Morgunblaðið - 30.04.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
LEIÐIN TIL HOLLUSTU
Skyr.is drykkirnir standast þær ströngu kröfur
sem gerðar eru til matvæla sem merktar eru
Skráargatinu. Þú getur treyst á hollustu Skyr.is.
www.skyr.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
Grunnskólakennarar hafa samþykkt
vinnustöðvun 15., 21. og 27. maí næst-
komandi. Aðgerðirnar voru sam-
þykktar með miklum meirihluta at-
kvæða, 81,6%. Ólafur Loftsson,
formaður Félags grunnskólakenn-
ara, segir niðurstöðuna ekki koma á
óvart en mikil samstaða ríki meðal fé-
lagsmanna, sem séu orðnir lang-
þreyttir á biðinni eftir leiðréttingu.
Ólafur segir stöðuna í viðræðum
kennara við sveitarfélögin þunga.
„Það gengur mjög hægt að ná þessu
saman,“ segir hann. Hann segir til-
gang boðaðra aðgerða m.a. þann að
vekja athygli á þeirri skrýtnu stöðu
sem upp sé komin. „Það eru allir sam-
mála um að það þurfi að leiðrétta
launin, það eru allir sammála um að
launin séu alltof lág og það er sama
hvern þú spyrð; ef þú hringir í sveit-
arstjórnarmenn þá svara þeir þessu
eins og ráðherrarnir svara þessu
eins. En samt er ekki hægt að
semja,“ segir hann. Ólafur segir
menn vona að ekki þurfi að koma til
vinnustöðvunar en verði af henni liggi
ljóst fyrir að ekkert starf verði í skól-
unum umrædda daga. Í einhverjum
skólum muni aðgerðirnar koma niður
á prófum, kennslu í öðrum en þá séu
einnig skólaferðalög og fleira á dag-
skrá.
„Við munum strax á morgun [mið-
vikudag] skipa verkfallsstjórn af okk-
ar hálfu sem þarf þá að fara að hugsa
og svara spurningum sem upp
koma,“ segir hann en mikilvægt sé að
eyða þeirri óvissu sem upp gæti kom-
ið vegna aðgerðanna. „En maður von-
ar auðvitað að það verði búið að semja
og það verði ekki mikil röskun,“ bætir
hann við. holmfridur@mbl.is
Samþykktu vinnustöðvun
Grunnskólakennarar leggja niður störf þrjá daga í maí
81,6% fylgjandi aðgerðum Hægur gangur í viðræðum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Einhugur Ólafur segir mikla
samstöðu ríkja meðal kennara.
„Ég er mjög bjartsýn fyrir hönd framboðsins,
þetta er fyrsta blandaða framboðið í landinu í
langan tíma. Við höfum fengið til liðs við okkur
fólk til að leggja skynsamlegri ákvarðanatöku í
nærsamfélaginu lið,“ sagði Sveinbjörg Birna
Sveinbjörnsdóttir, héraðsdómslögmaður. Hún
mun leiða lista Framsóknar og flugvallarvina í
Reykjavík við komandi borgarstjórnarkosningar.
Konur skipa fjögur efstu sæti listans. Í 2. sæti er
Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir hdl. Framboðslist-
inn var samþykktur á aukakjördæmisþingi
Kjördæmasambands framsóknarmanna í Reykja-
vík í gærkvöldi.
Sveinbjörg sagði þrjú mál verða sett á oddinn í
kosningabaráttunni: húsnæðisöryggi, að tryggja
borgarbúum húsnæði í samræmi við fjöl-
skyldustærð. Í öðru lagi Reykjavíkurflugvöllur en
skýr ályktun með flugvellinum lægi fyrir frá
flokksþingi Framsóknarflokksins. Í þriðja lagi
verður lögð áhersla á fjölskyldu- og menntamál.
„Listann skipar bæði flokksbundið og óflokks-
bundið fólk sem vill standa vörð um Reykjavík-
urflugvöll, hjartað í Vatnsmýrinni,“ sagði í til-
kynningu frá Framsókn og flugvallarvinum.
