Morgunblaðið - 30.04.2014, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2014
Fagstarfið sem fram fer í leik-
skólum, grunnskólum, frí-
stundamiðstöðvum og skóla-
hljómsveitum Reykjavíkur verður
kynnt með líflegri sýningu í Ráð-
húsi Reykjavíkur dagana 30. apríl
– 3. maí. Á sýningunni verður
fjallað í máli og myndum um stefn-
ur og strauma í skóla- og frístund-
astarfi, þróunarverkefni verða
kynnt og börn og ungmenni munu
standa fyrir skemmtiatriðum og
uppákomum sem endurspegla hug-
myndauðgi og skapandi menntun.
Meðal skemmtiatriða á sviði í dag,
miðvikudag, er söngur leikskóla-
barna, tónlistarflutningur skóla-
hljómsveitar, leikið verður á hljóð-
færi skógarins og verðlaunaatriði
úr hæfileikakeppninni Skrekkur
verður flutt.
Fagstarf í skólum
kynnt í Ráðhúsinu
Eimskipafélag Íslands og Kiw-
anishreyfingin gefa öllum grunn-
skólabörnum sem ljúka 1. bekk
grunnskóla í vor reiðhjólahjálma.
Verkefnið er árviss viðburður fé-
laganna til að stuðla að umferð-
aröryggi yngstu hjólreiðamanna
landsins.
Verkefnið nefnist „Óskabörn
þjóðarinnar“ en samtals munu
um 4.500 börn fá reiðhjólahjálma
að gjöf í ár. Á þeim 10 árum sem
verkefnið hefur staðið yfir hafa
um 45 þúsund börn eða um 14%
af þjóðinni notið góðs af því, seg-
ir í tilkynningu. Eimskip hlaut á
síðasta ári mestu viðurkenningu
sem alþjóða-Kiwanishreyfingin
veitir fyrir framlag sitt til sam-
félagslegra málefna.
Kiwanishreyfingin mun á
næstu vikum fara í alla grunn-
skóla landsins og afhenda hjálm-
ana.
Gjöf Kiwanis og Eimskip gefa 4.500
grunnskólabörnum reiðhjólahjálma.
Skólabörn fá reið-
hjólahjálma að gjöf
STUTT
Félagasamtök á sviði geðheilbrigð-
isþjónustu á höfuðborgarsvæðinu
halda í kvöld fund með oddvitum
framboða til sveitarstjórnarkosn-
inga. Fundurinn, sem er öllum op-
inn, fer fram í Þórunnartúni 2 í
Reykjavík, efstu hæð, og hefst
klukkan 19.30. Fundarstjóri verður
Helgi Seljan fjölmiðlamaður.
Geðhjálp býður fundargestum til
opins húss að fundinum loknum eða
um kl. 22.
Svara spurningum
um geðheilbrigðismál
Eygló Harðardóttir, félags- og hús-
næðismálaráðherra, og Yang Shi-
qiu, vararáðherra mannauðs- og al-
mannatryggingaráðuneytis Kína,
undirrituðu nýlega sameiginlega
viljayfirlýsingu um samvinnu Ís-
lands og Kína á sviði vinnumála.
Í viljayfirlýsingunni er m.a. lýst
vilja til þess að styrkja efnahags-
legt og pólitískt samband Íslands
og Kína og að bæði ríkin hafi að
markmiði að efla heilbrigða vinnu-
málastefnu og starfshætti til að
stuðla að nánari og víðtækari sam-
vinnu og auka getu og hæfni beggja
landa til að fjalla um vinnumál. Þar
kemur einnig fram að ríkin líti til
markmiða Alþjóðavinnumálastofn-
unarinnar, sem þau bæði eiga aðild
að, að sjálfbær þróun verði höfð að
leiðarljósi.
Samstarf við Kína á
sviði vinnumála
Samstarf Eygló Harðardóttir og Yang Shi-
qiu við undirritun viljayfirlýsingarinnar.
BAKSVIÐ
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Allir staðir sem selja einhver matvæli
eru háðir eftirliti, það á líka við um
verslanir og sjoppur sem bjóða upp á
sælgætisbari. Sælgætið er óinn-
pakkað og telst í skilningi laganna til
óvarinna matvæla. Því þarf að gæta
fyllsta hreinlætis við meðhöndlun
þess og verslanirnar eru skyldugar til
að tryggja að matvælin óhreinkist
ekki eða spillist á annan hátt.
Í Morgunblaðinu í gær kom fram
að forsvarsmenn matvörukeðjunnar
Bónuss íhugi nú að taka niður alla
sælgætisbarina í verslunum sínum.
Það tengist meðal annars reglum
heilbrigðiseftirlitsins um aðbúnað og
umgengni við sælgætisbarina, svo og
minnkandi sölu.
