Morgunblaðið - 30.04.2014, Page 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2014
Áþreifanleg vellíðan
EDDA
HEILDVERSLUN
Stofnsett 1932
Gæði og glæsileiki
Heildverslunin Edda
hefur um áratuga skeið sérhæft sig sem innflytjandi á líni.
Mörg af stærstu hótelum landsins jafnt sem minni nota
allt lín frá okkur.
Bjóðum einnig upp á lífrænt lín.
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími: 525 8210
eddaehf@eddaehf.is • www.eddaehf.is
82
ÁRA
EDDA Heildverslun
Draumur um góða nótt
Heildverslun með lín fyrir:
• hótelið
• gistiheimilið
• bændagistinguna
• veitingasalinn
• heilsulindina
• hjúkrunarheimilið
• þvottahúsið
• sérverslunina
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Mikið ofbeldi hefur einkennt aðdrag-
anda þingkosninganna sem fram
fara í Írak í dag, minnst 27 féllu í
sprengjutilræðum við kjörstaði á
mánudag. Ljóst er að hermdar-
verkamenn vilja hræða fólk frá því
að mæta á kjörstað. Í Anbar-héraði,
þar sem Fallujah er helsta borgin,
ráða nú ofstækisfullir íslamistar í
reynd öllu þótt svæðið sé að nafninu
til undir yfirráðum stjórnvalda í
Bagdad. Og Kúrdar í norðri fara
hörðum orðum um Nuri al-Maliki,
forsætisráðherra Íraks.
Írakar dæla nú upp meiri olíu en
nokkru sinni fyrr í sögunni og því
ættu að vera til peningar til að lag-
færa ýmsa innviði. En það gengur
brösulega, einkum vegna spillingar,
ef undanskilið er íraska Kúrdistan
þar sem menn vilja meiri sjálfs-
stjórn, að sögn New York Times.
Kúrdar saka Maliki um að tefja fyrir
því að þeir fái afhentan eðlilegan
skerf af olíutekjunum. Massud Barz-
ani, forseti Kúrda, segir Maliki vilja
sölsa undir sig öll völd.
„Maliki hefur ekki reynst Kúrdum
vel eða Írökum yfirleitt,“ segir Tariq
Jawhar, frambjóðandi í þingkosn-
ingunum. „Saddam Hussein var
steypt af stóli en aðferðir hans og
arfleifð eru enn á kreiki í huga
margra íraskra leiðtoga.“
Hann segir að stefna Malikis hafi
ýtt undir ágreining milli Kúrda og
araba, einnig milli helstu trúarfylk-
inga landsins, sjía-múslíma og súnní-
múslíma. Sjálfur er Maliki sjía-músl-
ími eins og um 60% allra Íraka.
Hann á gott samstarf við Íran þar
sem klerkar úr röðum sjíta ráða öllu.
Írakar kjósa sér nýtt þing
Sprengjutilræðum síðustu daga ætlað að hræða fólk frá að mæta á kjörstað
Kosið í öllu Írak
» Kosningarnar verða þær
fyrstu sem spanna allt landið
síðan Bandaríkjamenn drógu
her sinn á brott 2011. Maliki
hefur verið við völd í átta ár.
» Auk Anbar hafa uppreisn-
arflokkar fært sig upp á skaftið
í héruðunum Salahuddin og
Diyala, norðan við Bagdad.
Útilokað er að gera friðarsamninga
við Ísrael fyrr en búið er að ákveða
hvar landamæri væntanlegs ríkis
Palestínumanna skuli liggja, segir
Mahmoud Abbas, forseti Palestínu-
manna. Ljóst er nú að áætlun Johns
Kerrys, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, frá í fyrra um að saminn
yrði friður fyrir 1. maí á þessu ári
verður ekki að veruleika.
„Frá því að Ísrael varð til hefur
enginn vitað hvar landamærin eru,“
sagði Abbas í sjónvarpsávarpi í gær.
Hann sagði að önnur skilyrði fyrir
því að halda áfram samningaviðræð-
um væru að Ísraelar stæðu við fyr-
irheit um að láta nokkur hundruð
palestínska fanga lausa og að Ísrael-
ar leyfðu ekki frekari uppbyggingu í
byggðum landtökumanna gyðinga á
hernumdu svæðunum.
Abbas hefur sætt harðri gagnrýni
af hálfu Benjamins Netanyahu, for-
sætisráðherra Ísraels, fyrir að reyna
að ná sáttum um þjóðstjórn með Ha-
mas-samtökum íslamista á Gaza.
Benda Ísraelar á að fjarstæða sé að
þeir geti gert friðarsamninga við
stjórn sem hafi innanborðs ráðherra
úr hryðjuverkasamtökum. Bæði
Bandaríkin og Evrópusambandið
skilgreina Hamas sem slík samtök.
Í stefnuskrá Hamas er tekið skýrt
fram að eyða beri Ísrael. Tilraunir
manna til að fá Hamas til að breyta
þessu orðalagi, sem af eðlilegum or-
sökum hljómar skelfilega í eyrum
gyðinga, hafa ekki borið árangur.
