Morgunblaðið - 30.04.2014, Síða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2014
Burstað, lakkað, olíuborið, handheflað, reykt,
fasað, hvíttað... hvernig vilt þú hafa þitt parket?
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Dalvegi 10-14 • Kópavogi
Plankaparket
í miklu úrvali
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Um 3.000 stuðningsmenn Rússa réð-
ust í gær inn í aðalstöðvar héraðs-
stjórnarinnar í stórborginni Lúh-
ansk í austurhluta landsins og lögðu
þær og bækistöð saksóknara undir
sig. Skömmu síðar tóku um 20 menn,
sem voru sumir vopnaðir kylfum og
málmstöngum, einnig lögreglustöð.
Þeir brutu hurðir og rúður til að
komast inn í húsin og hleyptu síðan
mannfjöldanum inn.
Fólkið hafði áður krafist þess að
strax yrði efnt til þjóðaratkvæða-
greiðslu um aukna sjálfsstjórn aust-
urhéraðanna þar sem margir eiga
sér rússnesku að móðurmáli. Úkra-
ínski fáninn við aðalstöðvarnar var
dreginn niður og fáni Rússlands
dreginn að hún. Engir verðir voru
fyrir utan húsið en inni var hópur um
100 óeirðalögreglumanna í fullum
skrúða. Ekki var ráðist á þá.
Gagnrýndu lögregluna
Staníslav Retsínskí, aðstoðarmað-
ur innanríkisráðherra Úkraínu,
sagði að héraðsstjórnin í Lúhansk
virtist ekki hafa neina stjórn á lög-
reglunni. „Lögreglan á staðnum
gerði ekki neitt,“ sagði hann. Forseti
Úkraínu, Olexander Túrtsjínov,
gagnrýndi einnig lögregluna í aust-
urhéruðunum fyrir „aðgerðaleysi og
í sumum tilvikum glæpsamleg svik“.
Rússneskir ráðamenn segja nú að
þeir hafi alls ekki í hyggju að gera
innrás í austurhéruð Úkraínu en um
40 þúsund rússneskir hermenn eru
rétt við landamærin. Sergei Sjogú
varnarmálaráðherra tjáði starfs-
bróður sínum í Bandaríkjunum,
Chuck Hagel, þetta í klukkustundar
löngu símtali í gær.
Sagði Sjogú að hermennirnir
væru nú aftur komnir í búðir sínar
þar sem Úkraínustjórn hefði sagt að
ekki yrði beitt hervaldi gegn aðskiln-
aðarsinnum í austurhéruðunum.
Talsmenn Atlantshafsbandalagsins,
NATO, sögðust ekki hafa séð merki
um að Sjogú hefði sagt sannleikann.
AFP
Innkaup Þrátt fyrir ókyrrðina í A-Úkraínu gengur lífið að mestu sinn vana-
gang hjá flestum. Hér kaupa konur í Slavjansk á grænmetismarkaði í gær.
Bækistöð yfir-
valda í Lúhansk
var hernumin
Úkraínuforseti gagnrýnir lögregluna
Refsiaðgerðir og ISS
» Bandaríkjamenn hafa hert
refsiaðgerðir sínar og beinast
þær m.a. gegn sölu á hátækni
til Rússlands.
» Athygli vakti í gær að Rúss-
ar sögðu að ef refsiaðgerðirnar
hefðu áhrif á framleiðslu eld-
flauga gæti það komið niður á
bandarískum geimförum sem
dvelja í alþjóðlegu geimstöð-
inni, ISS.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Enn bíða ættingjar um 230 skóla-
stúlkna í norðausturhluta Nígeríu
fregna af þeim en talið er að herská-
ir íslamistar úr röðum samtakanna
Boko Haram hafi rænt þeim. Ráðist
var inn í heimavistarskóla stúlkn-
anna í Chibok í Borno-héraði að
næturþeli fyrir tveim vikum. Íbúar í
norðurhluta Nígeríu eru flestir
múslímar, í suðurhlutanum er meiri-
hlutinn kristinn.
Boko Haram (nafnið merkir: vest-
ræn menntun er bönnuð) hafa staðið
fyrir morðárásum í landinu undan-
farin ár, um 1.500 hafa fallið fyrstu
þrjá mánuði þessa árs.
Nú hafa borist fregnir af því að
sumar stúlknanna, sem eru á aldr-
inum 16-18 ára, hafi sést í haldi
vopnaðra manna í grannríkjunum
Kamerún og Tsjad. „Og svo fengum
við upplýsingar um að ræningjarnir
hefðu látið bjóða þessar stúlkur upp
sem brúðir,“ segir Pogo Bitrus, einn
af leiðtogum Chibok. Hann segir
einnig í viðtali við BBC að 43 stúlk-
um hafi tekist að sleppa.
Örvænting foreldra stúlknanna er
mikil og stjórnvöld í Nígeríu eru
sökuð um að gera lítið til að frelsa
þær. Stjórn Jonathans Goodlucks
forseta hefur að vísu sent nokkur
þúsund hermenn til helstu borga
norðurhéraðanna til að fást við liðs-
menn Boko Haram. En samtökin
hafa nú breytt um aðferð, ráðast
frekar á smábæi og þorp.
Árið 1996 rændu liðsmenn Upp-
eisnarhers Guðs, LRA, 139 stúlkum
úr skóla í Úganda. En skólastjórinn,
nunnan Rachele Fassera, elti hópinn
inn í frumskóginn og tókst að frelsa
109 fórnarlambanna.
Boko Haram-liðar sagðir
selja stúlkur á uppboði
Enn hefur ekkert spurst til 230 stúlkna sem var rænt
AFP
Árás Fólk í Abuja í Nígeríu við lík
manna sem féllu í árás Boko Haram.
Brasilíski Barce-
lona-maðurinn
Dani Alves, sem
er að hluta
blökkumaður,
varð nýlega fyrir
því í leik gegn
Villarreal að
áhorfandi kast-
aði banana að
honum þegar
hann var að fara
að taka hornspyrnu.
Ljóst er að markmiðið var að
sýna Alves óvirðingu. En hann af-
hýddi bananann, fékk sér bita – og
tók svo spyrnuna.
Liðsfélagi hans og samlandi,
Neymar, varð hrifinn af glensinu,
tvítaði um það og setti síðan mynd
af sér með banana og ungum syni
sínum á Instagram. Undir stendur:
„Við erum öll apar.“ Milljónir
manna hafa lækað myndina og
tvítið. kjon@mbl.is
Alves fékk sér bita
af banananum – og
tók hornspyrnuna
Neymar með
syninum.