Óskar Ísfeld Sigurðsson, heil-
brigðisfulltrúi og deildarstjóri mat-
vælaeftirlits hjá Heilbrigðiseftirliti
Reykjavíkur, segir að ekki sé verið að
herða reglur um sælgætisbari eða
auka eftirlitið, þá hafi ekkert komið
upp á í tengslum við þá sem skýri
ofangreint mál. Um hefðbundið eft-
irlit sé að ræða. Væntanlega hafi
Bónus fengið athugasemdir frá við-
komandi heilbrigðisfulltrúa um ófull-
nægjandi aðstöðu til þrifa á sælgæt-
isbörunum.
Aðstaða og handlaug
„Við gerum ákveðnar kröfur til fyr-
irtækja með sjálfsafgreiðslubari,
samkvæmt matvælalöggjöfinni.
Verslanir þurfa að hafa aðstöðu á
bakvið til að geta þrifið búnaðinn og
þar viljum við líka að sé handlaug fyr-
ir þann sem sér um þrifin. Verslanir
eiga að hafa reglur um þrifin og geta
sýnt fram á að sælgætisbarirnir séu
hreinir, við metum það svo hvort þrif-
in eru nægileg. Við förum yfir sjálfs-
afgreiðslubarina eftir sérstökum gát-
lista og gerum athugasemdir ef þess
gerist þörf, t.d við þrif eða hæð
neðstu boxanna frá gólfi sem er
stundum ekki nægjanleg,“ segir Ósk-
ar. „Við gerum kröfur og gefum fyr-
irtækjunum frest til að gera grein
fyrir sínu máli og bæta úr. Ef þau
telja að það sé vænlegra fyrir þau að
taka sælgætisbarina niður er það
þeirra ákvörðun.“
Spurður hvort það sé sóðaskapur í
kringum sælgætisbarina segir Óskar
það yfirleitt ekki vera þannig að það
varði öryggi þessara matvæla.
„Stundum, sérstaklega á tilboðs-
dögum, gengur mikið á við sælgæt-
isbarina og þá getur umhverfi þeirra
orðið ósnyrtilegt."
Óviðunandi í fjórðungi tilfella
Árið 2011 gerði heilbrigðiseftirlit
Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis
úttekt á þrifum og umgengni í kring-
um sælgætisbari í verslunum. Í út-
tektinni var farið á 36 sölustaði á eft-
irlitssvæðinu. Á 69,5% sölustaða voru
þrif ágæt eða góð. Í 30,5% tilfella eða
á 11 stöðum voru þrif slæm eða óhæf.
Verður að vera aðstaða til
að þrífa sælgætisbarina
Verslanirnar eru skyldugar til að tryggja að matvælin óhreinkist ekki
Morgunblaðið/Kristinn
Nammiland Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna fylgjast með því hversu vel sælgætisbarir í verslunum eru þrifnir.
Skákmót Vals,
keppnin um
VALS-Hrókinn,
fer fram í Vals-
heimilinu að
Hlíðarenda mið-
vikudaginn 30.
apríl og hefst kl.
18. Tefldar verða
níu umferðir eft-
ir svissneska
kerfinu. Skák-
unnendur eru hvattir til að taka
þátt. Mótið er helgað minningu
Hermanns Gunnarssonar sem féll
frá í júní á síðasta ári. Hermann var
meðal þátttakenda í fyrra en þá bar
Helgi Ólafsson sigur úr býtum.
Hermann var sjálfur hörkuskák-
maður og var á sínum tíma heiðr-
aður af Skáksambandi Íslands fyrir
framlag sitt til eflingar skáklist-
inni.
Minningarmót um
Hemma Gunn
Hermann
Gunnarsson
Samkvæmt upplýsingum frá Kristni Skúlasyni, rekstrarstjóra Krón-
unnar, hefur heilbrigðiseftirlitið gefið Krónunni góða umsögn hvað varð-
ar hreinlæti. Kristinn segir að ekki sé verið að íhuga að taka niður sæl-
gætisbarina í Krónunni líkt og Bónus íhugar nú, salan úr þeim sé með
ágætum og eðlilegt að viðskiptavinurinn hafi val um hvað hann vilji
kaupa.
Gunnar Ingi Sigurðsson framkvæmdastjóri Hagkaupa segir sölu úr
sælgætisbörum alltaf vera á svipuðu róli þó hún hafi aðeins gefið eftir í
fyrra. Hann segir verslanirnar eiga í góðu samstarfi við heilbrigðiseft-
irlitið, farið sé eftir reglum og aðstaða sé til þrifa í öllum verslunum.
Í upplýsingum frá embætti landlæknis kemur fram að heildarframboð
sælgætis á ári hverju hér á landi sé um 6.000 tonn. Embættið hefur
hvatt stjórnendur verslana þar sem sælgæti er í lausasölu til að endur-
skoða afsláttarkjör á sælgæti og íhuga einnig afslátt af hollari vörum.
„Það er mjög jákvætt að verið sé að loka nammibörum en það sem
hefur mest áhrif á neyslu er aðgengi og verð,“ segir Hólmfríður Þor-
geirsdóttir, næringarfræðingur hjá embætti landlæknis.
Jákvætt að loka nammibörum
SÆLGÆTISÞJÓÐIN TORGAR 6.000 TONNUM Á ÁRI