Einnig hafa þau neitað að lofa af-
dráttarlaust að hætta öllum vopnuð-
um árásum á Ísrael.
kjon@mbl.is
Ítreka skilyrði
fyrir viðræðum
Abbas vill af-
marka landamæri
Palestínuríkis
AFP
Vinir? Palestínumaður og ísr-
aelskur hermaður taka mynd hvor
af öðrum í bænum Nabi Saleh.
Danir fagna því að veitingastað-
urinn Noma í Kaupmannahöfn skuli
hafa endurheimt titilinn Besti veit-
ingastaður í heimi. Noma missti tit-
ilinn í fyrra eftir þriggja ára sig-
urgöngu, þá sigraði El Celler de
Can Roca á Spáni.
Greidd eru atkvæði um röðina ár
hvert. „Ég óska Noma innilega til
hamingju, staðurinn hefur með
mikilli sköpunargáfu og hugrekki
aftur sannfært heiminn um einstök
gæði norræns matar,“ sagði Dan
Jørgensen, matvælaráðherra Dan-
merkur. kjon@mbl.is
VEITINGASTAÐIR
Noma aftur bestur
í öllum heiminum
Abdelaziz Bou-
teflika, sem ný-
lega var endur-
kjörinn forseti
Alsírs, gat ekki
haft eftir allan
eiðinn, 94 orð,
þegar hann var
settur í embætti
á mánudag, að
sögn blaðsins El
Watan.
Forsetinn, sem er 77 ára, notast
við hjólastól en hann fékk heila-
blóðfall í fyrra. Hann fékk 81,5% at-
kvæða en kjörsókn var afar lítil.
Margir efast um að hann hafi heilsu
til að gegna embættinu en Boute-
flika varð forseti 1999. kjon@mbl.is
ALSÍR
Bouteflika gat ekki
svarið eiðinn
Abdelaziz
Bouteflika
Tveir áhugamenn um forn-
leifafræði fundu nýlega um 250
gullpeninga og fleiri gripi frá vík-
ingatímanum í jörðu á Borgund-
arhólmi. Meðal myntanna eru tveir
arabískir gulldínarar, mynt sem
aldrei hefur fundist áður í landinu.
Fjöldi víkinga átti viðskipti við
veldi araba á miðöldum. Í fjár-
sjóðnum er einnig gullmynt sem
slegin var fyrir Anno, erkibiskup í
Köln. kjon@mbl.is
FORNLEIFAFUNDUR
Arabísk mynt fannst
á Borgundarhólmi
Skýstrókar héldu áfram að valda
usla í sunnanverðum Bandaríkjun-
um í gær, alls hafa með vissu yfir 20
manns látist í óveðrinu undanfarna
daga. Talan gæti þó hækkað þar sem
enn er verið að leita í rústum. Giles
Ward, íbúi í Louisville í Mississippi,
leitaði skjóls á baðherberginu ásamt
eiginkonu og fjórum öðrum meðan
óveðrið sundraði múrsteinshúsi fjöl-
skyldunnar.
Hætta er á fleiri skýstrókum á
næstu dögum en algengt er að ham-
faraveður af þessu tagi geisi á
ákveðnu belti um miðbik Bandaríkj-
anna. Oftast eru strókarnir aðeins
nokkur hundruð metrar að breidd,
myndast skyndilega og fara hratt yf-
ir. Mike Beebe, ríkisstjóri í Arkan-
sas, segir að veðurofsinn hafi ef til
vill verið sá mesti í manna minnum.
Vindhraðinn er svo mikill að vöru-
flutningabílar takast á loft og raf-
magnslínur falla, tré rifna upp með
rótum. Hús eru illa farin víða í Ark-
ansas, Oklahoma, Alabama og Miss-
issippi, sum ónýt. Mikið tjón varð í
Mayflower, úthverfi höfuðborgar
Arkansas, Little Rock. Sjónvarps-
stöðin ABC segir að tugir þúsunda
séu án rafmagns í Alabama, Ken-
tucky og Mississippi og þúsundir
manna hafist nú við í kjöllurum og
neyðarskýlum.
Strókarnir skildu eftir sig um 65
km langa slóð eyðileggingar við
Little Rock. Þingmaður frá Arkan-
sas, Tim Griffin, sagði að „heilt
hverfi með um 50 húsum“ í Faulk-
ner-sýslu væri í rúst, það eina sem
eftir væri af sumum húsunum væri
grunnurinn.
AFP
Baráttutákn Bandarískur fáni sem fannst í húsarústum var reistur í borginni Vilonia í Arkansas eftir að skýstrókur
herjaði þar á sunnudagskvöld. Búist er við slæmu veðri og fleiri skýstrókum næstu daga í suðurríkjunum.
Mann-
skæðir
strókar
Heil húsahverfi
í rúst í Arkansas