Morgunblaðið - 30.04.2014, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2014
Jarðvegsþjöppur, valtarar, malbikunarvélar,
gatnasópar, umferðaröryggisbúnaður
A. Wendel ehf - Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - Sími 551 5464 - wendel.is
Tæki til verklegra
framkvæmda
Stofnað 1957
MOSFELLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
Ert þú búin að prófa nýja
lágkolvetnabrauðið okkar?
Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.
Lögreglumaður, sem vikið hefur
verið frá störfum tímabundið, átti í
samskiptum við vini sína, m.a. lög-
mann og starfsmann Nova, í lok-
uðum hópi á samfélagsvefnum
Facebook. Er hann grunaður um að
hafa misnotað aðstöðu sína til að
afla gagna úr lögreglukerfi ríkislög-
reglustjóra, LÖKE, m.a. um stúlk-
ur.
Upplýsingarnar sem hann deildi
voru viðkvæmar, persónulegar upp-
lýsingar um stúlkur úr málaskrá
lögreglunnar. Ekki er vitað hversu
margir voru í þessum lokaða hópi á
Facebook, þ.e. hvort aðeins hafi
verið um að ræða lögreglumanninn
og félaga hans, lögfræðinginn og
starfsmanna Nova, eða hvort fleiri
hafi haft aðgang að hópnum og
þannig séð upplýsingarnar.
Einstaklingur nákominn lög-
reglumanninum komst á snoðir um
samskiptin, taldi þau mjög óeðlileg
og lét lögreglustjóra vita.
Ríkissaksóknari staðfestir að
embættið hefur til rannsóknar ætl-
uð brot lögreglumanns vegna upp-
flettingar og meðferðar á upplýs-
ingum úr upplýsingakerfi
lögreglunnar. Þá staðfestir hann
einnig að tveir aðrir menn hafi rétt-
arstöðu sakbornings við rannsókn-
ina.
Lögfræðingurinn, sem hefur rétt-
arstöðu sakbornings í málinu, starf-
ar hjá lögfræðistofunni Lex. Hann
er nú í leyfi frá störfum vegna
rannsóknar málsins. Hann hefur
starfað hjá Lex í skamman tíma.
Rekinn frá Nova
Starfsmanni Nova hefur verið
vikið úr starfi í tengslum við rann-
sókn málsins. Hann hefur starfað á
tæknisviði fyrirtækisins frá árinu
2012. „Honum er ekki vikið úr
starfi vegna brots á fjarskiptalög-
um því það er ekkert á þessari
stundu sem bendir til þess að hann
hafi lekið eða misnotað með öðrum
hætti gögn úr gagnagrunnum
Nova,“ segir Liv Bergþórsdóttir,
forstjóri Nova, í samtali við mbl.is.
Lögreglan rannsaki nú þann þátt
málsins. „Honum er vikið úr starfi
vegna trúnaðarbrests. Við teljum
að með þeim hætti sem hann bland-
ast inn í rannsókn þessa máls hafi
átt sér stað trúnaðarbrestur.“
Deildi upplýsing-
um um stúlkur
Mennirnir áttu í samskiptum í
lokuðum hópi á Facebook-vefnum
Hjörtur J. Guðmundsson
hjortur@mbl.is
„Viðskiptin voru bara gerð á þessum
fundi,“ sagði Magnús Ármann í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær, þar sem
hann bar vitni í svokölluðu Ímon-máli.
Málið snýst einkum um kaup Ímons
ehf., félags í eigu Magnúsar, á rúm-
lega 4% hlut í Landsbanka Íslands
fyrir rúma fimm milljarða króna með
láni frá bankanum haustið 2008 rétt
áður en bankinn féll. Telur sérstakur
saksóknari að um sýndarviðskipti hafi
verið að ræða til þess að láta líta út
fyrir að eftirspurn væri eftir bréfum í
bankanum.
Magnús sagði, aðspurður af sak-
sóknara, erfitt að segja nákvæmlega
til um það hvert upphafið að viðskipt-
unum hefði verið. Hann hefði verið í
samskiptum við yfirmenn í bankanum
einhverjum vikum eða mánuðum áður
en til viðskiptanna kom og gefið þar
til kynna mögulegan áhuga á að
kaupa hlut í Landabanka Íslands.
