Morgunblaðið - 30.04.2014, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2014
-VOTTUÐ FRAMLEIÐSLA
Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300 www.ispan.is - ispan@ispan.is
Allt í gleri,
bæði úti
og inni
SPEGLAR • SANDBLÁSTUR • SLÍPUN
Vinstri vaktin fjallar um kosn-ingar til Evrópuþingsins nú í
maí og segir málflutning vinstri-
sinnaðra frambjóðenda, ekki ein-
ungis þeirra sem skipa hóp ESB-
gagnrýnenda, fyrir
kosningarnar vera
allrar athygli verð-
an:
Þeirra á meðalverður að telja
þingforseta Evr-
ópuþingsins sem
gæti mjög líklega orðið næsti
næsti forseti framkvæmdastjórnar
ESB, Martin Schulz.
Hann hóf kosningabaráttu sínafyrir um tveimur mánuðum
með því að kalla á endurreisn
trausts á ESB.
Þá sagði hann í viðtali við Reut-er: „Við þurfum að fara að
hugsa öðru vísi. Ekki: Er enn til
kimi í Evrópu sem við höfum ekki
skipt okkur af með beinum hætti
heldur: Hvað getum við gert bet-
ur? … Við höfum að vissu leyti
misst þráðinn. Evrópa er ekki eins
vel skilgreind og áður í huga borg-
aranna.
ESB var loforð um velferð,meiri félagslegan stöð-
ugleika og meiri frið,“ sagði hann.
„Þetta loforð hefur ekki verið
haldið. Við þurfum að finna leið til
baka og hvernig við getum staðið
við þetta loforð. … Þeir sem gagn-
rýna ESB eru ekki [aðeins] and-
stæðingar ESB og þar liggja
helstu mistök okkar. … Við verð-
um að segja við þetta fólk: Við
skiljum ykkur, þið hafið rétt fyrir
ykkur.“
Þetta er rödd eins mesta áhrifa-manns ESB, mikils ESB-sinna,
frá landinu sem flestir telja áhrifa-
mest innan ESB, Þýskalandi.“
Martin Schulz
Hin hlið kosninga-
baráttu
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 29.4., kl. 18.00
Reykjavík 7 skýjað
Bolungarvík 3 léttskýjað
Akureyri 2 skýjað
Nuuk -5 léttskýjað
Þórshöfn 5 skýjað
Ósló 10 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 heiðskírt
Stokkhólmur 7 skúrir
Helsinki 8 skýjað
Lúxemborg 13 skýjað
Brussel 15 léttskýjað
Dublin 16 léttskýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 15 léttskýjað
París 12 skúrir
Amsterdam 13 léttskýjað
Hamborg 21 heiðskírt
Berlín 22 heiðskírt
Vín 17 þrumuveður
Moskva 20 heiðskírt
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 25 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 21 léttskýjað
Róm 16 léttskýjað
Aþena 20 léttskýjað
Winnipeg 3 heiðskírt
Montreal 11 alskýjað
New York 8 alskýjað
Chicago 18 skýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
30. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:03 21:48
ÍSAFJÖRÐUR 4:52 22:08
SIGLUFJÖRÐUR 4:35 21:52
DJÚPIVOGUR 4:29 21:21
Húsnæðissamvinnufélagið Búseti
hvetur búseturéttarhafa til að mót-
mæla við þingmenn þeim ákvæðum
frumvarps ríkisstjórnarinnar að
leiðrétting höfuðstóls fasteignaveð-
lána nái ekki til þeirra lána.
„Við teljum að jafnræðis sé ekki
gætt og verið sé að brjóta á fólki,“
segir Gísli Örn Bjarnhéðinsson,
framkvæmdastjóri Búseta. Hann
bendir á að litið hafi verið á búsetu-
réttinn sem ákveðið form á séreign.
Búseturéttarhafar kaupi sér búsetu-
rétt og greiði mánaðargjald sem
breytist í takt við undirliggjandi lán
og kostnað við rekstur húsnæðis.
Hann bendir á að þetta séu hefð-
bundin verðtryggð fasteignaveðlán
og hafi tekið sömu breytingum og
önnur lán sem eigi að leiðrétta.
Gísli bendir á búseturétturinn sé
þinglýst eign, talin fram á skatt-
framtali, aðfararhæf að lögum og
búseturéttarhafinn fái vaxtabætur
eins og húseigendur. Réttarstaða
þeirra sé því líkari eignarrétti en
leigu enda ráði allt önnur lögmál
fjárhæð leigugreiðslna á markaði.
„Er eitthvert réttlæti í því að þeir
sem kjósa búseturéttarform njóti
ekki leiðréttingar verðtryggðra fast-
eignaveðlána?“ er spurt í stöðluðu
athugasemdabéfi til þingmanna. Á
annað þúsund manns á búseturétt
hjá húsnæðissamvinnufélögunum
Búseta, Búseta Norðurlandi og Bú-
mönnum. helgi@mbl.is
Búseturéttarhafar skrifa þingmönnum
Telja að jafnræðis sé ekki gætt í
frumvarpi til skuldaleiðréttingar
Morgunblaðið/Þorkell
Búseti Íbúðarhús í Grafarholti.
Fimm aðilar sýndu því áhuga að
leigja aðstöðu í Skálholti til veitinga-
og gistireksturs. Kirkjuráð íslensku
þjóðkirkjunnar óskaði eftir tilboð-
unum. Nú er unnið að því að fara yfir
tillögurnar sem bárust. Tillögurnar
eru jafn misjafnar og þær eru marg-
ar, samkvæmt upplýsingum frá Rík-
iskaupum, sem jafnframt sjá um að
auglýsa og taka við tilboðum.
Hins vegar getur kirkjuráð, sem
fer yfir tilboðin, hafnað þeim öllum
ef svo ber undir, þar sem ekki er um
að ræða formlegt útboðsferli. Búist
er við að um miðjan maímánuð liggi
niðurstaða fyrir.
Skálholt Fimm hafa sótt eftir að
leigja aðstöðu til rekstrar.
Fimm
vilja leigja
Skálholt