Morgunblaðið - 30.04.2014, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2014
Opið virka daga frá kl. 10-18
laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5 • Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Vertu vinur okkar
á Facebook
20%
afsláttur
af yfirhöfnum
Vattjakkar nú 15.980 kr.
Margir litir, stærðir 36-52
VERTU
VAKANDI!
blattafram.is
93% þolenda þekkja þann
sem beitir þá kynferðislegu
ofbeldi!
Mjódd, sími 557 5900
VORDAGAR
í Fröken Júlíu
Full búð af vor- og sumarfatnaði fyrir
allar konur. Opið til kl. 21 í kvöld.
Spennandi tilboð og léttar veitingar.
Veriðvelkomnar
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
„Ársreikningurinn sem meiri-
hlutaflokkarnir í borgarstjórn
leggja nú fram er ákveðið uppgjör
á kjörtímabilinu og fjármálastjórn
Samfylkingar og Besta flokks,“
sagði Júlíus Vífill Ingvarsson, odd-
viti borgarstjórnarhóps Sjálfstæð-
isflokksins. „Það sem blasir við er
mikil skuldasöfnun og skortur á
viðhaldi á eignum borgarinnar.
Hreinar skuldir borgarsjóðs jukust
um 65% á þremur árum. Það gerð-
ist á sama tíma og önnur sveit-
arfélög héldu í horfinu eða greiddu
niður skuldir. Þetta er ekki góður
árangur. Viðhald fasteigna borg-
arinnar er vanrækt. Leik- og
grunnskólar,
íþróttamann-
virki, þjónustu-
miðstöðvar og
menning-
arstofnanir
þarfnast við-
halds sem ekki
hefur verið
sinnt á kjör-
tímabilinu.
Fjármálaskrif-
stofa Reykjavíkurborgar hefur
ítrekað bent á að viðhald sé innan
við helmingur þess sem það ætti
að vera. Við því hafa meiri-
hlutaflokkarnir ekki brugðist.“
Mikil skuldasöfnun og skortur
á viðhaldi eigna borgarinnar
JÚLÍUS VÍFILL INGVARSSON, ODDVITI SJÁLFSTÆÐISMANNA
Júlíus Vífill
Ingvarsson
Guðni Einarsson
Þorsteinn Ásgrímsson
Rekstrarniðurstaða samstæðu
Reykjavíkurborgar, A og B hluta,
var jákvæð um tæpa 8,4 milljarða
kr. en áætlun gerði ráð fyrir já-
kvæðri niðurstöðu um 7,7 milljarða.
Þetta kom fram í ársreikningi
Reykjavíkurborgar fyrir 2013 sem
lagður var fram í borgarstjórn í
gær.
Ekki náðist í Jón Gnarr borgar-
stjóra í gær, en í tilkynningu borg-
arinnar sagði hann m.a. að niður-
staða ársreikningsins væri mikil
gleðitíðindi. „Við höfum stundað
ábyrga fjármálastjórn á öllum svið-
um og haldið uppi verklegum fram-
kvæmdum í borginni sem koma öll-
um til góða,“ var haft eftir Jóni.
Jákvæða niðurstöðu má helst
þakka gjaldfærslu lífeyrisskuldbind-
inga hjá A-hluta og áhrifum fjár-
magnsgjalda hjá Orkuveitu Reykja-
víkur (OR), skv. fréttatilkynningu.
Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagns-
liði var jákvæð um tæpa 23,6 millj-
arða sem var rúmum fjórum millj-
örðum betra en áætlað var.
Rekstrarniðurstaða A-hluta var
jákvæð um rúma þrjá milljarða.
Áætlanir höfðu gert ráð fyrir að nið-
urstaðan yrði jákvæð um 304 millj-
ónir. Helsta ástæðan var gjaldfærsla
vegna lífeyrisskuldbindinga upp á
159 milljónir en fjárhagsáætlun
hafði gert ráð fyrir 2,6 milljörðum.
Lægri skuldir, auknar tekjur
Birgir Björn Sigurjónsson, fjár-
málastjóri Reykjavíkurborgar, sagði
ástæðuna liggja í hækkandi ávöxt-
unarkröfu á skuldabréfum í eigu líf-
eyrissjóðsins. Þannig hefðu skráðar
eignir sjóðsins aukist umfram áætl-
anir og ekki verið þörf á jafnhárri
gjaldfærslu og fjárhagsáætlun gerði
ráð fyrir. Hann sagði að vegna
sveiflna gæti gjaldfærslan orðið
meiri á næsta ári. Þá hefðu aðrir
hlutir eins og höftin og mögulegt af-
nám þeirra einnig áhrif. Benti hann
að árið 2011 hefði borgin setið upp
með 4,5 milljarða króna gjaldfærslu
vegna lífeyrisskuldbindinga.
Heildarskuldir samstæðu Reykja-
víkurborgar lækkuðu á árinu um 37
milljarða. Stærstan hluta þess má
rekja til lækkunar skulda OR. Þegar
aðeins er horft til skulda A-hlutans
jukust þær um 1,4 milljarða á árinu
og voru þær 62,2 milljarðar í árslok.
Birgir sagði að borgin hefði tekið lán
upp á 2,7 milljarða á árinu, en það er
lækkun um 600 milljónir frá fjár-
hagsáætlun. Þá hefðu lán verið
greidd niður um 1,8 milljarða. Net-
tólántaka hefði því numið um 900
milljónum, en verðtrygging skuld-
bindinga, eins og leigusamninga,
skýrir þær 500 milljónir sem upp á
vantar að mestu.
Rekstrartekjur jukust um tæp-
lega sjö milljarða milli ára og voru
þremur milljörðum hærri en fjár-
hagsáætlun gerði ráð fyrir.
Morgunblaðið/Ómar
Reykjavík Niðurstaða ársreiknings borgarinnar fyrir 2013 var kynnt í gær.
Rekstrarniðurstaða
Reykjavíkur jákvæð
Samstæðan skilaði 8,4 milljarða afgangi Tekjur jukust
Vörður - fulltrúaráð sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík hefur boðað til fé-
lagsfundar í Valhöll næsta laugardag,
þar sem lögð verður fram tillaga
stjórnar Varðar um breytingu á fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosn-
ingarnar þann 31. maí næstkomandi.
Eins og kom fram í Morgunblaðinu
í síðustu viku, þá sagði Jórunn Ósk
Frímannsdóttir, fyrrverandi borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sig úr
Sjálfstæðisflokknum og bað um að
nafn hennar yrði tekið af framboðs-
lista flokksins, en hún samþykkti í
nóvember í fyrra að skipa heiðurssæti
listans. Við sama tækifæri upplýsti
Jórunn að hún komi að stofnun nýs
stjórnmálaflokks sem hafi aðild að
Evrópusambandinu sem stefnumál.
Ekki fengust upplýsingar um það í
gær, hver muni skipa heiðurssætið,
30. sætið, í stað Jórunnar.
Nýr í heiðurs-
sætið í stað
Jórunnar