
Vigdís Einarsdóttir
húsfreyja á Stað
Pjetur Andreas Maack
skipstjóri í Reykjavík
Hallfríður Hallgrímsdóttir Maack
húsfreyja í Reykjavík
Viggó Einar Maack
skipaverkfræðingur í Reykjavík
Hallgrímur Benediktsson
söðlasmiður og bóndi á
Fremsta-Felli í Kinn
Elísabet
Jónsdóttir
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2014
Það er ekki oft sem fimm ættliðir, sem
innihalda sex einstaklinga, koma sam-
an. Það tilefni gafst í skírnarveislu
þeirra Anítu Rutar og Carmen Bylgju
Arnarsdætra í fyrra. Nokkur aldurs-
munur er á yngsta ættliðnum og þeim
elsta, eða um 87 ár. Kunnugir segja að
dömurnar ungu beri engan sérstakan
ættarsvip, þær líkist bara sjálfum sér.
Þær eru eins árs í dag.
Á myndinni eru Magnús Jón Pét-
ursson langafi, Fanney Jónsdóttir
langalangamma, Rúna Björg Magn-
úsdóttir amma, Sigurósk Sunna
Magnúsdóttir, Aníta Rut og Carmen
Bylgja. Faðir tvíburanna heitir Arnar
Gústafsson og litla nýstofnaða fjöl-
skyldan er búsett í Garðabæ.
Fimm ættliðir
„Þær líkjast bara sjálfum sér“
90 ára
Anna Jóhannsdóttir
Baldvin Árnason
Sigurbjörg Sigbjörnsdóttir
85 ára
Þóra Viktorsdóttir
80 ára
Björg Gunnlaugsdóttir
Guðrún Sigurbjörg
Jóhannsdóttir
John Ernest Benedikz
Kjartan Geir Karlsson
75 ára
Elísa Vilborg Berthelsen
Jón Sigurbergur Kortsson
María Einarsdóttir
Sigvaldi Sigvaldason
70 ára
Guðjón Torfason
Guðrún Elín Kaaber
Hreinn Ómar Arason
Kristín Erna Ólafsdóttir
Ólöf Karlsdóttir
Sigfús Ólafsson
60 ára
Eva Guðný Þorvaldsdóttir
Eva Þórey Haraldsdóttir
Ingvar Hólm Traustason
Kristín S. Steingrímsdóttir
Musiala Czeslaw
Sigrún Jóna Marelsdóttir
Sigurður Georgsson
50 ára
Anton Ketill Halldórsson
Bergþóra Vilhelmsdóttir
Birgir Sigurðsson
Birna Baldursdóttir
Björg Þorkelsdóttir
Einar Bjarnason
Helgi Helgason
Hrund Hafsteinsdóttir
Ingunn Gyða Wernersdóttir
Jón Hafsteinn Hannesson
Jónína Vilborg Karlsdóttir
Kolbrún Ólafsdóttir
Magdalene Anna Xavier
Sigurdór Sigvaldason
Sigurður Ómar Hreinsson
Svavar Ásbjörnsson
Vilhelm Jónsson
40 ára
Aðalheiður Ína Berndsen
Erling Adolf Ágústsson
Friðrik Tryggvi Einarsson
Guðlaug Anny
Guðlaugsdóttir
Jenný Ýr Benediktsdóttir
Jónas Hlíðar Vilhelmsson
Ragnar Páll Ólafsson
Stefán Ingimar Þórhallsson
Valgerður Hrönn
Ingvarsdóttir
Þjóðbjörn Jóhannsson
30 ára
Anton Rúnarsson
Birkir Örn Hlynsson
Garðar Guðnason
Jóhannes Erlingsson
Lilja Rut Bech Hlynsdóttir
Maria Wiktoria Krupa
Pawel Sebastian Zielke
Piotr Stanislaw Turkowski
Sigrún Ósk Jónsdóttir
Zaneta Krystyna Dondelska
Þóra Ósk Viðarsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Aron Örn býr í
Hafnarfirði og er stjórn-
málafræðingur. Hann vinn-
ur sem vottaður trygg-
ingaráðgjafi.
Maki: Berglind Sigurð-
ardóttir, f. 1984, vinnur hjá
fjármálasviði Plain Vanilla.
Dætur: Eva Antonía, f.
2009, og Rakel Birta, f.
2013.
Foreldrar: Berglind
Bjarnadóttir, f. 1962 og
Þórarinn Gestsson, f.
1960.
Aron Örn
Þórarinsson
30 ára Sonja Maggý
ólst upp í Hafnarfirði, en
býr nú í Reykjavík. Hún
er menntaður hjúkr-
unarfræðingur og starf-
ar sem lífstílsleiðbein-
andi.
Maki: Baldur Örn
Ólafsson, f. 1981,
lífstílsleiðbeinandi.
Foreldrar: Elísabet
Sonja Harðardóttir, f.
1948, leikskólastarfs-
maður og Magnús Ólafs-
son, f. 1946, leikari.
Sonja Maggý
Magnúsdóttir
30 ára Ragnar Daði býr
í Reykjavík og vinnur í
álverinu á Straumsvík.
Maki: Sandra Dögg
Vignisdóttir, f. 1988,
leikskólakennari.
Börn: Unnar Nói, f.
2009 og Eva Rebekka, f.
2012.
Foreldrar: Ingibjörg
Áslaugsdóttir, f. 1957,
sjúkraliði og Jóhann Þór
Alfreðsson, f. 1957,
vélstjóri á Tómasi
Þorvaldssyni GK.
Ragnar Daði
Jóhannsson
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
www.gilbert.is
FYRIR ERFIÐUSTU AÐSTÆÐUR
SIF BJÖRGUNARÚRIÐ
ÍSLENSKT 1000 METRA VATNSHELT OFURÚR