Morgunblaðið - 30.04.2014, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2014
Malín Brand
malin@mbl.is
Þ
egar skoðaðar eru gamlar
ljósmyndir sem teknar
voru hér á landi fyrir
fyrra stríð má sjá höfuð-
föt nánast á hverjum
kolli. Sérstaklega þegar eitthvert var
tilefnið og hver og einn í sínu fínasta
pússi. Í dag fer minna fyrir höfuð-
fötum og má með sanni segja að höf-
uðbúnaður fólks hafi verið margs kon-
ar í gegnum tíðina og á köflum afar
skrautlegur.
Þær Arnþrúður Sæmundsdóttir,
Halldóra Óskarsdóttir, Hildur Há-
konardóttir, Margrét Jónsdóttir og
Þórey Axelsdóttir í Ullarvinnslunni
Þingborg hafa velt gildi höfuðfata fyr-
ir sér og efnt til bráðskemmtilegrar
samkeppni um höfuðfat ársins 2014.
Efnisval og aðferð er frjáls og á höf-
uðfatið sem sent er í keppnina þarf að
vera ætlað fullorðnum. Þetta er ekki
fyrsta samkeppnin á vegum Þing-
borgar því áður hafa keppnir á borð
við Vettlingakeppnina, Langþráðinn
og Stóru peysuna verið haldnar og
undirtektir verið góðar.
„Við byrjuðum með keppni sem
hét Ull í fat,“ útskýrir rithöfundurinn
og listakonan Hildur Hákonardóttir.
„Svo vorum við með Langþráðar-
keppnina. Þar var viðfangsefnið að
spinna sem lengstan þráð úr tveimur
grömmum af ull,“ segir hún.
Fyrir um tíu árum var gríðargóð
þátttaka í Vettlingakeppninni. „Þá
gerðum við okkur grein fyrir því að
vettlingur er ekki það sama og vett-
lingur. Það voru vinnuvettlingar, vett-
lingar til hlýinda og svo eru vettlingar
til skrauts,“ segir Hildur.
Síðar kom mikill skriður á vett-
lingagerð eins og meðal annars má
sjá á þeim fjölda bóka sem komið
hafa út um vettlingagerð.
Við undirbúning hátíðarinnar
Fjörs í Flóa, sem haldin verður hinn
31. maí, kom upp sú hugmynd að
Þingborg efndi til húfusamkeppni.
„Það fannst mér svolítið kollhúfulegt
og ég vildi hífa þetta upp í hærra
veldi,“ segir Hildur og þá kom höfuð-
fatið upp.
Keppnin er miðuð út frá því
hvaða höfuðföt við notum í dag, árið
2014, og getur verið áhugavert að
velta því aðeins fyrir sér, eins og
Hildur bendir á.
Höfuðfat vísun í menningu
„Í gegnum tíðina hefur höfuð-
fatið verið svo lýsandi fyrir menningu
hvers lands og hverrar þjóðar. Stund-
um er höfuðfatið trúarlegt og stund-
um er það merki um tign eins og kór-
ónan og biskupsmíturnar,“ bendir
Hildur á. Hún segir að íslenskar kon-
ur hafi oft skartað sérkennilegum
höfuðbúnaði sem skemmtilegt er að
skoða og velta um leið fyrir sér upp-
runanum. „Við erum með strókinn
háa og spaðann, svo kemur skautið.
Svo verða einhver tímahvörf og allt í
einu eru íslenskar konur komnar með
húfu, fyrst líklega með prjónahúfu
sem þróast yfir í kollhúfu sem situr á
höfðinu eins og gyðingahúfa eða á
staðnum sem munkar krúnurökuðu
sig. Síðan fer hún að hallast meira á
ská eins og ömmur okkar báru hana.
Við setjum á hana langt skott, gjarn-
an úr silki og skreytum með silfur-
skúf. Ég hef enga skýringu fengið á
Þá var höfuð-
fatið tekið ofan
Konurnar í Ullarvinnslunni í Þingborg í Flóahreppi fást alla jafna við áhuga-
verða hluti og oftar en ekki málefni sem á köflum geta talist æði heimspekileg.