Ástæðan hefði verið sú að bréf í bank-
anum höfðu lækkað og hann hefði velt
fyrir sér möguleika á stöðutöku í þeim
efnum. Magnús sagðist síðan hafa
fengið símtal í lok september 2008 frá
Landsbankanum og verið boðaður á
áðurnefndan fund þar sem viðskiptin
hefðu verið ákveðin sem fyrr segir.
Hann sagði aðspurður að forsenda
viðskiptanna af hans hálfu hefði verið
að fá 100% lánafyrirgreiðslu frá bank-
anum fyrir hlutnum enda hefði Ímon
ekki verið með fjármagn á lausu til
þess að greiða fyrir hlutinn en á hinn
bóginn eignir til þess að leggja að
veði. Landsbankinn hefði á móti gert
kröfu um að hluturinn í bankanum
væri settur að veði auk bréfa Ímons í
Byr.
Lánafyrirgreiðsla forsendan
Spurður hvort Magnús hefði lýst
áhuga á að kaupa frekari hlut í
Landsbanka Íslands sagðist hann
hafa gert það. Gert hefði verið ráð
fyrir að um sama fyrirkomulag yrði
að ræða. Forsenda af hans hálfu hefði
verið lánafyrirgreiðsla frá bankanum.
Þau viðskipti hefðu hins vegar ekki
orðið að veruleika vegna hrunsins.
Spurður af verjendum í málinu
hvort Magnús hefði verið í samskipt-
um við Sigurjón Þ. Árnason, fv.
bankastjóra, vegna viðskiptanna
sagði hann svo ekki hafa verið og
sama svar fékkst varðandi samskipti
vð Elínu Sigfúsdóttur, fv. forstöðu-
mann fyrirtækjasviðs bankans, en
þau eru ákærð í málinu ásamt Stein-
þóri Gunnarssyni.
Morgunblaðið/Þórður
Héraðsdómur Elín Sigfúsdóttir, fyrrum yfirmaður hjá Landsbanka Íslands,
er meðal ákærða í Ímon-málinu svonefnda ásamt tveimur öðrum.
Frumkvæðið
kom frá Magnúsi
Engin samskipti við Sigurjón og Elínu
„Ég var ekki að þrýsta á stjórn-
endur bankans að gera eitt eða
neitt,“ sagði Björgólfur Thor
Björgólfsson þegar hann bar vitni í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær við
aðalmeðferð málsins.
Björgólfur var þar að svara
spurningu frá Sigurði G. Guðjóns-
syni, hæstaréttarlögmanni og verj-
anda Sigurjóns Þ. Árnasonar.
Björgólfur sagðist aðspurður
engin afskipti hafa haft af viðskipt-
unum við Ímon og ekki hvatt til
þeirra. Sama ætti við um hug-
myndir um að Magnús keypti frek-
ari hlut í Landsbanka Íslands, við-
skipti sem aldrei
varð þó af þar
sem bankinn féll.
Sama ætti við um
lánveitingu til fé-
lagsins Azalea
Rescources í eigu
Ari Salmivouri,
finnsks fjárfestis
og viðskipta-
félaga Björgólfs,
upp á 3,8 millj-
arða króna. Hann þekkti Salmi-
viouri en hefði hvergi komið að
þeim málum.
Björgólfur lagði áherslu á að
hann hefði haft trú á að Landsbanki
Íslands lifði af og síðan tekið þátt í
því að reyna að bjarga bankanum,
m.a. með því að leggja fram frekari
tryggingar af sinni hálfu.
Björgólfur Guðmundsson, fv. for-
maður bankaráðs Landsbanka Ís-
lands, kom einnig fyrir héraðsdóm
sem vitni og sagðist aðspurður ekki
hafa komið að viðskiptunum við
Ímon né Azalea Rescources. Útlán
hefðu verið á könnu bankastjóra
bankans. Bankaráðið hefði fylgst
vel með í samræmi við regluverkið
en ekki skipt sér af útlánum.
hjortur@mbl.is
Segist ekki hafa þrýst á stjórnendur
Björgólfur Thor
Björgólfsson