Sveinbjörg leiðir listann
Blandaður listi Framsóknar og flugvallarvina í Reykjavík Konur í fjórum
efstu sætunum Húsnæðisöryggi, flugvöllurinn og fjölskyldu- og menntamál
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framsókn Sveinbjörg Birna, lengst til hægri í fremstu röð, leiðir listann og við hlið hennar sitja
Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir, Gréta Björg Egilsdóttir, í 3. sæti, og Jóna Björg Sætran, í 4. sæti.
Yfirgnæfandi meiri-
hluti flugmanna
Icelandair greiddi
atkvæði með tillögu
um verkfalls-
aðgerðir í maí
vegna yfirstandandi
kjaradeilu. Á kjör-
skrá voru 330 fé-
lagsmenn Félags íslenskra atvinnu-
flugmanna en atkvæði greiddi 301.
Tillagan var samþykkt með 295 at-
kvæðum. Enginn greiddi atkvæði á
móti en sex sátu hjá.
Að óbreyttu munu flugmenn Ice-
landair leggja niður störf milli kl. 6
og 18 dagana 9., 16. og 20. maí. Í
framhaldinu verður vinnustöðvun
frá kl. 6 að morgni 23. maí fram til
kl. 6 að morgni 25. maí og frá kl. 6 að
morgni 30. maí til kl. 6 að morgni 3.
júní. Ótímabundið yfirvinnubann
hefst kl. 6 að morgni 9. maí.
Í tilkynningu frá Icelandair segir
að ljóst sé að flugáætlun fyrirtæk-
isins muni raskast verði af aðgerð-
unum. Þá segir þar að óvíst sé hvaða
áhrif aðgerðirnar muni hafa á af-
komu Icelandair Group hf.
Flugmenn
samþykkja
aðgerðir
Boða vinnustöðv-
un og yfirvinnubann
Fulltrúar frá þýska fyrirtækinu
PCC áttu fundi á Húsavík í gær með
sveitarstjórnarmönnum Norður-
þings. Sem kunnugt er hefur fyrir-
tækið áform um að reisa kísilmálm-
verksmiðju á Húsavík sem myndi
framleiða um 33 þúsund tonn á ári í
fyrsta áfanga. Auk lóðar á Bakka
undir verksmiðjuna sjálfa hefur
Norðurþing úthlutað PCC lóð undir
vinnubúðir fyrir allt að 400 manns.
Bergur Elías Ágústsson, sveitar-
stjóri Norðurþings, sagði við Morg-
unblaðið í gærkvöldi, að góður skrið-
ur væri á undirbúningi málsins.
„Við höfum verið að fara yfir
hvernig staðan er. Vinnan gengur
vel og það er reynt að þrýsta á það á
öllum vígstöðvum að hægt verði að
hefjast handa sem fyrst,“ sagði
Bergur, sem gerir sér vonir um að
framkvæmdir geti hafist strax á
þessu ári. bjb@mbl.is
Vinnubúðir
fyrir allt að
400 manns
PCC fær lóð
Norðfjörður | Starfsmaður tré-
smiðjunnar Nípukolls á Norðfirði
slapp ómeiddur þegar sprenging
varð í gömlum bensíntanki sem
hann var að vinna við seinni part-
inn í gær.
Maðurinn var að skera loft-
unarrör af tanknum, sem var
undir gamalli bensínstöð sem var
aflögð fyrir um sautján til átján
árum.
Átti tankurinn að hafa verið
tæmdur og sandfylltur fyrir
löngu.
Hann reyndist hins vegar inni-
halda bensínlögg og bensíngufur,
sem varð til þess að þegar neisti
féll niður í tankinn um önd-
unarrörið varð svo öflug spreng-
ing að tankurinn virðist hafa rifn-
að og steypt 20 cm þykk plata yfir
honum brotnað og lyfst upp.
Hótel opnað á næstunni
Mikil mildi var að ekki fór verr
enda var sprengingin mjög öflug.
Unnið er að því að gera upp
gömlu Olís-bensínstöðina á svæð-
inu en fyrirhugað er að opna þar
hótel innan skamms.
Mikil mildi að ekki fór verr þegar sprenging varð í bensíntanki á Norðfirði í gær
Bensínstöð-
in aflögð
fyrir löngu
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Sprenging Eins og sjá má lyftist steinsteypt planið fyrir utan gömlu bensínstöðina á Norðfirði.