Núna hafa þær efnt til samkeppninnar Höfuðfat ársins 2014 og upp koma spurn-
ingar um hvers lags höfuðföt prýða kolla landsmanna í dag. Hildur Hákonardótt-
ir, ein af stofnendum Þingborgar, ræddi um höfuðföt fyrr og nú við blaðamann.
Fjölbreytni Starfsemin í Ullarvinnslunni í Þingborg í Flóahreppi er með
ýmsu móti. Hér má sjá áhugasamar handverkskonur læra brugðningu.
Það er alltaf eitthvað um að vera á
Sunnlenska bókakaffinu á Selfossi
sem bóksalinn Bjarni Harðarson rek-
ur ásamt fjölskyldu sinni. Þar er afar
notaleg stemning og allt fullt af alls-
konar bókum bæði nýjum og göml-
um. Iðulega eru einhver tilboð og auk
þess er bókakaffið með netverslun. Í
dag ættu Sunnlendingar sannarlega
að koma við á bókakaffinu því kl.
17.30 verður hægt að hlýða á ljóða-
lestur skáldanna Þórarins Eldjárns og
Antons Helga Jónssonar. Skáldin
kynna nýútkomnar ljóðabækur sínar,
en Þórarinn gaf nýverið út bókina
Tautar og raular og nokkrum dögum
síðar sendi Anton Helgi frá sér bók-
ina Tvífari gerir sig heimakominn.
Skáldin munu skiptast á um að lesa
úr bókum sínum og árita eintök fyrir
þá sem það vilja. Allir velkomnir og
úrvalskaffi á könnunni og hvur veit
nema slegið verði í vöfflur.
Vefsíðan www.sunnlenska.is
Brosandi skáld Þórarinn og Anton Helgi sendu báðir nýlega frá sér bækur.
Tvö skáld lesa upp í bókakaffinu
Í dag eru liðin 20 ár frá opn-
un Árbæjarlaugar og í tilefni
afmælisins er gestum boðið
frítt í sund ásamt því að
þiggja léttar veitingar.
„Laugin var og er ein allra
glæsilegasta laug borg-
arinnar með stórkostlegu
útsýni yfir Elliðaárdalinn,“
segir Guðrún Arna Gylfa-
dóttir, forstöðukona í Árbæj-
arlaug. „Borgarbúar tóku
nýju lauginni vel og gera
enn,“ segir Guðrún Arna.
Heildarfjöldi heimsókna á
ári er um 300 þúsund.
Síðustu ár hefur verið hlúð að Árbæjarlaug. Nýr nuddpottur var settur upp
fyrir tveimur árum og eimbaði var einnig komið upp.
Endilega …
… farið frítt í sund í dag
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Sundfjör Þessar voru kátar fyrir norðan í fyrra.
Ljóð sem tengjast ákveðnum kenni-
leitum í landslagi borgarinnar eru
fjöldamörg en flest virðast þau eiga
heima í miðbænum. Í kvöld verður
bókmenntaganga frá Menningar-
miðstöðinni Gerðubergi í Breiðholti kl.
20 og ætlar Björn Unnar Valsson að
leiða gönguna. Hann er bókmennta-
fræðingur, starfar sem verkefnastjóri
á Borgarbókasafni og býr í Torfufelli.
Í þessari göngu verður sjónum beint
að ljóðum sem kallast beint á við
Breiðholtið eða ákveðna þætti í lands-
lagi hverfisins og fabúlerað verður
e.t.v. um stærra samhengi umhverfis,
sögu eða ímyndar.
Bókmenntaganga í kvöld
Gengið á slóðir ljóða sem
kallast beint á við Breiðholtið
Björn Unnar Hann býr í Breiðholti og ætlar að leiða gönguna í kvöld.
Morgunblaðið/Eggert
Sílaveiðar Tjörnin við Hólmasel.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
rafkaup.is
Ármúla 24 • S: 585 2800
SÆNSK FRAMLEIÐSL A